Morgunblaðið - 16.04.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 16.04.2020, Síða 10
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Opið fyrir umsóknir lögaðila um sex fjölbýlishúsalóðir NÝJAR LÓÐIR Í HAMRANESI Sex íbúðarhúsalóðir undir þriggja til fimm hæða fjölbýlishús eru lausar til úthlutunar til lögaðila. Um er að ræða lóðir með 148 íbúðum á fallegu og fjölskylduvænu byggingarsvæði í fyrsta áfanga í Hamranesi í Hafnarfirði sunnan Ásvallabrautar. Á svæðinu er gert ráð fyrir þéttri byggð sem lagar sig að landslagi staðarins, skapar skjól og góð íverurými. Lóðirnar verða afhentar í október 2020. Ítarlegar upplýsingar, skilmála, verðskrá og fleira er að finna á hamranes.is. Sótt er um lóðirnar á MÍNUM SÍÐUM á hafnarfjordur.is. Umsóknarfrestur til kl. 12 mánudaginn 4.maí 2020. hafnarfjordur.is585 5500 Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook GLÆSILEGUR VORFATNAÐUR FRÍ HEIMSENDING hjá Laxdal gætum við fyllsta öryggis v/ covid OPNUM NETVERSLUN FLJÓTLEGA Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Aðeins eru tólf ár liðin frá því að bankakreppa reið yfir heiminn. Hún kom sérlega illa við Íslendinga sem höfðu byggt upp bankakerfi sitt af miklum móð. Nú skellur kreppa á öllum heiminum og þar verður sér- staklega illa úti atvinnugrein sem Íslendingar hafa byggt upp á ógn- arhraða á síðustu árum – ferða- þjónustan. Á þetta bendir Kristrún Frosta- dóttir, aðalhag- fræðingur Kviku banka. „Það eru marg- ir sem eiga erfitt með að skilja það en í þessu ástandi er sennilega mjög skynsamlegt af stjórnvöldum að af- henda fyrirtækjum peninga. Fyrir því eru nokkrar ástæður en í fyrsta lagi verður fólk að átta sig á því að þetta er ekki hefðbundin kreppa. Þetta eru hamfarir,“ segir Kristrún og bendir á að bæði hafi fyrirtæki verið þvinguð til að loka starfsemi sinni um einhvern tíma og þá hafi aðgerðir af svipuðum toga svo gott sem þurrkað upp eftirspurnar- hliðina í hagkerfinu. Rekstrarbætur nauðsynlegar „Í þessu ástandi, þar sem fólk missir vinnuna í miklum mæli hefur ríkisvaldið ákveðið að greiða því hlutabætur. Nú þurfa hins vegar einnig að koma til rekstrarbætur til fyrirtækja til skamms tíma. En ein- hver kann að spyrja af hverju rík- isvaldið eigi að taka á sig þann kostnað. Svarið er einfalt. Ef fyrir- tæki fara á hausinn að óþörfu þá mun ríkissjóður tapa miklu fjár- magni af þeim sökum, skatttekjur munu dragast verulega saman og þá mun framboðsgetan í kerfinu einnig hrynja. Heilmikil verðmæti felast í fyrirtækjum, uppbygging og þekk- ing, þó tekjurnar vanti tímabundið. Það væri mjög alvarlegt ef skamm- tímavandi leiddi til þess að annars stöndug fyrirtæki yrðu gjaldþrota vegna þessara hamfara. Vissulega er ekki hægt að fjármagna einkageir- ann í langan tíma, en við verðum að kaupa okkur tíma á meðan við sjáum ekki enn til lands. Kannski munu þessar hamfarir draga langan dilk á eftir sér og leiða til uppstokkunar í atvinnulífi hérlendis. En slík upp- stokkun á sér ekki stað á einni nóttu og ekki hægt að láta kerfið hrynja á meðan stefnumótun á sér stað.“ Vont að ætla að stækka kerfið Spurð út í fyrirhugaðan aðgerða- pakka ríkisstjórnarinnar sem kynna á innan fárra daga segist Kristrún ekki þekkja til innihalds hans en það myndi ekki koma á óvart ef hann innihéldi aðgerðir af þeim toga sem að ofan er lýst, að minnsta kosti fyr- ir hluta fyrirtækja. Þá bendir hún á að það sé varasamt að ætlast til þess að bankakerfið taki að sér að fjár- magna tekjutap fyrirtækjanna í þessu ástandi og virki þá sem eins- konar hamfarasjóður. „Bankakerfið hefur vaxið mikið á síðustu árum og voru stóru bank- arnir að búa sig undir hægari lán- avöxt eftir hraða útlánaaukningu. Ef það á að lána mikið fé til þess að mæta þessu áfalli þá er í raun verið að ýta undir frekari vöxt kerfisins þvert á það sem venjulega á sér stað í niðursveiflum. Það er verið að ýta undir skuld- setningu fyrir tekjutapi sem er ekki skynsamlegt. Vissulega hafa bank- arnir byggt upp mikið eigið fé og þeir eru búnir undir útlánatöp og vandræði sem fylgja djúpri hag- sveiflu en það þarf að hugsa um stöðu kerfisins eftir að fyrsti skell- urinn er yfirstaðinn. Fjármagn sem er veitt til að mæta tekjutapi verður þá ekki veitt í framtíðarfjárfestingu. Alveg eins og fyrirtæki sem eiga einhvern sjóð en þurfa að nýta hann til að mæta tekjutapi hafa þá minna í fjárfest- ingu eftir nokkra mánuði. Ágangur á þessar birgðir, fjár- magn frá bönkum eða eigin sjóðum, mun draga úr viðspyrnukrafti hag- kerfisins þegar við þurfum á því að halda í efnahagsbatanum. Þá má ekki gleyma því að tveir þriðju hlutar bankakerfisins eru í eigu ríkisins og ef ætlunin er að ganga á eigin fé bankanna fyrir þessum hamfarakostnaði situr eftir minna verðmæti fyrir ríkið sem átti að losa um fyrr en seinna. Það er mun meira gagnsæi fólgið í því að standa straum af þessum kostnaði beint en að rýra hlut ríkisins óbeint með þessum hætti.“ Spurð út í stöðuna framundan segir Kristrún að ljóst sé að um sé að ræða kreppu sem sé mun stærri í sniðum en árið 2008. Það sé margt jákvætt við stöðu Íslands í núver- andi ástandi en að varasamt sé að skáka í skjólinu af þeim atriðum nú þegar holskeflan gengur yfir kerfið. Kreppa af öðrum toga „Þetta er ekki skulda- eða gjald- eyriskreppa eins og fyrir 12 árum. Við skuldum ekki umheiminum pen- inga sem við eigum erfitt með að standa í skilum með en við erum mjög háð tekjum að utan. Tekjur af erlendum ferðamönnum eru 10-12% af landsframleiðslunni og það er eitt hæsta hlutfall sem sést í heiminum. Þó það sé erfitt að spá fyrir um þessa heilbrigðisvá þá hefur það verið viðrað víða erlendis að ein- hverjar skorður gætu orðið á sam- skiptum og ferðalögum fram að til- komu bóluefnis, í allt að 12-18 mánuði. V-laga bati, þar sem skellurinn kemur og fer er því síður viðmiðið meðal hagfræðinga erlendis, frekar er talað um U-laga þróun eða „bað- karsbata“ þar sem hagkerfin jafna sig hægar. Það er því ekki nóg að við höfum staðið okkur vel í að berjast við faraldurinn. Það er fyrsta bylgj- an, en seinni flóðbylgjan sem er hin efnahagslega er mjög háð erlendri þróun. Í því samhengi má benda á að um 40% af erlendum ferðamönnum hingað til hafa komið frá tveimur löndum, Bandaríkjunum og Bret- landi, þar sem baráttan við veiruna hefur gengið mjög illa.“ Veðmál sem gengu ekki upp  Aftur verður atvinnugrein sem Íslendingar hafa veðjað á fyrir þungu áfalli  Skynsamlegt að ríkið greiði fyrirtækjum bætur vegna gríðarlegs tekjutaps Kristrún Frostadóttir Viðskipti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.