Morgunblaðið - 27.02.2020, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 49
Sjá nánar á starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til
2. mars 2020.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Urbancic, rekstrarstjóri í
mennta- og menningarmálaráðuneytinu, í síma 545 9500.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið ber ábyrgð á mennta-
málum, vísindum, íþrótta- og æskulýðsmálum og menningu.
Sameiginlegur þráður í verkefnum okkar er skapandi hugsun,
eiginleiki sem verður sífellt mikilvægari fyrir einstaklinga jafnt sem
samfélög.
Við tökum framtíðinni fagnandi.
SKRIFSTOFUSTJÓRAR
á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála
á skrifstofu framhaldsskóla og -fræðslu
Skrifstofustjórar stýra starfsemi sinnar skrifstofu og annast almennan
rekstur. Þeir bera ábyrgð á því að skrifstofan sinni stjórnsýslulegum
skyldum sínum og að stefnumarkandi ákvörðunum ráðherra sé hrint í
framkvæmd.
MANNAUÐSSTJÓRI
Starf mannauðsstjóra er nýtt í ráðuneytinu og því viljum við ráða drífandi
einstakling með skýra sýn, faglega þekkingu og reynslu.
GÆÐASTJÓRI
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem vill gegna lykilhlutverki í endur-
skoðun vinnulags, verkferla og gæðamála í ráðuneytinu. Viðkomandi
mun stýra þróun og viðhaldi á gæðakerfi ráðuneytisins.
Ráðuneyti framtíðarinnar leitar
að leiðtogum sem brenna af ástríðu
fyrir menntun og menningu
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is