Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
„STÆRSTA PADDA SEM ÉG HEF NOKKURN
TÍMANN SÉÐ!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þitt eigið
stuðningsnet.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HEF AUGA
MEÐ ÞÉR
ÉG HEF AUGA
MEÐ ÞÉR
ÞETTA ER
BILUN
ÉG ÆTLAÐI
AÐ SEGJA
„SKRÝTIД
ÞAÐ ER HÓPUR FRÁ
ÁHUGAFÓLKI UM
VÍKINGA HÉR FYRIR
UTAN!
SKYLDU ÞAU VILJA
EIGINHANDAR-
ÁRITUN?
MEGUM VIÐ NOTA
SALERNIÐ?
OLÍU-
SKIPTI
hjálmsdóttur er 1) Kristín María
Kjartansdóttir, f. 21.1. 1961, skrif-
stofumaður, búsett í Kópavogi. Hún
er gift Ingólfi Haukssyni og eiga þau
fjögur börn: Sigríði Jónu, Hlyn,
Hauk og Vilhjálm Inga. Sigríður
Jóna er kennari og býr á Akureyri,
er gift Jóhanni Finnbogasyni sjó-
manni og eiga þau þrjú börn: Aldísi
Maríu, Andra Snæ og Örnu Lind.
Synir Kjartans og Bergljótar eru 2)
Sveinn Kjartansson, f. 10.3. 1963,
hljóðupptökumaður og fram-
kvæmdastjóri Studio Sýrlands, bú-
settur í Kópavogi. Hann er kvæntur
Guðrúnu Halldóru Gestsdóttur og
eiga þau þrjú börn: Kjartan, Hilmu
Kristínu og Gest; 3) Sigurjón Kjart-
ansson, f. 20.9. 1968, handritshöf-
undur, tónlistarmaður og fjölmiðla-
maður, búsettur í Kópavogi. Hann
var kvæntur Hólmfríði Þórðar-
dóttur, en þau slitu samvistir, þeirra
börn: Þórður Ingi, látinn, Kjartan
Logi, Egill Gauti og Bergdís Þórða;
4) Sindri Páll Kjartansson, f. 19.3.
1975, kvikmyndagerðarmaður, bú-
settur í Reykjavík. Hann er kvæntur
Arnþrúði Dögg Sigurðardóttur og
eiga þau tvær dætur: Ronju og
Andreu.
Systkini Kjartans: Sigurður
Sigurjónsson, f. 17.10. 1943, d. 16.6.
2012, húsgagnasmiður í Reykjavík;
Sigurjón Bolli Sigurjónsson, f. 20.12.
1944, húsgagnasmiður, búsettur í
Reykjavík, og Bryndís Sigurjóns-
dóttir, f. 17.3. 1946, fv. skólameistari
Borgarholtsskóla, búsett í Reykja-
vík.
Foreldrar Kjartans voru hjónin
Sigurjón Árni Sigurðsson, f. 1.8.
1916, d. 28.8. 1982, skrifstofumaður
og framkvæmdastjóri, og Bryndís
Bogadóttir, f. 21.1. 1919, d. 15.9.
1978, húsmóðir.
Kjartan
Sigurjónsson
Gunnhildur Árnadóttir
húsfreyja í Firði
Sigurður Jónsson
bóndi í Firði í Seyðisfirði
Erlín Sigurðardóttir
húsfreyja á Seyðisfirði
og í Rvík
Bogi Benediktsson
kennari á Seyðisfirði og
skrifstofustjóri í Reykjavík
Bryndís Bogadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristín A. Gísladóttir
húsfreyja í Garði
Benedikt Olgeirsson
bóndi í Garði í Fnjóskadal
Ólafía Bogadóttir
Breiðfjörð
húsfreyja í Rvík
Helgi Magnússon
fjárfestir á
Seltjarnarnesi
Leifur Breiðfjörð
myndlistarmaður
í Rvík
KatrínSigurðardóttir
húsfreyja í Rvík
Oddbjörg Pálsdóttir
húsfreyja í Starkaðshúsum
Árni Þórðarson
bóndi í Starkaðshúsum í Flóa
Eyríður Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurður Guðbrandsson
skipstjóri á Snorra goða
Katrín Einarsdóttir
húsfreyja á Brúnastöðum
Guðbrandur Guðbrandsson
bóndi og ferjumaður á Brúnastöðum í Flóa
Úr frændgarði Kjartans Sigurjónssonar
Sigurjón Árni Sigurðsson
skrifstofumaður og
framkvæmdastjóri í Rvík
Ámánudag hríðféllu hlutabréfbeggja vegna hafsins vegna
kórónuveirunnar. Ólafur Stefáns-
son orti:
Í gær féll Dove Jones og Dax,
þá dvínaði bjartsýnin strax,
því flugrisar tapa,
ferðamenn gapa,
og enn þá er meingalli’ á Max.
Ingólfur Ómar segir að það sé
stundum gaman að líta til baka og
minnast á góða tíma:
Forðum eins og fló á skinni
funi svall í heitu blóði.
Ungur var ég einu sinni
eins og foli í merarstóði.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Skáldþanka“:
Einn ég vaki í rökkur ró,
rekur flak að ströndum.
Lifnar staka, losnar þó
lind úr klakaböndum.
Fram hún streymir frjáls á ný,
fyrir heiminn syngur.
Fagurdreymi öðlast í
ómi hreimsnillingur.
Gott er að rifja upp gamlar
limrur. Þessi er eftir Guðmund:
Þeir telja að Bjössi bakari
sé betri maður og spakari
en hárskerinn Geir,
en hitt vita þeir
að hárskerinn Geir er rakari.
„Tveir gaukar“ er eftir Pál
Jónasson í Hlíð:
Við erum í búri víst báðir
og brauðgjöfum annarra háðir,
úr vírneti er þitt
en vananum mitt,
og bíðum þar – brauðgjöfum háðir.
Vilfríður vestan orti:
Hann Sigurður sálugi á Vatni, –
seint held ég að maðurinn batni –
bæði konum og köllum
illt gerði öllum
af einskærri vandvirkni og natni.
Jóhann S. Hannesson orti við
borð of nærri hljómsveitinni:
Nú er þolinmæði mín þrotin
og þó ég sé gamall og lotinn
skal mögnurum brennt
og hljóðfærum hent
og hver helvítis poppari skotinn.
Eysteinn Gíslason frá Skáleyjum
orti:
Djöflast í ófriðaraninu
ýmsir á veraldarplaninu.
Til aðstoðar guði
þótt prestarnir puði
og páfinn í Vatikaninu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hlutabréfum
og gamlar limrur
Veislulist sér um veitingar fyrir fermingar af öllum
stærðum, hvort sem er í veislusal eða heimahús
Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskarand matreiðslu.
FERMINGAVEIsluR
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
3ja rétta sTEIKARhlaðborð
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við marsipan fermingartertu með 20% afsl.
PINNAMatur
Verð er fyrir 30-50 manna veislu án leigu á veislusal.
Bættu við kransaköku 30 manna á kr. 16.500
kaffihlaðborð
Ferming
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
SKÚTAN