Morgunblaðið - 07.03.2020, Page 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
Hildur hin óstöðvandi
Þrenning Countess Malaise, Cell7 og Hildur Guðnadóttir bregða á leik eftir afhendinguna.
að Hildur hreppti hnossið. Ég sat í
salnum, að vonum spenntur. Þegar
sigurvegaranum var lýst svo, áður
en nafnið kom fram: „Viðkomandi
hefur ýtt á öll mörk og mæri þeirrar
stefnu sem þetta verk er unnið í“
gaus upp hlýr straumur innra með
mér og ég hrópaði og kallaði. Og svo
mikið sem hún átti þetta skilið.
Hildur hafði komið fram fyrr
um daginn í spjallviðburði, þar sem
blaðamaðurinn Jude Rogers ræddi
við hana uppi á sviði. Hafði hún ver-
ið bókuð inn á það nokkrum mán-
uðum fyrr, enda efast ég um að Hild-
ur hefði haft færi í dag, sé mið tekið
af þeim skriðþunga sem hefur verið
að undanförnu. Ég náði örlitlu tali af
henni baksviðs eftir atið og það var
gott að sjá hana. Ég, eins og aðrir, er
náttúrlega gríðarlega stoltur.
Ég sótti nokkra af ráðstefnu-
viðburðunum og hafði gaman af.
Eamonn Forde leiddi okkur t.d. í all-
an sannleikann um hvernig E.M.I fór
á hausinn og Scumeck Sabottka,
bókari Rammstein til 25 ára, sagði
okkur frá nokkrum húsráðum sem
hann nýtir sér. Og já, hann lítur ná-
kvæmlega eins út og nafnið hans!
Hápunktur þessa alls var þó að
hlusta á Bruce Pavitt, stofnanda Sub
Pop-útgáfunnar áhrifaríku, segja
frá.
Tónleikar voru úti um allar
koppagrundir líka. Catherine, eins-
lags þjóðlagasíðrokksband frá Eng-
landi, heillaði ekki, of hrátt og til-
gerðarlegt. Brasilíska þrasssveitin
Nervosa, skipuð þremur stúlkum,
átti hins vegar salinn og gerði allt
vitlaust. Þá gafst mér líka tækifæri
til að sjá hana JDFR okkar spila á
staðnum Ingensted, yndislega mynd-
rænu rými sem er við á sem rennur í
gegnum Osló.
JFDR var eini Íslendingur á há-
tíðinni, ásamt NYRST og Þorgerði
Jóhönnu, sem er plötusnúður, bú-
settur í Osló. Enginn finnskur lista-
maður var bókaður. Nóg var af
Norðmönnum og Svíar og Danir áttu
sæmilegan slurk af fulltrúum. Þetta
skýtur dálítið skökku við, þegar há-
tíðin hýsir verðlaun sem er ætlað að
kynna norræna tónlist út á við og tvö
lönd af fimm eru nánast ekki með.
Þetta styður samt rækilega við það
sem ég hef greint í gegnum vinnu
mína fyrir verðlaunin, að Noregur/
Svíþjóð/Danmörk eru vel tengd
markaðs- og svæðislega en Ísland og
Finnland eru jaðarlönd, bæði land-
fræðilega og menningarlega greini-
lega. Enda urðum ég og finnski með-
dómari minn perluvinir eftir að hafa
þekkst í u.þ.b. fimm mínútur. Jebbs,
klisjur eru sannar.
»… gaus upp hlýrstraumur innra með
mér og ég hrópaði og
kallaði. Hildur vann!!
Og svo mikið sem hún
átti það skilið.
Tónlistarhátíðin
by:Larm fór fram um
liðna helgi og m.a. gekk
Hildur Guðnadóttir frá
hátíðinni sem handhafi
Nordic Music Prize-
verðlaunanna. Pistil-
ritari var á staðnum.
Ljósmyndir/by:Larm
Sigur Rapparinn/söngvarinn Isah var valinn bjartasta vonin.
Stemning Hljómsveitir tróðu meðal annars upp á hátíðinni í
útstillingargluggum verslana við Youngstorget.
Stuð Á tónlistarhátíðinni by:Larm kemur fram fjöldi lista-
manna og hún er góð innspýting fyrir norrænu senuna.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Osló á sína eigin Airwaves-hátíð, by:Larm kallast húnog var hún sett á laggirnar
árið 1998, einu ári áður en Airwa-
ves hélt sína fyrstu hátíð í flugskála
á Reykjavíkurflugvelli (ári síðar
rúllaði hún svo af stað eins og við
þekkjum hana í dag). Merkilegt, að
fyrstu tíu árin flakkaði by:Larm á
milli borga, en síðan 2008 hefur
hún verið í höfuðborginni. Hátíðin
hefur reynst öflugur vettvangur
fyrir heilnæma samansúrrun nor-
ræna tónlistariðnaðarins. Starfs-
fólk sem honum tilheyrir hittist og
ber saman bækur sínar, annaðhvort
formlega eða óformlega. Fjöldi tón-
leika er þá, eðlilega, og áhersla á
listamenn frá Norðurlöndum. Ráð-
stefnuhluti hátíðarinnar er vand-
aður og fer vaxandi með ári hverju.
Samfara hátíðinni eru Nor-
rænu tónlistarverðlaunin veitt,
verðlaun sem hátíðin hratt af stað
árið 2011 (fyrsta árið vann Jónsi,
fyrir plötu sína Go, sem út kom
2010). Það voru þrír listamenn frá
Fróni á tólf platna stuttlistanum
þetta árið, Hildur Guðnadóttir,
Cell7 og Countess Malaise. Fór svo
Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen
Stjórn Leikritunarsjóðs Leikfélags
Reykjavíkur tilkynnti í gær að
Matthías Tryggvi Haraldsson og
Eva Rún Snorradóttir yrðu leik-
skáld Borgarleikhússins frá hausti
2020. Samkvæmt upplýsingum frá
Borgarleikhúsinu sóttu alls 42 um
starfið, en stjórnin velur skáld úr
hópi umsækjenda sem boðinn er
samningur við Borgarleikhúsið til
eins árs.
„Markmið sjóðsins er að efla ný-
sköpun og fjölbreytni í íslenskri
leikritun, auka vægi leikritunar í
samfélaginu og stuðla að því að hún
njóti virðingar í samfélagi lista,“
segir í tilkynningu frá leikhúsinu.
Formaður stjórnar er Vigdís Finn-
bogadóttir en með henni í stjórn
eru Brynjólfur Bjarnason og Bryn-
hildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri.
Matthías Tryggvi útskrifaðist
sem sviðshöfundur frá LHÍ 2018 og
var útskriftarverkefni hans Griða-
staður. Hann var á dögunum valinn
sem fulltrúi Íslands á leikritunar-
hátíðinni Cut the Card í Bretlandi.
Eva Rún útskrifaðist sem sviðshöf-
undur frá LHÍ 2008 og er sjálf-
stætt starfandi sviðslistakona og
rithöfundur. Hún er ein af stofn-
endum og listrænum stjórnendum
Framandverkaflokksins Kviss
búmm bang og Sviðslistahópsins 16
elskenda.
Tvö ný Borgarleikhússkáld
Leikskáldin Matthías Tryggvi Haraldsson og Eva Rún Snorradóttir.