Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
VANTAR ÞIG JÁRN?
- MUNNÚÐI SEM VIRKAR
Munnsprey tryggir hámarks upptöku
Fer ekki í gegnummeltingarveg og
veldur því ekki hægðatregðu
Það eru þó nokkur vel þekkt og algeng einkenni
járnskorts sem gott er að vera vakandi yfir:
n Orkuleysi
n Svimi & slappleiki
n Hjartsláttartruflanir
n Föl húð
n Andþyngsli
n Minni mótstaða gegn veikindum
n Handa- og fótkuldi
brotið niður og er nú horfið af
sjónarsviðinu en í framhaldinu var
hafist handa við að undirbyggja og
grjótverja vegstæði í sjó fram aust-
an við Nesveg auk landfyllingar og
er það verk í höndum Borgarverks.
Skíðalyftan ofan við bæinn
var ræst í upphafi mánaðar og hefur
þegar þetta er skrifað verið opin dag
hvern skíðaiðkendum og útivistar-
fólki til mikillar ánægju. Áform eru
uppi um frekari uppbyggingu skíða-
svæðisins og þá að setja upp nýja
lyftu ofan við núverandi skíðasvæði í
Eldhömrum og jafnframt að leggja
þangað veg, er gert ráð fyrir slíkum
framkvæmdum í nýju aðalskipulagi
sem nú er í staðfestingarferli. Að
þessu er unnið á vegum Skíðafélags
Snæfellsnes sem stjórnað er af ungu
og drífandi fólki.
Hið árlega Kútmagakvöld
Lionsklúbbs Grundarfjarðar var
haldið fyrir skemmstu og laðaði að
sér fjölda fólks af Nesinu. Auk kút-
maga troðins lifur var veisluborðið
fjölbreytt fiskréttahlaðborð sem á
sér fáa líka. Því til viðbótar var hið
vinsæla happdrætti í gangi og fjöldi
vinninga gefinn af þjónustuaðilum
víðsvegar að. Veislustjóri var hinn
vinsæli útvarpsmaður og óperu-
söngvari Ásgeir Páll Ágústsson. Af-
rakstur kvöldsins rann að þessu
sinni til að styrkja æskulýðs- og
íþróttastarf í Grundarfirði og Snæ-
fellsnesi. Þessa styrki hlutu Ung-
mennafélag Grundarfjarðar, Skíða-
félag Snæfellsness, Skotveiðifélagið
Skotgrund með félagsmenn af öllu
Snæfellsnesi og Klifurfell.
Ekkert lát er á straumi ferða-
langa sem mæta hér hvern dag í
misstórum rútum frá Reykjavík til
að skoða „ Foss og Fell“ og mynda í
bak og fyrir. Þessir ferðalangar
sjást síðan í löngum biðröðum við
salernið í Kjörbúðinni en í haust var
lokað aðgangi að salernum í Sam-
komuhúsinu. Hvalaskoðunarferðir á
vegum Láki tours hafa gengið vel þá
daga sem gefið hefur á sjó og eru
greinilega mjög eftirsóttar.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Framkvæmdir Gamla beinaverksmiðjuhúsið í Grundarfjarðarhöfn hefur verið brotið niður og er nú horfið.
Hafnargarðurinn lengdur
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfirði
Framkvæmdir við lengingu
Norðurgarðsins eru töluvert á veg
komnar en það er Borgarverk úr
Borgarnesi sem sér um fram-
kvæmdina. Fyrsta grjóthlassinu var
sturtað í uppfyllingu vegna leng-
ingar Norðurgarðs 19. nóvember sl.
og gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdum við þennan verkhluta
ljúki fyrir 1. júní 2020. Fyrir nokkru
var hafist handa við að reka niður
stálþil og hefur það verið nokkuð taf-
samt vegna veðurs og tæknilegra
erfiðleika en miðar nú hægt en
örugglega eftir að verktaki endur-
nýjaði lofthamarinn sem rekur á
eftir stálinu niður í sjávarbotninn en
sá nýi er miklum mun öflugri.
Fleira er að gerast á hafnar-
svæðinu, fyrir nokkrum vikum var
gamla beinaverksmiðjuhúsið, sem
þar hafði staðið autt til margra ára,
Engar sérreglur gilda um fiskeldi í
smáum stíl, eins og stundað er víða
um land. Þetta segir Matvælastofn-
un, en í Morgunblaðinu á fimmtudag
gagnrýndi Bjarni Óskarsson á Völl-
um í Svarfaðardal að stofnunin setti
eldi sem hann stundar á jörð sinni
ströng skilyrði. Er þess krafist að
hann greiði tæplega hálfa milljón
króna í leyfisgjöld. Matvælastofnun
bendir hins vegar á að á Völlum séu
um 1.000 bleikjur, sem fluttar eru frá
eldisstöð sem seiði í tjörnina og eru
fiskarnir síðan fóðraðir þar. Slík
starfsemi falli undir skilgreiningar á
fiskeldi í lögum og reglum.
Óháð sælkerabúð
og matvælavinnslu
„Ekki liggur fyrir grunur um
hættu eða smit vegna eldisins og er
útgáfa rekstrarleyfis í raun óháð
þeim þáttum sem snúa að löggjöf um
fisksjúkdóma eða matvælaöryggi.
Eldisstarfsemi er hins vegar háð
eftirliti eftir því sem við á og lög og
reglur segja til um,“ segir í skriflegu
svari frá stofnuninni. Þar kemur
einnig fram að engin áhrif hafi í
þessu máli að á Völlum starfrækja
ábúendur matvælavinnslu og sæl-
keraverslun. Veiting rekstrarleyfa í
fiskeldi sé óháð kröfum í löggjöf um
matvælavinnslu og það sama eigi við
um verslun og viðskipti.
„Matvælastofnun er því að sinna
skyldum sínum, þar sem í lögum um
fiskeldi kemur skýrt fram að til
starfrækslu fiskeldisstöðva þurfi
rekstrarleyfi sem stofnun veitir og
starfsleyfi sem Umhverfisstofnun
veitir. Óumdeilt er að ekkert
rekstrarleyfi hefur verið gefið út fyr-
ir þessari starfsemi,“ segir í svari.
Þar er tekið fram að skv. lögum beri
umsækjendum um rekstrarleyfi að
líka greiða lágmarksgjald til Mast
vegna kostnaðar sem þar fellur
vegna afgreiðslu mála viðkomandi.
Um bleikjueldið á Völlum og af-
skipti af því segist Matvælastofnun
byggja aðgerðir sínar á skýrum
lagakröfum. Ekki sé hægt að heimila
starfsemi án rekstrarleyfis.
Verklag í þróun
„Að gefnu tilefni má einnig geta
þess að verklag stofnunarinnar er
stöðugt í þróun eins og vera ber.
Þetta mál má hins vegar rekja til
þess að stofnuninni er falið að fram-
fylgja gildandi löggjöf um fiskeldi,
þar sem engar undanþágur eru varð-
andi umfang eldis,“ segir í svari Mat-
vælastofnunar.
Fiskeldið er háð
eftirliti og lögum
Bókstafur gildir Matvælastofnun
segir lágmarksgjald vera innheimt
Svarfaðardalur Í þessum tjörnum á Bakka eru bleikjurnar aldar.
Eldisreglur
» Engar sérreglur gilda um
fiskeldi í smáum stíl.
» Ekki sé hægt að heimila
starfsemi án rekstrarleyfis.
» Eldisstarfsemi er háð eftir-
liti eftir því sem við á og lög og
reglur segja til um.
» Skýrar lagakröfur
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is