Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Sú virðing sem íslenskur
handbolti nýtur í Þýskalandi
endurspeglast vel í tíðindum
gærdagsins.
Forráðamenn eins af bestu
liðum landsins, Melsungen, sem
gæti orðið bæði bikarmeistari og
EHF-Evrópumeistari í vor, leituðu
strax til Guðmundar Þ. Guð-
mundssonar þegar þá vantaði
nýjan þjálfara.
Hann hefur áður starfað í sex
ár sem þjálfari félagsliða í þýsku
deildinni.
Um daginn var Alfreð Gísla-
son ráðinn þjálfari þýska karla-
landsliðsins – sem varð Evrópu-
meistari undir stjórn Dags
Sigurðssonar fyrir fjórum árum.
Sigurganga Kiel í tólf ár und-
ir stjórn Alfreðs er nánast eins-
dæmi í þýskum handknattleik og
sú virðing sem hann nýtur þar í
landi er nánast takmarkalaus.
Þýski landsliðsmarkvörðurinn
Johannes Bitter sagði einmitt í
gær að Ólafur Stefánsson væri
besta örvhenta skytta sem hann
hefði mætt á ferlinum í Þýska-
landi.
Íslendingar eru nú við störf
hjá níu af átján liðum þýsku 1.
deildarinnar, bestu deildar
heims, ýmist sem leikmenn eða
þjálfarar.
Í það minnsta þrír af yngri
landsliðsmönnum Íslands munu
ganga til liðs við félög í deildinni
í sumar.
Og þetta er ekkert nýtt.
Menn eins og Axel Axelsson,
Ólafur H. Jónsson og Geir Hall-
steinsson gerðu garðinn frægan
í þýska handboltanum fyrir nærri
því hálfri öld og Jóhann Ingi
Gunnarsson tók ungur við liði
Kiel og gerði góða hluti sem
þjálfari. Íslendingar eru á heima-
velli í þýska handboltanum, það
er nokkuð ljóst.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
ÞÝSKALAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta var frábært, það hefur verið
draumur minn síðan ég var í sjötta
flokki í Keflavík að spila í einhverri
af bestu deildum í heimi og það er
orðið að veruleika,“ sagði Samúel
Kári Friðjónsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, við Morgunblaðið í
gær.
Hann lék sinn fyrsta leik með
Paderborn í þýsku Bundesligunni á
föstudagskvöldið og óhætt er að
segja að hann hafi byrjað á toppn-
um því leikurinn var gegn stórliði
Bayern München, á Allianz-
leikvanginum frammi fyrir 75 þús-
und áhorfendum. Bayern vann
nauman sigur á nýliðunum, 3:2, með
marki frá Robert Lewandowski á
88. mínútu.
„Þetta voru einhverjar fimmtán
mínútur sem ég fékk, ég kom inn á í
mína stöðu sem djúpur miðjumaður,
og mér gekk bara vel. Við áttum
mjög góðan leik og vorum nærri því
að fá stig en það slokknaði á okkur í
tíu sekúndur undir lokin og það
dugði Lewandowski til að skora. Að
sjálfsögðu er lið Bayern gríðarlega
sterkt og það sást vel gegn Chelsea
í Meistaradeildinni,“ sagði Samúel,
en Bayern vann þann leik á afar
sannfærandi hátt, 3:0, í London í
fyrrakvöld.
Hér eru allir leikmenn góðir
Hann kom til Paderborn um ára-
mótin frá Noregi þar sem hann lék
með Vålerenga og var í láni hjá Vik-
ing í Stavanger á síðasta ári. Sam-
úel kann mjög vel við sig í þessari
150 þúsund manna borg sem er í
Þýskalandi miðju, um 100 km aust-
ur af Dortmund.
„Ég er búinn að vera hérna í Pa-
derborn í tvo mánuði og hef náð að
aðlagast mjög vel. Ég er kominn á
góðan stað, mér líður vel, og sé fram
á að fá fleiri mínútur í liðinu á næst-
unni. Markmiðið er að sjálfsögðu að
festa sig í liðinu, samkeppnin er
hörð en það fá allir sinn séns og
maður verður að nýta þau tækifæri
sem gefast. Í þessari deild eru allir
leikmenn góðir og það er því frá-
bært tækifæri til að verða sjálfur
betri leikmaður,“ sagði Samúel sem
lék 16 ára með Keflavík í efstu
deild, var síðan þrjú ár í röðum
Reading á Englandi en lék síðan í
Noregi í þrjú og hálft ár.
Spurður um viðbrigðin að koma
úr norska fótboltanum yfir í þann
þýska sagði Keflvíkingurinn að
fyrst og fremst væri þetta bara fót-
bolti. „En auðvitað eru leikmenn-
irnir hérna betri en í Noregi og
hraðinn miklu meiri. Þetta er allt á
hærra stigi.“
Lykilleikir fram undan
Paderborn er nýliði í Bundeslig-
unni og hefur nær alltaf leikið í
neðri deildunum í Þýskalandi. Liðið
er neðst en hefur náð góðum úrslit-
um undanfarnar vikur.
„Liðið kom upp úr B-deildinni
sem er mjög öflugt því B-deildin
hérna er gríðarlega sterk, svipuð
og á Englandi. Við erum vissulega
neðstir eins og er en það er stutt í
liðin sem eru fyrir ofan okkur.
Þetta getur ráðist í næstu leikjum,
sem eru gegn Mainz, Köln og Düs-
seldorf, sem eru öll rétt fyrir ofan
okkur í deildinni. Ég er með samn-
ing í tvö og hálft ár, ef við föllum
verður bara settur kraftur í að fara
aftur upp en við erum klárir í það
sem eftir er af tímabilinu og það
kemur ekkert annað til greina en
að halda sætinu í deildinni.“
Samúel er afar ánægður með allt
hjá Paderborn. „Já, þetta er mjög
flottur klúbbur og hér er allt til alls.
Frábærir æfingavellir, frábærir
þjálfarar, gæðaleikmenn, og svo er
þetta mikill fjölskylduklúbbur.“
Tækifæri til að verða betri
Samúel er 24 ára gamall, var um
skeið fyrirliði 21-árs landsliðsins og
á að baki 43 leiki með yngri lands-
liðum Íslands. Hann hefur verið í
landsliðshópnum undanfarin tvö ár,
eða frá vináttuleikjunum tveimur í
Indónesíu í ársbyrjun 2018. Hann
var í 23 manna hópnum á HM í
Rússlandi 2018 og hefur komið við
sögu í einum leik í undankeppni
EM 2020. A-landsleikirnir hans eru
átta talsins, sjö vináttuleikir og svo
leikurinn í Moldóvu í nóvember.
Spurður hvort það ætti ekki að
hjálpa honum að festa sig í sessi í
landsliðinu að vera kominn í þýsku
Bundesliguna svaraði Samúel að
það væri undir sér sjálfum komið.
„Við erum með frábæra leik-
menn í landsliðinu sem hafa spilað í
sterkum deildum í áraraðir. Það
sem hjálpar mér að vera kominn í
þessa deild er að ég hef tækifæri til
að verða betri leikmaður og eiga þá
meiri möguleika á að vinna mér
sæti í landsliðinu. En þetta er allt
saman undir sjálfum mér komið,“
sagði Samúel Kári Friðjónsson.
Undir mér sjálfum komið
Samúel Kári hóf ferilinn í Þýskalandi með leik gegn Bayern München
Frábært tækifæri til að verða betri leikmaður, segir Keflvíkingurinn
AFP
München Samúel Kári Friðjónsson, bláklæddur fyrir miðri mynd, við hliðina á brosmildum Thomasi Müller, lands-
liðsmanni Þýskalands og leikmanni Bayern um árabil, eftir leik Bayern og Paderborn á dögunum.
Ögmundur Kristinsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, hefur
framlengt samning sinn við Larissa í
Grikklandi um eitt ár, eða til vorsins
2021, en félagið skýrði frá þessu í
gær. Ögmundur kom til Larissa frá
Excelsior í Hollandi sumarið 2018 og
hefur spilað alla leiki liðsins í grísku
úrvalsdeildinni frá þeim tíma, 55
talsins. Larissa er í ellefta sæti af
fjórtán liðum en Ögmundur, sem er
þrítugur og lék áður með Hammar-
by í Svíþjóð og Randers í Danmörku,
hefur haldið markinu hreinu í sjö
leikjum af 25 á tímabilinu.
Ögmundur áfram
hjá Larissa
Ljósmynd/Larissa
Grikkland Ögmundur Kristinsson
heldur áfram hjá Larissa.
Hildur Björg
Kjartansdóttir,
landsliðskona í
körfuknattleik
og leikmaður KR
í úrvalsdeild
kvenna, verður
frá næstu sex
vikurnar vegna
meiðsla. Hildur
fékk höfuðhögg í
upphitun fyrir
bikarúrslitaleikinn gegn Skalla-
grími á dögunum og aftur í leik
gegn Haukum í deildinni stuttu
síðar. Í leiknum gegn Haukum fékk
hún hné í kinnbeinið í baráttu um
lausan bolta sem varð til þess að
tvær sprungur mynduðust.
Í fyrstu var talið að hún myndi
missa af restinni af tímabilinu en nú
telja læknar að hún gæti verið búin
að ná sér góðri fyrir úrslitakeppn-
ina, samkvæmt frétt á heimasíðu
KR.
Hildur átti sannkallaðan stórleik
gegn Val í undanúrslitum bikar-
keppninnar og skoraði 37 stig í
mögnuðum sigri KR á Íslandsmeist-
urunum. Hún er stigahæsti Íslend-
ingurinn í Dominos-deild kvenna
með 302 stig í 22 leikjum með KR-
ingum.
Hildur er
frá keppni
næstu vikur
Hildur Björg
Kjartansdóttir
Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi
vann í gær sigur í svigkeppni Evrópumótaraðar
IPC, Alþjóðaíþróttasambands fatlaðra, sem nú
stendur yfir í Zagreb í Króatíu.
Hilmar var með samanlagðan tíma upp á 1:44,60
mínútu og var rétt á undan Austurríkismanninum
Thomas Grochar sem lauk keppni á 1:45,00 mín-
útu.
Aðstæður í Zagreb voru nokkuð krefjandi, en
það er lítill snjór í fjöllunum og á meðan seinni
ferð dagsins stóð yfir í gær gerði talsverða rign-
ingu með þrumuveðri.
Hilmar keppir ekki í dag en á morgun og laugardag er stefnan
sett á að keppa í svigi og stórsvigi og ljúka þar með Evrópumóta-
röðinni í tæknigreinum. Eins og sakir standa er það aðstæðum háð
hvort svig eða stórsvig verður á undan.
Um þessar mundir er Hilmar Snær með forystuna á Evrópumóta-
röðinni í svigi og samanlögðu og er í öðru sæti í stórsvigi.
Hilmar með enn einn sigur
Hilmar Snær
Örvarsson
Erlingur Richardsson verður áfram þjálfari hollenska
karlalandsliðsins, en hann skrifaði í gær undir samning
við hollenska handknattleikssambandið til ársins 2022.
Erlingur tók við Hollendingum í október árið 2017 og
varð fyrsti þjálfarinn til að stýra Hollendingum inn í
lokakeppni Evrópumóts karla, en Holland lék í riðli í
Þrándheimi á EM í byrjun árs. Hollendingar unnu þar
Letta en töpuðu fyrir Þjóðverjum og Spánverjum og
enduðu í sautjánda sæti af 24 liðum.
Erlingur er einnig þjálfari karlaliðs ÍBV og hefur því
nóg að gera. Næsta verkefni Erlings með landsliðið er
umspil fyrir HM í Egyptalandi, sem fer fram í júní, en
Hollendingar leika þá eins og Íslendingar heima og heiman um keppnis-
réttinn á HM 2021.
„Við þurfum að halda áfram á þeirri braut sem við höfum verið síðustu
ár ef við ætlum að komast lengra. Að komast á EM 2020 var fyrsta skrefið
og nú þurfum við að halda áfram,“ var haft eftir Erlingi í fréttatilkynningu
hollenska sambandsins í dag.
Erlingur áfram með Holland
Erlingur
Richardsson
Theódór Elmar Bjarnason skoraði í
gær annað mark sitt í síðustu þremur
leikjum Akhisarspor í tyrknesku B-
deildinni í knattspyrnu, en lið hans
vann þá sigur á Giresunspor á heima-
velli, 2:0. Elmar hafði ekki skorað á
tímabilinu fram að því, en hann kom
til félagsins frá Gazisehir í sömu deild
síðasta sumar, eftir að hafa hjálpað
því upp í úrvalsdeildina. Elmar er í
sömu baráttu með Akhisarspor, sem
er í sjötta sæti eftir 24 umferðir af 34,
en tvö efstu liðin fara beint upp og
liðin í þriðja til sjötta sæti komast í
umspil um eitt sæti.
Annað mark Elm-
ars í mánuðinum
AFP
Tyrkland Theódór Elmar Bjarnason
er í toppbaráttu með Akhisarspor.