Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020 41
Starfið felst í almennri stjórnun auk eftirlits með
umhverfis- og mengunarvörnum, matvælum og
hollustuháttum í fyrirtækjum og stofnunum í
samræmi við lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir, lög um matvæli nr. 93/1995,
reglugerðum samkvæmt þeim og samþykktum
heilbrigðisnefndar. Ennfremur felst starfið í útgáfu
starfsleyfa, gerð umsagna, fræðslu og svörun
vegna kvartana og ábendinga.
Framkvæmdastjóri er í forsvari í samskiptum við
Matvælastofnun, Umhverfisstofnun og aðrar
opinberar stofnanir. Framkvæmdastjóri starfar
undir stjórn heilbrigðisnefndar í samræmi við lög
nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Launakjör eru samkvæmt sérstökum samningi við
stjórn.
Framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands
Heilbrigðisnefnd Vesturlands auglýsir eftir framkvæmdastjóra til að stýra starfsemi
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Æskilegt er að viðkomandi búi í nágrenni starfsstöðvar við
Innrimel 3 í Hvalfjarðarsveit.
Umsóknir skulu sendar til Ólafs Adolfssonar formanns Heilbrigðisnefndar Vesturlands á netfangið:
olafur.adolfsson@akranes.is. Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og afrit af prófskírteini. Umsóknarfrestur
er til og með 15. mars n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar á netfanginu heilbrigdiseftirlit@hev.is eða í síma 894-5030.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði verkfræði- eða
raunvísinda.
• Stjórnunarreynsla nauðsynleg.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
• Geta unnið vel undir álagi.
• Jákvæðni, samviskusemi og vilji til að takast á
við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
• Færni til að setja fram ritað mál á greinargóðri
íslensku.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Reynsla af eftirlitsstörfum samkvæmt gildandi
lögum, reglum og leiðbeiningum og reynsla í
notkun á hugbúnaði til skráninga og eftirfylgni.
• Réttindi til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi.
• Ökuréttindi. Hrein sakaskrá.
Ath. að vinnustaðurinn er reyklaus.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Silja Jóhannesdóttir sölustjóri í
síma 569 1170 eða í tölvupósti á netfangið siljaj@mbl.is
Með allar umsóknir er farið sem trúnaðarmál.
Sölu- og markaðsfulltrúi
Árvakur hf. óskar eft ir að ráða kraft mikla og áhugasama
einstaklinga til starfa í sölu- og markaðsdeild vegna
aukinna umsvifa og nýrra verkefna.
Starfið felur í sér sölu á auglýsingum í fjölmiðla Árvakurs
og umsjón með markaðsverkefnum.
Viðkomandi þurfa að vera jákvæðir, skipulagðir og hafa
mikla samskiptahæfni.
Reynsla af sölu- og markaðsstörfum er mikill kostur.