Morgunblaðið - 07.03.2020, Síða 52

Morgunblaðið - 07.03.2020, Síða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020 KRINGLUNNI Í tilefni af því að öld er liðin frá fæð- ingu listakonunnar Drífu Viðar (1920-1971) verður dagskrá um list hennar og feril í safnaðarheimili Neskirkju í dag, laugardag, og hefst klukkan 14. Jón Thoroddsen, sonur Drífu, segir frá ævi hennar, Aðal- heiður Valgeirsdóttir flytur erindið „Mynd af konu. Drífa Viðar og myndlistin“, Einar Thoroddsen seg- ir frá móður sinni með söng og spili, Helga Kress flytur erindið „Að fara dult með - Sjálfsmyndir í sögum Drífu Viðar“, Theodóra Thoroddsen les úr óbirtri skáldsögu eftir Drífu, Auður Aðalsteinsdóttir flytur erind- ið „Mjer finst sem jeg sje farin út á Dumbshaf í hripleku bátskrífli …“ um bókmennta- og listgagnrýnand- ann Drífu, Lovísa Fjeldsted og Jón Thoroddsen segja frá samstarfi systranna Drífu og Jórunnar Viðar, Einar Steinn Valgarðsson flytur er- indi um stjórnmálastarf Drífu Viðar, og loks segir Jón Thoroddsen frá óperunni Snæ konungi. Drífa Viðar var dóttir hjónanna Einars Indriðasonar Viðar og Katr- ínar Viðar (f. Normann). Í uppeldinu voru fagrar listir í hávegum hafðar. Drífa lærði listmálun hjá Jóni Þor- leifssyni, svo hjá Hans Hofmann og Amédée Ozenfant í New York og Leger í París. Hún sýndi verk sín nokkrum sinnum og skrifaði skáld- söguna Fjalldalslilju (1967) og smá- sagnasafnið Dagar við vatnið (1971). Dagskrá um list og feril Drífu Viðar  Fjölbreytileg erindi í Neskirkju í dag Fjölhæf Listakonan Drífa Viðar. Stílæfingar eftir Raymond Que- neau verða flutt- ar á morgun, sunnudag, kl. 16 í Hljóðbergi Hannesarholts. Uppselt var á flutning Stílæf- inga 1. mars og er sýningin því endurtekin. Sveinn Einarsson er leikstjóri og milli kafla verður leikin tónlist sem franska tónskáldið Louis Dunoyer de Segonzac samdi til flutnings með verkinu árið 2008. Rut Ingólfsdóttir er þýðandi Stílæfinga og fjórir leik- arar flytja valda kafla, þau Arnar Jónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir og Þór Tulinius. Stílæfingar fluttar í annað sinn Rut Ingólfsdóttir Heimildar- myndin Chasing the Present eftir Mark Waters verður frumsýnd í Bíó Paradís annað kvöld kl. 20 og um leið verður fagnað útgáfu tónlistar- innar úr mynd- inni sem er eftir Snorra Hallgrímsson. Chasing the Present segir af bar- áttu James Sebastiano við kvíða- röskun og inniheldur hún m.a. við- töl við Russell Brand og Marinu Abramovic. Myndin hefur hlotið verðlaun og þá m.a. sem besta heimildarmyndin á Rhode Island International Film Festival og Chelsea Film Festival. Frumsýning og fögnuður í bíói Snorri Hallgrímsson Strokkvartettinn Siggi kemur fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbs- ins í Norðurljósasal Hörpu á morg- un, sunnudag, kl. 14. Á efnisskránni eru tveir strengjakvartettar eftir Beethoven auk þess sem ný verk eft- ir Oliver Kentish og Veronique Vöku verða frumflutt. Tónleikarnir fara fram innan tónleikaraðarinnar Sígildir sunnudagar í Hörpu. Strokkvartettinn Siggi hefur starfað frá árinu 2012 og er skip- aður þeim Unu Sveinbjarnardóttur og Helgu Þóru Björgvinsdóttur á fiðlur, Þórunni Ósk Marinósdóttur á víólu og Sigurði Bjarka Gunnarssyni á selló. Þau eru öll hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tón- leikar kvartettsins hafa vakið at- hygli en auk þess að leika verk Beethovens og allt aftur til endur- reisnartímans hefur hann stuðlað að nýsköpun í tónlist fyrir strengja- kvartett og frumflutt fjölda verka. Strokkvartettinn Siggi í klúbbnum Flytjendurnir Strokkvartettinn Siggi. Guðrún Gunnarsdóttir söngkona kemur fram á tónleikum í Salnum í kvöld, laugardag, klukkan 20 og flytur ljóð og lög eftir sænsk- hollenska söngvaskáldið Cornelis Vreeswijk (1937-1987). Fyrir 10 árum kom út plata þar sem Guðrún flytur lög eftir Vrees- wijk í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Plötunni var vel tek- ið og fylgdi Guðrún útgáfunni eftir með mörgum tónleikum. Guðrún mun nú syngja lögin auk þess að fara ásamt Aðalsteini Ásberg yfir feril söngvaskáldsins í máli og myndum en þau hittu Vreeswijk ár- ið 1985 í Finnlandi þegar þau tóku þátt í vísnahátíð. Hljómsveitastjóri er Gunnar Gunnarsson píanóleik- ari, Ásgeir Ásgeirsson leikur á gít- ar og Jón Rafnsson á bassa. Flytur lög eftir Cornelis Vreeswijk Morgunblaðið/Hari Söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir. Tilnefningar til Eddunnar 2020, verðlauna Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, Íksa, voru kunngjörðar í gær og hlýtur kvik- mynd Hlyns Pálmasonar, Hvítur, hvítur dagur, flestar eða tólf alls. Verðlaunaflokkar eru 27 talsins og er endanlegt val í höndum Íksa. Raf- ræn kosning hefst 9. mars og stend- ur yfir í viku. Almenn kosning mun fara fram á vef RÚV, ruv.is, um Sjónvarpsefni ársins og keppa öll til- nefnd sjónvarpsverk, 28 talsins, til þeirra verðlauna. Edduverðlaunahá- tíðin fer fram 20. mars. Helstu tilnefningar eru: Kvikmynd ársins Agnes Joy Hvítur, hvítur dagur Bergmál Heimildarmynd ársins Ég er einfaldur maður – ég heiti Gleb Flórídafanginn KAF Síðasta haustið Vasulka áhrifin Handrit ársins Hlynur Pálmason – Hvítur, hvítur… Nanna Kristín Magnúsdóttir, Huldar Breiðfjörð og Sólveig Jóns- dóttir – Pabbahelgar Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmunds- dóttir – Agnes Joy Leikkona ársins í aðalhlutverki Arndís Hrönn Egilsdóttir – Héraðið Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Agnes Joy Nanna Kristín Magnúsdóttir – Pabbahelgar Leikkona ársins í aukahlutverki Donna Cruz – Agnes Joy Ída Mekkín Hlynsdóttir – Hvítur, hvítur dagur Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir – Pabbahelgar Sólveig Arnarsdóttir – Ófærð 2 Unnur Ösp Stefánsdóttir – Ófærð 2 Leikari ársins í aðalhlutverki Björn Thors – Vesalings elskendur Ingvar E. Sigurðsson – Hvítur, hvítur dagur Sveinn Ólafur Gunnarsson – Pabba- helgar Leikari ársins í aukahlutverki Björn Hlynur Haraldsson – Agnes Joy Hilmir Snær Guðnason – Hvítur, hvítur dagur Hinrik Ólafsson – Héraðið Jóel Ingi Sæmundsson – Vesalings elskendur Þorsteinn Bachmann – Agnes Joy Leikstjóri ársins Grímur Hákonarson – Héraðið Hlynur Pálmason – Hvítur, hvítur dagur Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson – Pabbahelgar Rúnar Rúnarsson – Bergmál Silja Hauksdóttir – Agnes Joy Stuttmynd ársins Blaðberinn Móðurást Wilma Frétta- eða viðtalsþáttur ársins Hvað höfum við gert? Kveikur Leitin að upprunanum Barna- og unglingaefni ársins Goðheimar Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland Sögur, söguspilið Leikið sjónvarpsefni ársins Ófærð 2 Pabbahelgar Venjulegt fólk 2 Brellur ársins CAN Film, Gustav Törnroth, RGB, Jón Már Gunnarsson – Hvítur, hvítur dagur Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðar- dóttir, Haukur Karlsson – Ófærð 2 Sigurgeir Arinbjarnarson – Pabba- helgar Sjónvarpsmaður ársins Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir Guðrún Sóley Gestsdóttir Helgi Seljan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir Steiney Skúladóttir Tónlist ársins Davíð Berndsen – Þorsti Edmund Finnis – Hvítur, hvítur dagur Gísli Galdur Þorgeirsson – Pabba- helgar Jófríður Ákadóttir – Agnes Joy Kira Kira – Tryggð Heildarlista tilnefninga má finna á mbl.is. Hvítur, hvítur dagur með tólf tilnefningar  Tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár liggja fyrir Tylft Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur hlýtur flestar tilnefningar til Eddu- verðlaunanna í ár, tólf alls. Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlyns- dóttir, sem sjást hér í kvikmyndinni, eru bæði tilnefnd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.