Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Nóttin 9di janúar 1959. Um- rædda nótt voru þeir á nætur- vakt á Hótel Skjaldbreið við Kirkjustræti í Reykjavík, und- irritaður og skáldið Ari Jós- efsson frá Blönduósi, sem drukknaði ungur 1963. Það komu þrír gestir til þeirra í heimsókn um nóttina: Stefán skáld, Hörður Grímsson, Bolli Gústafsson guðfræðinemi og Jónas Svafár atómskáld. Þeir þáðu kaffisopa og við ræddum um lífið og tilveruna. Stefán Hörður hafði þá fengið það verk- efni hjá Ragnari bókaútgefanda í Helgafelli að efna í bók til minningar um Stein Stein- arr, sem þá var fyrir nokkru látinn. Stefán Hörður hófst handa og fékk ljóð hjá H.K. Laxness, Davíð Stefánssyni, Hannesi Pét- urssyni, Helga Kristinssyni frá Þórustöðum, Ingimar Erlendi, Birgi Sigurðssyni, Degi, Jóni frá Pálmholti, Þóru Elfu Björnsson, Sigríði Freyju Sigurðardóttur, Jónasi Svafár, sögu hjá Ástu Sigurðar, Jóni Óskari og fjölda annarra þekktra og óþekktra höfunda. Þrammaði hann með þessi verðmæti til Ragnars. Heyrði hann nú ekkert frá stórútgef- andunum lengi vel. Sjálfur rit- aði Stefán pistil, sem hann kallaði: „Um bragfræði at- ómskáldskapar“. Nú, nú. Næst fregnar Stefán hjá Ragnari, að minn maður hafi misst áhugann fyrir málinu. Það náði þá ekki lengra. En hann var oggulítið leiður vegna þessa. Nokkrum nóttum síðar kom Stefán svo spakur á Skjaldbreið með af- raksturinn af söfnuninni. Og gaf mér hann. Vildi svo til að sömu menn voru þar gest- komandi. Þá notaði stud.theol. Bolli tæki- færið og teiknaði þessa frábæru mynd af St. Herði Grímssyni. Nóttin 9di janúar 1959 Eftir Braga Kristjónsson Bragi Kristjónsson Höfundur var fornbókakaupmaður í Reykjavík. » Það komu þrír gestir til þeirra í heimsókn um nóttina: Stefán skáld, Hörður Grímsson, Bolli Gústafsson guðfræðinemi og Jónas Svafár atómskáld. Ennfremur flutti atómskáld Íslands, Jón- as Svafár, okkur eitt af fjórum ljóðum: Meðan þið genguð glæstu sniði um gyllta sali að flaðrandi þjónaliði, sem klæddi silki okkar set, sat móðir þrælsins við ruggu og réri í rökkrinu og grét. Nú lýkur þessari frásögn um þrjá menn um nótt fyrir 60 árum. Tvennt bar fyrir augu nýlega. Hið fyrra var forsíðufrétt og bak- sviðsgrein Stefáns B. Stefánssonar um fyr- irætlanir Rio Tinto varðandi Straumsvík (Mbl 7/4-2020) en hætta er á lokun álversins vegna þess að hátt orkuverð gerir starf- semina þar ósam- keppnishæfa. Hið síð- ara var svar Harðar Árnasonar, forstjóra Landsvirkjunar, þar sem hann meðal annars fárast yfir arð- greiðslum Ísal fyrir þrem árum og býsnast yfir því, að kjarasamningar þar voru ekki samþykktir lengur en fram á sumar. Skýrar verður því varla kastað yfir borðið til viðsemj- anda, að það sé ekkert við hann að tala. Svona einfaldlega gerir maður ekki þegar um er að ræða samninga sem eru jafn þjóðhagslega mikil- vægir og þessir, allra síst á svo við- sjárverðum tímum sem nú. Það hefur lengi legið fyrir að orku- verð Landsvirkjunar á stóran þátt í að gera rekstur Ísal ósamkeppnis- hæfan. Launakostnaður og gengsþróun krónunnar eru aðrir þættir sem ekki má horfa fram hjá þó forstjórinn hafi áður hamast á því, að engin tengsl séu þar við raf- orkusamningana. Séð í þessu ljósi eru hinar háu arðgreiðslur liður í undirbúningi Rio Tinto að sölu Ísal á hrakvirði. Sú sala mistókst eins og kom fram í fréttum og þá er lokun álversins næsta mál til skoðunar. Afleiðingar farsóttarinnar, CO- VID-19 setja tímamörkin fyrir þá lokun. Alvara þessa máls ætti að liggja forstjóranum í augum uppi. Það sjá það allir hve mikið högg það væri, mitt í þeirri uppbyggingu sem verður að fara fram eftir lokun þjóðfélagsins vegna pestarinnar að svipta þúsundir fólks lífsviðurværi sínu á einu bretti með lokun álvers- ins. Það er líka alveg ljóst, þegar litið er á stöðu raforkusamninganna að Rio Tinto mun vilja tryggja var- anlega stöðu álversins í þeim við- ræðum sem nú eiga sér stað. Það hef- ur sýnt sig að Landsvirkjun hefur ekki skirrst við að nýta sér einok- unarstöðu sína í samningum um raf- orkuverð og bein afleiðing af því er að Rio Tinto nýtir sér veika stöðu Ís- lands þegar upp kemur. Áður fyrr var það reglan að viðræður fóru fram í „góðri trú“ eins og það heitir á laga- máli. Landsvirkjun virðist hafa vikið af þeirri braut en tímabært er að taka þá góðu siði upp aftur. Það er svo annað mál hvort hægt sé að koma upp því trausti sem ríkja þarf milli að- ilanna án þess að skipta um í brúnni. Í þessu samhengi má minna á að stjórnvöld skattlögðu stóriðjuna sér- staklega til eins árs eftir hrun og sömdu sérstaklega um það en gengu síðan á bak orða sinna og framlengdu skattinn annað ár. Stóriðjan mót- mælti, en lét að öðru leyti kyrrt liggja. Svona framkoma eykur ekki traust. Búast má við miklum breytingum í öllum viðskiptum milli þjóða í kjölfar COVID-19-faraldursins. Sterkar raddir eru uppi í vestrænum ríkjum, um að tryggja þurfi örugg aðföng mikilvægra vöruflokka betur en nú er, jafnframt því sem hert er aftur á hjólum efnahagslífsins. Þó að nú sé mest rætt um vörur til heilbrigð- isgæslu fer ekki milli mála að ál er grundvallar hráefni fyrir þessar þjóðir. Þjóðirnar verða að tryggja iðnaði sínum greiðan aðgang að þessu hráefni hvað sem líður öllum ófriðarblikum og tilraunum annarra eins og Kína til að ná yfirráðum á þeim markaði. Vesturlöndum er líka ljóst hvaða þýðingu lágt orkuverð hefur þegar byggja þarf upp hagvöxt þjóða eins og nú þarf. Það er því líklegt að bar- áttan gegn loftslagsvánni muni fær- ast yfir á önnur svið en það að hækka verð á rafmagni upp úr öllu valdi. Sú sviðsmynd, sem Landsvirkjun hefur boðað að orkuverð og sérstaklega verð hreinnar orku muni hækka og hækka er því orðin afar varasöm. Það er stefna Landsvirkjunar að hámarka verðmæti þeirra auðlinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir, en túlkun Landsvirkjunar virðist vera sú að verðmætin komi í ljós í tekju- straumi hennar einnar án tillits til þess virðisauka sem lágt orkuverð veldur í þjóðfélaginu. Þetta er röng túlkun. Þjóðin stofnaði þetta fyrir- tæki til að skapa sjálfri sér tækifæri til að hagnast og Landsvirkjun er því ætlað að hámarka þjóðhagslegt verð- mæti auðlindanna svo öll þjóðin njóti góðs af. Þá túlkun þarf að marka með eigendastefnu fyrirtækisins. Nú blasir við okkur eins og öðrum þjóðum hrun. Ferðaþjónustan mun að öllum líkum verða fyrir þyngstum búsifjum og viðbúið að svo verði aftur ef sagan endurtekur sig með annarri pest síðar. Stöðugleika annarra greina þarf að tryggja eftir því sem hægt er. Þá liggur mikið við að starf- semi stóriðjunnar sé búinn stöðugur grundvöllur, þar á meðal álverinu í Straumsvík. Tenging orkuverðs við álverð var til þess hugsað að halda þessari starfsemi gangandi í gegnum erfiðleika á borð við þá sem nú eru komnir upp. Ísal er ekki eina fyrir- tækið sem á í erfiðleikum þó að þar sjáist nú flæða yfir og viðbúið að önn- ur fyrirtæki með nýja orkusamninga þurfi líka athygli. Stjórnvöld verða að taka stefnuna um verðlagningu raf- orku til endurskoðunar og skapa þessum fyrirtækjum öruggt rekstrarumhverfi. Eftir Elías Elíasson » Búast má við miklum breytingum í öllum viðskiptum milli þjóða í kjölfar COVID-19-faraldursins. Elías Elíasson Höfundur er sérfræðingur í orkumálum. eliasbe@simnet.is Að þrasa frá sér viðskiptavin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.