Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 15% afsláttur af öllum sófum af lager - 10% afsláttur af sérpöntuðum sófum - Gildir út 18. apríl Ferðalög á „Snemma varð ljóst að í Friðland- inu að Fjallabaki væru fólgin ein mestu náttúrauðæfi Íslands. Allt ber þar að sama brunni, einstök jarðsaga, óvenjulegar jarðminjar á heimsmælikvarða, hraðfara land- mótun og einstök náttúrufegurð kallar á verndun,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferða- félags Íslands. Ólafur Örn er höf- undur árbókar Ferðafélags Íslands 2010 um Friðland að Fjallabaki og vinnur nú að ritun árbókar FÍ 2021 um Laugaveginn og nær- umhverfi hans. „Gildi svæðisins er einnig mikið vegna þess hve lítt raskað það er þrátt fyrir mann- anna umsvif í ferðamennsku, úti- vist og sauðfjárbeit. Friðlandið að Fjallabaki var friðlýst 1979 og segja má að hert hafi verið á vernduninn með niðurstöðu sem fram kom í rammaáætlun um nýt- ingu og vernd svæða,“ segir Ólaf- ur. Gönguleiðin um Laugaveginn frá Landmannalaugum til Þórsmerkur liggur um afar margbreytilegt svæði sem í meginatriðum nær frá Markarfljóti í vestri og að Mýr- dalsjökli í austri. Skipta má þessari stóru landspildu í þrennt og eru þeir hlutar gerólíkir að allri gerð í jarðminjum, landmótun og ásýnd. Þessir ólíku hlutar eru meðal þess sem gerir göngu um Lauga- veginn svo áhugaverða og fjöl- breytilega. Nyrsti hlutinn er innan Torfajökulsöskjunnar, annar hlut- inn er jökulmótaða svæðið frá Álftavatni fram til Fremri Emstru- ár og sá þriðji er Þórsmerkur- svæðið og norður af því. „Stærsta og litríkasta líprítsvæði Íslands er í öskju Torfajökuls. Hún er sporöskjulaga og er þvermál hennar 16 km frá austri til vesturs og 12 km frá norðri til suðurs. Gönguleiðin sem heitir Laugavegur liggur þvert í yfir öskjuna frá norðri til suðurs. Nokkur af ytri mörkum öskjunnar eru um Háb- arm, Kaldaklofsfjöll, Ljósártungur og Mógilshöfða en svo vill til að norðurbarmur öskjunnar blasir við augum í Landmannalaugum. Hann er litríki og sveigmyndaði lípar- íthryggurinn, Norðurbarmur, handan Jökulgilskvíslar en stórt op er þarna á öskjubarminum þar sem kvíslin rennur til norðurs Það er í raun skarðið sem bílvegurinn til Lauga liggur um,“ segir Ólafur Örn en hann var ungur drengur þegar hann byrjaði að ferðast um Friðlandið með foreldrum sínum í kringum 1960 og þekkir svæðið betur en flestir. Innan öskjunnar eru leifar mik- illar eldstöðvar sem er um 400-500 þúsund ára gömul. Hún féll saman og er nú fyllt að mestu af lípar- ítmulningi. Á nokkrum stöðum við jaðra öskjunnar standa myndarleg líparítfjöll m.a. Laufafell, Rauðu- fossafjöll, Kirkjufell, Illihnúkur og Torfajökull (sjá Árbók FÍ 2010 kafli um náttúrufar bls. 19). Þessir stapar mynduðust í gosum fyrir um 70 þúsund árum á síðasta ís- aldarskeiði og eru hluti af jarð- myndun öskjunnar. Við austur- barm öskjunnar er skarð milli Hábarms og Torfajökuls og er þar hentugasta leiðin til Muggudala og Strútslaugar ef ekki er valið að fara yfir jökulinn. „Vert er að taka eftir hversu Torfajökulsaskjan er hálendari en landsvæðin í nágrenni þess. Þetta ásamt litríki og fögru landslagi ber skýran vott um hversu einstakt landið er. Hið forna eldfjall hefur verið mun hærra áður en það féll saman. Landið í Torfajökulsöskj- unni er hvað lægst á norðursvæð- inu en nær mestri hæð á svæðinu við Hrafntinnusker. Land- mannalaugar eru í um 600 m hæð og Frostastaðavatn 572 m. Hrygg- ir giljanna í miðri öskjunni eru í 700-900 m hæð yfir sjó. En nokkur fjöll eru hærri. Meðal þeirra eru Hrafntinnusker 1.147 m, Háalda 1.128 m, Skalli 1.027 m, Söðull 1.132 m, Reykjafjöll 1.165 m Blá- hnúkur 945 m. Þegar kemur suður af brún öskjunnar við Jökultungur norðan Álftavatns lækkar landið snarlega og er Álftavatn í 549 m hæð,“ segir Ólafur Örn. Hæðar- munurinn er líka mikill vestan megin öskjunnar en þar er hæðar- lækkunin við Ljósártungur. Nærri jaðri þeirra er landið í tæpum 600 metrum við vaðið á Markarfljóti sunnan Laufafells. Árbók FÍ 2021 tekur til svæðis sem í megindráttum nær frá Hrafntinnuskeri til Þórsmerkur. Austurmörk svæðisins eru við Torfajökul og vesturjaðar Mýr- dalsjökuls. Vesturmörk eru að stærstum hluta við Markarfljót. Árbókin nær einnig til Fimm- vörðuháls og afmarkast þá af gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Sérstakur kafli mun fjalla um nátt- úrufar, jarðfræði, gróðurfar og dýralíf. „Ferðafélagið hefur starf- að mjög lengi á svæðinu og verið frumkvöðull í allri uppbyggingu, meðal annars á Laugaveginum. Því lá það beint við að félagið myndi skrifa árbók um þessa vin- sælu gönguleið og og leiðir út frá henni, sem falla undir að að vera dagsferðir, morgun- eða kvöld- göngur,“ segir Ólafur. Hann situr í nefnd á vegum Umhverfisstofn- unar sem nú hefur lagt fram verndar- og stjórnunaráætlun fyrir Friðlandið. „Þetta svæði er svo einstak á marga vegu að það er mikilvægt að vernda það og stýra allri umferð til ganga ekki á auð- lindina. Það sýnist mér að hafi tekist vel í þessari vinnu sem UST hefur leitt og birtist í verndaráætl- uninni,“ segir Ólafur Örn Haralds- son, forseti Ferðafélags Íslands. Jón Örn Guðbjartsson Eitt fegursta svæði á Íslandi Snemma varð ljóst að í Friðlandinu að Fjallabaki væru fólgin ein mestu náttúrauðæfi Íslands. Allt ber þar að sama brunni; einstök jarð- saga, óvenjulegar jarð- minjar á heimsmæli- kvarða, hraðfara landmótun og einstök náttúrufegurð kallar á verndun. Fjölskyldan Ólafur, Sigrún, Haraldur og Örvar með Jökulgil í baksýn. Ljósmynd/Ólafur Örn Haraldsson Á fjöllum Fágæt og litrík fegurð í Þrengslunum í Jökulgili. Fegurð Uppgönguhryggur skartar sínu fegursta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.