Morgunblaðið - 16.04.2020, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
15% afsláttur af öllum sófum af lager - 10% afsláttur af sérpöntuðum sófum - Gildir út 18. apríl
Ferðalög á
„Snemma varð ljóst að í Friðland-
inu að Fjallabaki væru fólgin ein
mestu náttúrauðæfi Íslands. Allt
ber þar að sama brunni, einstök
jarðsaga, óvenjulegar jarðminjar á
heimsmælikvarða, hraðfara land-
mótun og einstök náttúrufegurð
kallar á verndun,“ segir Ólafur
Örn Haraldsson, forseti Ferða-
félags Íslands. Ólafur Örn er höf-
undur árbókar Ferðafélags Íslands
2010 um Friðland að Fjallabaki og
vinnur nú að ritun árbókar FÍ
2021 um Laugaveginn og nær-
umhverfi hans. „Gildi svæðisins er
einnig mikið vegna þess hve lítt
raskað það er þrátt fyrir mann-
anna umsvif í ferðamennsku, úti-
vist og sauðfjárbeit. Friðlandið að
Fjallabaki var friðlýst 1979 og
segja má að hert hafi verið á
vernduninn með niðurstöðu sem
fram kom í rammaáætlun um nýt-
ingu og vernd svæða,“ segir Ólaf-
ur.
Gönguleiðin um Laugaveginn frá
Landmannalaugum til Þórsmerkur
liggur um afar margbreytilegt
svæði sem í meginatriðum nær frá
Markarfljóti í vestri og að Mýr-
dalsjökli í austri. Skipta má þessari
stóru landspildu í þrennt og eru
þeir hlutar gerólíkir að allri gerð í
jarðminjum, landmótun og ásýnd.
Þessir ólíku hlutar eru meðal
þess sem gerir göngu um Lauga-
veginn svo áhugaverða og fjöl-
breytilega. Nyrsti hlutinn er innan
Torfajökulsöskjunnar, annar hlut-
inn er jökulmótaða svæðið frá
Álftavatni fram til Fremri Emstru-
ár og sá þriðji er Þórsmerkur-
svæðið og norður af því.
„Stærsta og litríkasta líprítsvæði
Íslands er í öskju Torfajökuls. Hún
er sporöskjulaga og er þvermál
hennar 16 km frá austri til vesturs
og 12 km frá norðri til suðurs.
Gönguleiðin sem heitir Laugavegur
liggur þvert í yfir öskjuna frá
norðri til suðurs. Nokkur af ytri
mörkum öskjunnar eru um Háb-
arm, Kaldaklofsfjöll, Ljósártungur
og Mógilshöfða en svo vill til að
norðurbarmur öskjunnar blasir við
augum í Landmannalaugum. Hann
er litríki og sveigmyndaði lípar-
íthryggurinn, Norðurbarmur,
handan Jökulgilskvíslar en stórt op
er þarna á öskjubarminum þar
sem kvíslin rennur til norðurs Það
er í raun skarðið sem bílvegurinn
til Lauga liggur um,“ segir Ólafur
Örn en hann var ungur drengur
þegar hann byrjaði að ferðast um
Friðlandið með foreldrum sínum í
kringum 1960 og þekkir svæðið
betur en flestir.
Innan öskjunnar eru leifar mik-
illar eldstöðvar sem er um 400-500
þúsund ára gömul. Hún féll saman
og er nú fyllt að mestu af lípar-
ítmulningi. Á nokkrum stöðum við
jaðra öskjunnar standa myndarleg
líparítfjöll m.a. Laufafell, Rauðu-
fossafjöll, Kirkjufell, Illihnúkur og
Torfajökull (sjá Árbók FÍ 2010
kafli um náttúrufar bls. 19). Þessir
stapar mynduðust í gosum fyrir
um 70 þúsund árum á síðasta ís-
aldarskeiði og eru hluti af jarð-
myndun öskjunnar. Við austur-
barm öskjunnar er skarð milli
Hábarms og Torfajökuls og er þar
hentugasta leiðin til Muggudala og
Strútslaugar ef ekki er valið að
fara yfir jökulinn.
„Vert er að taka eftir hversu
Torfajökulsaskjan er hálendari en
landsvæðin í nágrenni þess. Þetta
ásamt litríki og fögru landslagi ber
skýran vott um hversu einstakt
landið er. Hið forna eldfjall hefur
verið mun hærra áður en það féll
saman. Landið í Torfajökulsöskj-
unni er hvað lægst á norðursvæð-
inu en nær mestri hæð á svæðinu
við Hrafntinnusker. Land-
mannalaugar eru í um 600 m hæð
og Frostastaðavatn 572 m. Hrygg-
ir giljanna í miðri öskjunni eru í
700-900 m hæð yfir sjó. En nokkur
fjöll eru hærri. Meðal þeirra eru
Hrafntinnusker 1.147 m, Háalda
1.128 m, Skalli 1.027 m, Söðull
1.132 m, Reykjafjöll 1.165 m Blá-
hnúkur 945 m. Þegar kemur suður
af brún öskjunnar við Jökultungur
norðan Álftavatns lækkar landið
snarlega og er Álftavatn í 549 m
hæð,“ segir Ólafur Örn. Hæðar-
munurinn er líka mikill vestan
megin öskjunnar en þar er hæðar-
lækkunin við Ljósártungur. Nærri
jaðri þeirra er landið í tæpum 600
metrum við vaðið á Markarfljóti
sunnan Laufafells.
Árbók FÍ 2021 tekur til svæðis
sem í megindráttum nær frá
Hrafntinnuskeri til Þórsmerkur.
Austurmörk svæðisins eru við
Torfajökul og vesturjaðar Mýr-
dalsjökuls. Vesturmörk eru að
stærstum hluta við Markarfljót.
Árbókin nær einnig til Fimm-
vörðuháls og afmarkast þá af
gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls.
Sérstakur kafli mun fjalla um nátt-
úrufar, jarðfræði, gróðurfar og
dýralíf. „Ferðafélagið hefur starf-
að mjög lengi á svæðinu og verið
frumkvöðull í allri uppbyggingu,
meðal annars á Laugaveginum.
Því lá það beint við að félagið
myndi skrifa árbók um þessa vin-
sælu gönguleið og og leiðir út frá
henni, sem falla undir að að vera
dagsferðir, morgun- eða kvöld-
göngur,“ segir Ólafur. Hann situr í
nefnd á vegum Umhverfisstofn-
unar sem nú hefur lagt fram
verndar- og stjórnunaráætlun fyrir
Friðlandið. „Þetta svæði er svo
einstak á marga vegu að það er
mikilvægt að vernda það og stýra
allri umferð til ganga ekki á auð-
lindina. Það sýnist mér að hafi
tekist vel í þessari vinnu sem UST
hefur leitt og birtist í verndaráætl-
uninni,“ segir Ólafur Örn Haralds-
son, forseti Ferðafélags Íslands.
Jón Örn Guðbjartsson
Eitt fegursta svæði á Íslandi
Snemma varð ljóst að í
Friðlandinu að Fjallabaki
væru fólgin ein mestu
náttúrauðæfi Íslands.
Allt ber þar að sama
brunni; einstök jarð-
saga, óvenjulegar jarð-
minjar á heimsmæli-
kvarða, hraðfara
landmótun og einstök
náttúrufegurð kallar á
verndun.
Fjölskyldan Ólafur, Sigrún, Haraldur og Örvar með Jökulgil í baksýn.
Ljósmynd/Ólafur Örn Haraldsson
Á fjöllum Fágæt og litrík fegurð í Þrengslunum í Jökulgili.
Fegurð Uppgönguhryggur
skartar sínu fegursta.