Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
„Ef ég á að segja alveg eins og er þá
veit ég ekki hvernig mér hefur tekist
að halda mér í svona góðu raddlegu
formi, því það væri synd að segja að
ég hefði gengið með trefil allt mitt líf.
Ég hef aldrei sett upp trefil. Röddin
hefur bara vanist því að hanga á þess-
um rugludalli,“ sagði Raggi kíminn
við blaðamann árið 2013.
Nú hefur söngvarinn ástsæli kvatt
eftir langa ævi og farsælan feril, en
Raggi söng fyrir þjóðina í 65 ár, síð-
ast í Hörpu í september í fyrra í til-
efni af 85 ára afmælinu. Í raun hafði
hann þá sungið í 70 ár því hann byrj-
aði að syngja aðeins fimmtán ára
gamall.
Raggi gaf út lagið Allar mínar göt-
ur eftir Halla Reynis í desember á
síðasta ári og má því segja að hann
hafi sungið nánast fram á síðasta dag.
„Ferillinn hefur verið ótrúlegt
ævintýri í mannsaldur, ég hef unnið
með dásamlegu fólki,“ sagði goð-
sögnin fyrir síðustu tónleikana.
Óhætt er að segja að hann hafi
sungið sig inn í hjörtu landsmanna
sem nú kveðja að leiðarlokum.
Morgunblaðið/Eggert
Kveður Raggi Bjarna og Katrín Halldóra Sigurðardóttir sungu saman í
Hörpu í sýningunni „Með sjötíu ár að baki“. Þar söng hinn 85 ára gamli
Raggi Bjarna opinberlega í síðasta sinn og kvaddi stóra sviðið.
Trommarinn Kornungur trommari á fyrstu æfingunni með
Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Frá vinstri: Guðjón Pálsson,
Óskar Cortes, Raggi Bjarna, Bjarni Böðvarsson, Jósep Felzmann,
Jónas Dagbjartsson, Vilhjálmur Guðjónsson og Einar Waage.
Raggi Bjarna
kveður sviðið
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Ómar
Afinn Afastrákarnir Aron Ragnar
og Alex Evan knúsa afa sinn.
Hjónin Helle Birthe og Raggi Bjarna á sínum yngri árum.
Morgunblaðið/Eggert
Afmæli Í 75 ára afmælinu var mikil veisla í Laugardalshöll.
Kona hans, Helle Birthe Bjarnason, mætti að sjálfsögðu.
Síungur Raggi Bjarna spilaði með ýmsum tónlistarmönnum á ferli sínum,
ungum sem öldnum. Hér syngur hann á tónleikum með Retro Stefson.
Morgunblaðið/Eggert
Töffarar Raggi Bjarna, Bubbi og Garðar Thór Cortes sungu saman.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveifla Raggi Bjarna og Borgardætur sjást hér í góðri sveiflu við upptökur.
Leiðarlok Einn ástsælasti söngvari
landsins, Raggi Bjarna, er látinn 85 ára
að aldri. Hann var þekktur fyrir fjöruga
framkomu og átti hann það til að sprella
fyrir framan ljósmyndavélina.