Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Kórónuveiran COVID-19 hélt áfram
að taka sinn toll víða um heim í gær.
Ný tilvik eru nú orðin fleiri utan
Kína, upprunalands sjúkdómsins, en
innan samkvæmt upplýsingum Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) í gær. Ný tilvik í Kína voru
411 á þriðjudaginn en samtals 427 í
öðrum löndum.
Stella Kyriakides, sem stjórnar
heilbrigðismálum innan Evrópusam-
bandsins, lagði áherslu á það í gær að
menn sýndu stillingu í umræðum um
veiruna og útbreiðslu hennar.
Í Suður-Kóreu hafa 1.260 smit-
ast. Í Íran hafa 19 látist og 139 smit-
ast, en efasemdir eru um nákvæmni
þeirra upplýsinga. Á Ítalíu hafa tólf
látist, þar af tveir í gær, og 374 smit-
ast. Hvergi í Evrópu er útbreiðsla
veirunnar meiri en þar og víðtækar
sóttvarnir í gangi. Í Frakkandi var í
gær tilkynnt um annað dauðsfallið
vegna veirunnar, sextugs fransks
kennara í París. Fyrra dauðsfallið
var áttræður kínverskur ferða-
maður. Veiran er skæðust eldra fólki,
fólki með öndunarfærasjúkdóma og
öðrum sem veikbyggðir eru fyrir.
Alls höfðu í gær fjórir gestir á
Costa Adeje Palace-hótelinu á Tene-
rife greinst smitaðir af kórónuveir-
unni. Tvö smit að auki hafa verið
staðfest til viðbótar við ítalska lækn-
inn sem smitaðist fyrst og eiginkonu
hans. Sjö Íslendingar eru á meðal
þeirra þúsund gesta sem eru í sóttkví
á hótelinu. Ýmsir hafa hætt við ferða-
lag til Tenerife af þessum sökum, en
heilbrigðisyfirvöld hafa þó ekki talið
þörf á því.
Útbreiðsla veirunnar hefur leitt
til pólitískrar ókyrrðar í sumum
löndum. Hafa víða heyrst kröfur um
að landamærum verði lokað gagn-
vart fólki frá sýktum svæðum. Í gær
voru háværar raddir í Frakklandi um
að banna áhangendum ítalska
knattspynuliðsins Juventus að koma
þangað til að fylgjast með leik liðsins
í borginni Lyon. Var bent á að furðu-
legt væri að frönskum ríkisborgurum
væri ráðlagt að fara í sóttkví kæmu
þeir frá sýktum svæðum en útlend-
ingar fengju að valsa um óáreittir.
Í gær var vitað um 2.700 sem
látist höfðu í ýmsum löndum af völd-
um kórónuveirunnar. Talið var að
um 80 þúsund væru sýktir, flestir í
Kína en útbreiðslan þar er talin í
rénun.
Fleiri ný tilvik veirunnar nú utan Kína
Kórónuveiran heldur áfram að taka sinn toll víða um heim Um 2.700 látnir ESB hvetur til
stillingar Útbreiðslan í Evrópu mest á Ítalíu Pólitísk ókyrrð í sumum löndum vegna veirunnar
AFP
Veiran Sóttvarnargrímur áberandi
á lestarstöð í Shanghai í Kína í gær.
Námsmenn við Srinakharinwirot-háskólann í
Bangkok í Taílandi efndu til mótmæla í gær eftir
að dómstóll úrskurðaði að leysa skyldi upp
hópur fólks skyndilega saman á almannafæri til
aðgerða og hverfur svo á braut. Mótmælendur
báru grímur vegna kórónuveirunnar.
Framtíðarframfaraflokkinn, sem verið hefur
mjög gagnrýninn á her landsins. Þetta var svo-
kallaður snarskari („flashmob“), en þá kemur
AFP
Kórónuveiran setur mark á mótmæli í Bangkok
Ólga í Taílandi eftir að stjórnarandstöðuflokkur var leystur upp
Kappræður
demókrata fyrir
forkosningarnar
í Suður-Karólínu
um helgina fóru
fram í fyrrinótt.
Sóttu flestir
frambjóðenda
hart að öldunga-
deildarþing-
manninum
Bernie Sanders,
sem nú leiðir baráttuna um útnefn-
ingu Demókrataflokksins, og sögðu
skoðanir hans of langt til vinstri
fyrir hinn almenna kjósanda í
Bandaríkjunum. Útnefning Sand-
ers væri því vís til að enda með
endurkjöri Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta.
Sanders hafnaði því að hug-
myndir hans væru of „róttækar“ og
sagði þær eiga sér stoð meðal
flestra vestrænna ríkja. Þá yrði
Trump ekki sigraður í kosning-
unum nema með öflugri og orku-
mikilli kosningabaráttu.
Kosið verður í Suður-Karólínu á
laugardaginn næsta, en það er hið
fyrsta af Suðurríkjum Bandaríkj-
anna til þess að taka þátt í forval-
inu, og síðasta ríkið til að kjósa fyr-
ir „ofurþriðjudaginn“ 3. mars, en
þá halda 15 ríki forkosningar sínar.
Sóttu fast að Sand-
ers í kappræðum
Bernie
Sanders
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hvatti til
stillingar í gær, en blóðugar skærur hafa verið á milli
hindúa og múslima í höfuðborginni Nýju Delí. 27 manns
eru látnir eftir átök vikunnar og meira en 200 manns
hafa særst í þeim. Þá hefur verið ráðist að moskum í
borginni og lagður eldur að þeim.
Tildrög óeirðanna má rekja til mótmæla gegn nýjum
lögum um ríkisborgararétt sem indverskir múslímar
segja vera beint gegn trúarbrögðum sínum. Um 200
milljónir Indverja játa íslamstrú.
27 látnir eftir blóðugar skærur í Nýju Delí
Narendra Modi
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
mánudaginn 2. mars, kl. 18
Fold uppboðshús kynnir
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
LISTMUNAUPPBOÐ
Jóhannes S. Kjarval
Ásgrímur Jónsson Einar Jónsson · Ásmundur Sveinsson
Karl Kvaran
Listmunauppboð nr. 118
Fimmtudag til föstudags kl. 10–18, laugardag kl. 11–16,
sunnudag kl. 12–16, mánudag kl. 10–17
Forsýning á verkunum í Gallerí Fold
Jóhannes S. Kjarval