Morgunblaðið - 07.03.2020, Page 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
Hneykslismálið sem skókfréttastöðina Fox Newsárið 2016 er umfjöll-unarefni Bombshell,
þegar upp komst um kynferðislega
áreitni og ofbeldi stofnanda og
stjónarformanns stöðvarinnar,
Roger Ailes. Titill kvikmyndarinn-
ar er tvíræður, vísar annars vegar
til sprengjunnar sem málið var á
sínum tíma og „kynbombanna“ sem
Ailes áreitti, kvenkyns fréttaþula
og kvenna sem við fyrstu sýn virð-
ast allar mjög svipaðar útlits, með
ljóst, axlarsítt hár, stífmálaðar og í
þröngum, stuttum kjólum. Ailes
ríkti yfir Fox News í 21 ár og lést
ári eftir að hann var leystur með
skömm frá störfum, 77 ára að aldri.
Málið hófst með ákæru frétta-
þularins Gretchen Carlson, sem
leikin er af Nicole Kidman, á hend-
ur Ailes en hún hafði þá verið lækk-
uð í tign innan fyrirtækisins fyrir
að láta ekki að vilja hans og á end-
anum var henni sagt upp störfum.
Hlaut Carlson 20 milljónir dollara
frá Fox News í sátt sem gerð var í
dómsmálinu og tók mikla áhættu
með því að kæra Ailes þar sem hún
var ein til vitnis um brot hans og
átti við ofurefli að etja, valdamikla
menn og moldríka. Kæran hafði
sem betur fer þau áhrif að fleiri
konur stigu fram og sökuðu Ailes
um svipuð brot, áreitni og ofbeldi,
þeirra á meðal fréttaþulurinn
Megyn Kelly sem Charlize Theron
leikur. Kelly hafði skömmu áður átt
í stríði við Donald Trump sem þá
var í forsetaframboði. Kelly hjólaði
í Trump vegna niðrandi ummæla
hans um konur og þá einkum á
Twitter og uppskar fyrir svívirð-
ingar Trump á sama miðli og nið-
urlægjandi orð á borð við „bimbo“,
eða „gæru“. Kelly var á þessum
tíma einn þekktasti fréttamaður
Fox News og hafði m.a. vakið at-
hygli fyrir að halda því fram að
Jesús hefði verið hvítur maður og
söguleg persóna líkt og jólasveinn-
inn. Allt þetta og meira til er rifjað
upp í heldur ruglingslegri byrjun
myndarinnar og virðist í fyrstu sem
alla áherslu eigi að leggja á stríð
Kelly og Trump. En líklega er til-
gangur handritshöfundar og leik-
stjóra að sýna stöðu Kelly áður en
mál Ailes kom til sögunnar en hann
krafðist afsökunarbeiðni frá Trump
og kom því Kelly til varnar.
Nokkrar sættir náðust á endanum
þó enn hafi kraumað undir fyrir-
litning Kelly á Trump og öfugt og
eins og menn vita hefur Trump síð-
ur en svo dregið úr höggum sínum
og svívirðingum eftir að hann varð
forseti. Gera má ráð fyrir að Kelly
hafi þurft að hugsa sig tvisvar um
áður en hún réðst til atlögu við
næsta karlfausk og það sjálfan yfir-
mann sinn, Ailes. Ailes, leikinn með
tilþrifum af John Lithgow, misnot-
aði vald sitt og lofaði fögrum frétta-
konum stöðuhækkunum gegn því
að þær sýndu honum „hollustu“ í
verki. Mun hann hafa gantast oft
með frasanum „to get ahead you’ve
got to give head“, þ.e. ýjað að því að
til að komast á framabraut þyrftu
konur að veita karlkyns yfir-
mönnum sínum munngælur.
Konurnar voru margar sem Ailes
beitti ofbeldi og er leikkonan Mar-
got Robbie fulltrúi þeirra í mynd-
inni. Robbie leikur skáldaða per-
sónu, Katyu, sem dáir Fox News og
trúir öllu því sem stöðin heldur
fram að séu staðreyndir. Katyu
dreymir um að verða fréttaþulur en
hún starfar sem framleiðandi þátt-
ar Carlson. Hún fær áheyrn hjá
Ailes, sem biður hana um að lyfta
upp kjólfaldinum þar til sést í nær-
buxurnar. Ýjað er að frekari brot-
um Ailes gagnvart þessari persónu
í myndinni, þau eru ekki sýnd en
fyrrnefnt atriði er sláandi og leikur
Robbie og Lithgow mjög sannfær-
andi. Til að gera langa sögu stutta
enduðu mál þannig að Ailes lét af
störfum en hefði gjarnan mátt fá
harðari refsingu fyrir brot sín.
Þessir sannsögulegu atburðir eru
mjög áhugaverðir og mikilvægir en
því miður er framsetningin á þeim í
kvikmyndinni oft ruglingsleg. Viti
áhorfandinn ekkert um málið er
hætt við að hann botni ekkert í því
hvað er að gerast í upphafi myndar
og undarlegur útúrdúr í handritinu
eyðileggur að hluta spennuna, ótrú-
verðugt lesbískt samband Katyu
við samstarfskonu sína sem virðist
engum tilgangi þjóna. Leikurinn er
líka brokkgengur, Theron heldur
freðin í hlutverki Kelly sem stafar
kannski af þeim mikla farða sem
hún þurfti að bera í myndinni.
Kannski gat hún ekki hreyft and-
litsvöðvana, hver veit? Theron og
Kidman eru mjög mikið farðaðar og
andlitum þeirra hefur verið breytt
þannig að þær virðast vera með
breiðari kjálka og líkjast þær fyrir
vikið töluvert konunum sem þær
leika. Þessar útlitsbreytingar vekja
of mikla athygli, að mínu mati, þar
sem maður fer að velta fyrir sér
hverju hafi verið breytt og hverju
ekki en breytingarnar skipta svo á
endanum litlu sem engu máli. Aðal-
persónurnar eru ljóskur með föla
húð og langa leggi, því er komið
greinilega til skila og að Ailes hafi
laðast að þess háttar konum.
Kidman er öllu líflegri en Theron
í sinni túlkun en Robbie ber af aðal-
leikkonunum þremur. Af körlunum
stelur Lithgow senunni og hefur
miklum fjölda kílóa verið bætt á
hann svo hann líkist Ailes eins mik-
ið og kostur er. Kate McKinnon
leikur samstarfskonu Katyu og
virðist hlutverk hennar hafa verið
skrifað til þess eins að sýna að sam-
kynhneigðir væru ekki velkomnir
hjá Fox News og að vantað hafi upp
á stuðning starfsmanna við fórnar-
lömb Ailes. McKinnon verður þann-
ig fulltrúi óttasleginna og undirgef-
inna starfsmanna en um leið er
undarlegt að samkynhneigð mann-
eskja skuli vinna hjá fyrirtæki sem
vill ekki hafa slíkt fólk í vinnu og
fyrirlítur það.
Umfjöllunarefni Bombshell ætti
að vera nógu svakalegt til að úr
verði áhrifamikil kvikmynd en því
miður fatast handritshöfundi og
leikstjóra flugið. Of löngum tíma og
of miklu púðri er eytt í deilur
Trump við Kelly og hefði mátt af-
greiða þann bakgrunn persónunnar
með einfaldari hætti og verja í stað-
inn tímanum í aðalatriðið, þ.e.
hegðun Ailes og þessa sögulegu
lögsókn. Hún fær einkennilega lítið
pláss í frásögninni allri. Einnig
þykir mér skrítið að láta tvær af
aðalkvenpersónum myndarinnar
rjúfa fjórða vegginn af og til og tala
beint til áhorfenda. Þessi aðferð
kemur eins og skrattinn úr sauðar-
leggnum.
Og hver urðu viðbrögð heimsins
við afhjúpun Ailes? Jú, Rupert
Murdoch leysti hann frá störfum og
tók sjálfur við stjórnartaumunum.
Öðrum viðbrögðum eru ekki gerð
skil nema þá þeim að konurnar hjá
Fox News fóru að mæta í buxum í
vinnuna. Eftirmál þessa mikla
dómsmáls eru afgreidd með nokkr-
um setningum í lok myndar og þá
m.a. að Ailes greiddi á endanum
fórnarlömbum sínum lægri upphæð
en hann hlaut frá Murdoch við
starfslokin. Heldur snubbóttur
endir sem hefði átt að hafa miklu
meira vægi í handritinu.
Bomburnar sem felldu Ailes
Þríeyki Charlize Theron, Nicole Kidman og Margot Robbie í Bombshell.
Bíó Paradís
Bombshell bbmnn
Leikstjórn: Jay Roach. Handrit: Charles
Randolph. Aðalleikarar: Charlize Ther-
on, Nicole Kidman, Margot Robbie, John
Lithgow og Kate McKinnon. Bandaríkin
og Kanada, 2019. 109 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
Julia Louis-Dreyfus Will Ferrell
ADifferent Kind of Disaster Movie.
Rás 2
FBL
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3 BESTA KVIKMYNDATAKAN
ÓSKARSTILNEFNINGAR2 BESTA ERLENDA MYNDINBESTA LE IKARI : ANTONIO BANDERAS
©2019 Disney/Pixar
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SÝND MEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI
Myndlistarsýning Karlottu Blöndal,
Í anddyrinu, verður opnuð í for-
kirkju Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, við messulok kl. 12.15 en
þá er alþjóðlegur baráttudagur
kvenna. Sýningin er á vegum List-
vinafélags Hallgrímskirkju og sýn-
ingarstjóri er Rósa Gísladóttir.
Fyrir þessa vorsýningu kirkj-
unnar voru valin verk eftir Karl-
ottu, ný og önnur eldri, sem mynda
samtal við þetta sérstaka rými, and-
dyrið sem er opið þeim sem vilja
koma og þangað streyma inn ferða-
menn frá öllum heimshornum.
Listakonan Karlotta Blöndal.
Karlotta sýnir í
anddyri kirkjunnar
Það sem báts-
maðurinn sagði
er heiti sýningar
sem Hulda Hákon
opnar í Komp-
unni í Alþýðuhús-
inu á Siglufirði í
dag, laugardag,
kl. 15. Á sýningu
eru lítil málverk,
lágmynd og texti
sem tengjast sög-
um bátsmannsins. Á bak við eru frá-
sagnir af stöðum þar sem himinn og
haf mætast. Staðir sem segja frá feg-
urð, þrekvirkjum og viðleitni okkar
til þess að treysta öryggi. Hulda er
einkum þekkt fyrir lágmyndir, texta
og skúlptúra.
Sögur bátsmanns
og Huldu Hákon
Leitarhundur eftir
Huldu Hákon