Morgunblaðið - 27.02.2020, Qupperneq 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Skjaldborg Hátíð íslenskra heimild-
armynda, sem árlega er haldin á
Patreksfirði, hlaut í gær Eyrarrós-
ina, viðurkenningu fyrir framúr-
skarandi menningarverkefni utan
höfuðborgarsvæðisins, sem var veitt
í sextánda sinn í gær við hátíðlega
athöfn á Bessastöðum. Eliza Reid,
forsetafrú og verndari Eyrarrósar-
innar, afhenti verðlaunin. Aðstand-
endur hátíðarinnar voru að vonum
hæstánægðar þegar þær tóku á móti
viðurkenningunni og verðlaunafé,
tveimur milljónum króna, auk verð-
launagrips sem Friðrik Steinn Frið-
riksson hannaði.
„Við erum svakalega glaðar. Það
er erfitt maraþon að halda úti svona
hátíð og þessi viðurkenning er mikil-
væg hvatning,“ sagði Helga Rakel
Rafnsdóttir eftir afhendinguna í gær
en þær Kristín Andrea Þórðardóttir
eru framkvæmdastýrur Skjald-
borgarhátíðarinnar og tóku við verð-
laununum.
„Nú er mögulega hægt að borga
fólki smá aur fyrir að taka þátt í að
búa næstu hátíð til,“ bætti Helga
Rakel við en næsta hátíð, sú fjór-
tánda, verður haldin í júní. Helga
Rakel sagði einnig að verðlaunin
væru nefnilega bæði peningur og
vindur í seglin.
Góður grasrótarandi
Helga Rakel sagði það alltaf mikla
vinnu að safna styrkjum og fleyta há-
tíðinni frá einu ári til annars en hún
hefði þó frábæra og mikilvæga bak-
hjarla. Hún taldi upp Vesturbyggð,
Kvikmyndamiðstöð, Menningarráð
Vestfjarða, flugfélagið Erni, gisti-
heimilin á staðnum og fyrirtækin sem
styrkja verðlaunin. „Listinn er lang-
ur, margir koma að hátíðinni og
finnst það skemmtilegt. Það er mikill
og góður grasrótarandi kringum há-
tíðina. Þeir sem byrjuðu með hana
bjuggu til sannkallaða töfraformúlu.
Svo verður að hrósa Lionsmönnum
á Patró sem reka kvikmyndahúsið
mjög myndarlega.“
Helga Rakel sagði ánægjulegt að
allir helstu heimildakvikmynda-
gerðarmenn landsins miðuðu við að
frumsýna verk sín á hátíðinni. Og
þær framkvæmdastýrurnar hafa
sjálfar komið að metnaðarfullum
kvikmyndaverkum og sækja báðar
um að sýna nýjar myndir sínar á há-
tíðinni í sumar.
Kraftmikil uppskeruhátíð
Að þessu sinni bárust 25 umsóknir
um Eyrarrósina 2020 hvaðanæva af
landinu og voru sex verkefni valin á
Eyrarrósarlistann. Þau voru Júlíana
– hátíð sögu og bóka, í Stykkishólmi;
Kakalaskáli í Skagafirði; Menn-
ingarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglu-
firði; Plan B Art Festival í Borgar-
byggð; Reykholtshátíð og Skjald-
borg. Auk Skjaldborgar hlutu
Kakalaskáli og Menningarstarf í Al-
þýðuhúsinu á Siglufirði formlega til-
nefningu til verðlaunanna. Hvort
verkefnið um sig fær verðlaunafé að
upphæð 500.000 kr.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni
Listahátíðar, Byggðastofnunar og
Air Iceland Connect.
Í upplýsingum frá Listahátíð um
sigurvegarann segir að Skjaldborg –
hátíð íslenskra heimildamynda á Pat-
reksfirði, sé kraftmikil uppskeru-
hátíð heimildamyndafólks og eina ís-
lenska kvikmyndahátíðin sem er
sérhæfð í að frumsýna íslenskar
heimildamyndir. „Reynsluboltar í
faginu, byrjendur og hinn almenni
áhorfandi koma saman á hátíðinni í
skemmtilegu og skapandi samtali
sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir
þróun og miðlun íslenskrar heim-
ildamyndagerðar. Auk frumsýninga
eru á dagskrá vinnustofur, hliðardag-
skrá og skemmtanahald sem setur
mikinn svip á Patreksfjörð meðan há-
tíðin varir.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleði Aðstandendur Skjaldborgarhátíðarinnar með verðlaunagripinn við afhendinguna á Bessastöðum í gær.
Viðurkenningin er
mikilvæg hvatning
Skjaldborgarhátíðin á Patreksfirði hreppti Eyrarrósina
Hin umfangsmikla sýning á verkum
eftir Leonardo da Vinci, samtíðar-
menn hans og félaga, sem stóð yfir í
Louvre-safninu í París undanfarna
fjóra mánuði undir heitinu Leon-
ardo, dró að sér sannkallaðan met-
fjölda gesta. Stjórnendur Louvre
sendu frá sér tilkynningu þar sem
segir að rúm milljón manna hafi séð
sýninguna, alls 1.071.840 gestir.
Fyrra aðsóknarmet var sett á
yfirlitssýningu með verkum franska
málarans Eugène Delacroix fyrir
tveimur árum en þá sýningu sáu um
540 þúsund manns, eða helmingi
færri gestir en skoðuðu Leonardo-
sýninguna sem sett var upp í tilefni
af því að 500 ár voru í fyrra frá láti
meistarans.
Þess má geta að Louvre er vinsæl-
asta safn jarðar en um níu milljón
gestir heimsóttu það í fyrra.
Louvre-safnið á fleiri málverk eft-
ir da Vinci en nokkurt annað safn,
fjögur alls og er Mona Lisa þeirra
fræagast en hún var ekki á sjálfri da
Vinci-sýningunni heldur hékk í sín-
um sal í Denon-álmunni. Alls voru
þá í safninu 14 af þeim 17 mál-
verkum sem eignuð eru meistar-
anum.
Til að gefa sem flestum kost á að
sjá sýninguna var safnið haft opið
allan sólarhringinn um síðustu helgi
og aðgangur á sýninguna ókeypis.
Margir nýttu sér það, einkum ungir
Frakkar, og voru salirnir fullir af
gestum alla nóttina.
AFP
Örtröð Gestir fylltu sali sýningarinnar næturlangt um liðna helgi.
Nær 1,1 milljón
gesta sá da Vinci
Metaðsókn á Leonardo í Louvre
Myndun Gestur myndar málverk da
Vincis, La Belle Ferronniere.
Margræð Gestur speglast í glerinu
sem hlífði höggmynd á sýningunni.
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646