Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Mikil sala!
Góður sölutími framundan.
Óskum eftir öllum tegundum
eigna á skrá.
Vatíkanið staðfestir smit
Meira en 100.000 manns í rúmlega 90 ríkjum hafa smitast af kórónuveirunni
Tilfellum fjölgað ört á síðustu dögum Sóttkvínni í Hubei kann að ljúka brátt
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnvöld í Páfagarði staðfestu í
gær að fyrsta tilfelli kórónuveiru-
faraldursins hefði komið þar upp, en
nú hafa rúmlega 100.000 manns í 91
ríki smitast af veirunni. Ákváðu
yfirvöld þar að loka skrifstofum og
grípa til annarra sóttvarna, en um
450 manns búa að jafnaði innan Vat-
íkansins í Róm.
Frans páfi ákvað í kjölfarið að
senda frá sér samúðarkveðju til
allra sem hefðu veikst af kórónu-
veirunni, sem og þeirra heilbrigðis-
starfsmanna sem nú væru að glíma
við afleiðingar farsóttarinnar.
Páfinn hefur sjálfur verið veikur
undanfarna daga, en rannsóknir
hafa staðfest að einungis var um
kvef að ræða.
Mikil aukning síðustu daga
Stjórnvöld í Serbíu, Slóvakíu,
Perú og Bútan tilkynntu einnig að
þau hefðu orðið vör við kórónuveir-
una innan landamæra sinna. Þá hafa
rúmlega 3.400 manns látist af völd-
um kórónuveirunnar.
Kína hefur sem fyrr langflest til-
felli sem og dauðsföll af völdum veir-
unnar, en stjórnvöld þar segja sjúk-
dóminn vera í rénun. Annars staðar
hefur tilfellum fjölgað ört síðustu
daga, meðal annars í Íran, sem til-
kynnti um 1.234 ný tilfelli í gær. Þá
hefur tilfellum einnig fjölgað ört á
Ítalíu, en þar létust meira en hundr-
að manns í vikunni af völdum veir-
unnar. 49 létust þar í gær.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu til-
kynntu sömuleiðis um fjölgun til-
fella, en þar hafa nú rúmlega 6.300
smitast af veirunni og 42 látist.
Stjórnvöld í Kína gáfu til kynna í
gær að sóttkvíin í Hubei-héraði, sem
náð hefur til um 56 milljóna manna,
tæki brátt enda. Sóttkvíin var sett á
í lok janúar, og hefur nýjum tilfell-
um veirunnar fækkað mjög í Hubei-
héraði sem og Wuhan-borg, þar sem
faraldurinn kom fyrst upp.
Hyggjast sum héruð í Kína opna
skóla á ný í næstu viku.
Aukin fjárveiting til sóttvarna
Í Bandaríkjunum hafa rúmlega
200 smitast og 12 látist af völdum
veirunnar. Donald Trump Banda-
ríkjaforseti samþykkti í gær aukna
fjárveitingu þingsins upp á 8,3
milljarða bandaríkjadala til þess að
verjast kórónuveirunni. Þá heim-
sótti Trump í gær miðstöð sótt-
varna í Bandaríkjunum, CDC í Atl-
anta, en heimsókn forsetans hafði
áður verið frestað vegna gruns um
kórónuveirusmit þar.
Ákvörðunin um fjárveitinguna
kom á sama tíma og um 3.500 far-
þegar á skemmtiferðaskipinu
Grand Princess, sem nú situr und-
an ströndum San Francisco, biðu
niðurstöðu prófa til að staðfesta
hvort veiran hefði sýkt einhvern
um borð, en ástæða þótti til að
setja skipið í sóttkví eftir að tveir
farþegar, sem ferðuðust með því í
fyrri ferð, greindust með faraldur-
inn.
Trump hvatti einnig seðlabanka
Bandaríkjanna til þess að lækka
stýrivexti sína aftur, en banka-
stjórn hans ákvað neyðarlækkun á
þriðjudaginn vegna faraldursins,
en verðbréfamarkaðurinn í Wall
Street hefur fallið nokkuð á síðustu
dögum. Sú þróun hélt áfram í gær,
en Dow Jones-vísitalan lækkaði um
2,2% við opnun markaða vestan-
hafs og NASDAQ féll um 2,8%.
Fækka flugferðum sínum
Áhrifa veirunnar verður einnig
vart í ferðaþjónustu, en þýska flug-
félagið Lufthansa tilkynnti í gær
að það hygðist fækka ferðum sín-
um um helming á næstu vikum til
þess að mæta minnkaðri eftirspurn
vegna faraldursins. Félagið hyggst
ekki fljúga til Írans eða Kína fyrr
en í apríl í fyrsta lagi, og ferðir þess
til Ísraels féllu niður eftir að Ísr-
aelsríki ákvað að banna komur er-
lendra farþega frá fimm Evrópu-
ríkjum fyrr í vikunni.
Alþjóðaferðamálastofnunin,
UNWTO, tilkynnti í gær að ferða-
lögum milli landa myndi líklega
fækka um 3% á milli ára á þessu ári
vegna faraldursins, en fyrri spár
höfðu gert ráð fyrir 3% aukningu á
ferðalögum.
Sagði í tilkynningu stofnunar-
innar að á bilinu 30-50 milljarðar
bandaríkjadala myndu tapast
vegna fækkunarinnar. Áætlar
stofnunin á þessari stundu að Asíu-
og Kyrrahafsríki muni verða verst
úti vegna fækkunar ferðalanga, en
sagði hún jafnframt að of snemmt
væri að spá um afleiðingar farald-
ursins í öðrum heimshlutum.
AFP
Kórónuveira Suðurkóreskir hermenn sótthreinsa alþjóðaflugvöllinn í Daegu í gær, en Suður-Kórea hefur orðið illa
fyrir barðinu á kórónuveirufaraldrinum. Rúmlega 6.300 tilfelli hafa nú komið upp þar í landi, flest í Daegu.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsríkjanna 27 funduðu í gær í
Zagreb, höfuðborg Króatíu, og
ræddu þar sérstaklega nýtt vopna-
hlé í sýrlenska
borgarastríðinu,
sem Rússar og
Tyrkir komu á.
Josep Borrell,
utanríkismála-
stjóri sambands-
ins, sagðist
ánægður með að
náðst hefði sam-
komulag um
vopnahlé, en að
það þyrfti að sjá
til hvort það næði að halda.
Kölluðu ráðherrarnir eftir því í
ályktun fundarins að stríðandi fylk-
ingar myndu leyfa meiri neyðar-
aðstoð og hjálpargögnum að berast
til þeirra, sem hafa orðið fyrir
barðinu á átökum síðustu mánuði í
Idlib-héraði, síðasta vígi uppreisnar-
manna í Sýrlandi.
Evrópusambandið hefur sam-
þykkt neyðaraðstoð upp á 60 millj-
ónir evra fyrir héraðið, en Borrell
sagði að það væri auðveldara að
veita fjármagn en að koma því á
rétta staði, sér í lagi þegar aðstoðin
fæli í sér að flytja vistir til stríðs-
hrjáðra svæða um miðjan vetur.
Opna ekki landamærin
Í yfirlýsingu ráðherranna var
einnig vikið sérstaklega að ástand-
inu á landamærum Grikklands og
Tyrklands, en þar hafa nú safnast
saman fjölmargir sýrlenskir flótta-
menn eftir að Tyrkir ákváðu að
hindra ekki lengur för þeirra til Evr-
ópu. Sögðu utanríkisráðherrarnir að
þeir höfnuðu tilraunum Tyrklands
til þess að beita þrýstingi með flótta-
mönnum til þess að ná fram pólitísk-
um markmiðum sínum.
Sögðu ráðherrarnir að ólögleg för
fólks yfir landamærin yrði ekki um-
borin og að aðildarríkin myndu
grípa til allra löglegra ráða.
Vilja auka
mannúðar-
aðstoð
Josep
Borrell
ESB-ríkin funda
um Sýrlandsstríðið
sér að forseti landsins megi bara
sitja í tvö kjörtímabil. „Það er ekki
eins og ég vilji ekki vera lengur við
völd, ég elska starfið mitt,“ sagði
Pútín en bætti við að hann teldi það
geta eyðilagt Rússland ef hann
reyndi að fara á svig við landslög til
þess að halda völdum.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
lýsti því yfir í gær að hann ætlaði
sér ekki að reyna að framlengja
valdatíma sinn eftir að núverandi
kjörtímabili lyki.
Pútín ákvað í janúar að leggja
fram breytingar á stjórnarskrá
Rússlands, sem fela meðal annars í
Pútín hyggst ekki framlengja valdatímann
RÚSSLAND