Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 45
honum líkaði ekki eitthvað eða fannst fólk kvarta eða væla of mikið. Til dæmis fékk amma að heyra það ef hún var lasin. Þá sagði hann með sínum einstaka húmoríska tón: „Mikið rosalega varstu heppin á fá þetta líka.“ En líf Kidda frænda var enginn dans á rósum. Hann hafði sjálfur kynnst hörðu lífi og erfiðu en hann og mamma okkar misstu pabba sinn barnung. Eftir það leystist þeirra litla heimili upp og systkinin fengu ekki að alast upp saman. En þrátt fyrir frekar lítil samskipti var kært með þeim á fullorðinsárum. Við minnumst skemmtilegra stunda í Nóatúni hjá Kidda og Nönnu. Þar var oft margt um manninn og mikið fjör. Hvergi hafði maður séð svona marga bikara og verðlaunagripi á einum stað, en alla þessa gripi hafði Kiddi unnið fyrir golf, eitthvað sem hann er vel þekktur fyrir. Það er dýrmæt minning að hafa fengið að fylgjast með Kidda frænda að störfum sem blaðamaður á Vísi eða sem far- arstjóri hjá Samvinnuferðum – Landsýn, síðar Úrval-Útsýn, eða í leik sem golfari. Hann var alls staðar vel liðinn og aðalmaðurinn á svæðinu. Kiddi sá til þess að litlir frændur kæmust á stóra leiki hérlendis og fengju eigin- handaráritanir frægra fótbolta- manna sem þá langaði í. Hann fór með okkur á golfvelli á Nes- inu og í Flórída þar sem við feng- um að vera með og kynnast snilldartöktum hans í sportinu og í samskiptum. Það hefur verið höggvið stórt skarð í frændgarðinn og það er sorglegt að fá ekki framar að heyra hressilega kveðju frá Kidda: Sæl frænka. Hæ frændi. Nafni! Elsku Nanna, Dabba, Ransu og fjölskyldur, megi guð gefa ykkur styrk og ljós á þessum erf- iðu tímum. Það er sárt að geta ekki faðmað ykkur og kvatt Kidda frænda, en við trúum að hann sé á góðum stað og haldi uppi stuðinu þar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Kjartan Páll Sæmunds- son, Ágúst Sæmundsson, Ragna Sæmundsdóttir og Ingibjörg María Sæ- mundsdóttir. Vinir mínir fara fjöld sagði skáldið. Það er höggvið stórt skarð á skömmum tíma í vinahóp okkar í Golfklúbbnum á Nesinu. Fyrst var það Örn, svo Haraldur, nýverið Arnfinnur og núna Kjart- an L. Pálsson. Kjartan var búinn að vera félagi í Nesklúbbnum svo lengi sem elstu menn muna. Um tíma á fyrri árum sá hann ásamt konu sinni, Nönnu, um rekstur skálans ásamt veitingum sem til- heyrðu. Hann var allt í öllu, sagði mönnum til bæði um reglur og spilamennsku enda frábær golf- spilari sjálfur. Um tíma hafði enginn golfari farið eins margar holur í einu höggi eins og hann. Það var unun að fylgjast með honum spila. Höggin hans virtust svo mjúk og voru svo hnitmiðuð, enda vann hann til fjölda verð- launa á ferlinum. Ég leyfi mér að segja að Kjartan var frábær utan vallar sem innan. Svo hafði hann einstakan frásagnarhæfileika, var þrælminnugur á skemmtileg til- vik sem höfðu komið upp í hans ótal mörgu ferðum. Hann meiddi engan í sögum sínum en sagði skemmtilega frá. Kjartan var far- arstjóri í fjölda mörg ár, bæði um alla Evrópu til Filippseyja sem í Austurlöndum fjær. Vinsældir hans urðu slíkar að á seinni hluta síðari aldar og fram á þessa, var sami hópurinn bókaður til Spán- ar og Portúgals, ár eftir ár, jafn- vel bæði vor og haust. Svo fór að færri komust að en vildu. Hann var röggsamur stjórnandi, ná- kvæmur í skipulagningu, leysti öll mál sem upp komu á vinsam- legan máta. Hann lagði sig í líma svo að allir nytu ferðarinnar. Kjartan var einstakur félagi og Nanna kona hans var hans stoð og stytta. Það var gefandi að sjá hve vel þau unnu saman. Hún spilaði ekki golf en hafði með sér handavinnu og dró að sér aðrar konur sem eins var ástatt um. Úr þessu varð hálfgerður sauma- klúbbur hjá þeim, meðan menn- irnir voru að leika sér. Þannig nutu makar ferðarinnar fyrir til- stilli Nönnu. Fyrir nokkrum dög- um hringdi Kjartan í mig, þá kominn aftur upp á spítala frá Reykjalundi. Þeir álitu að þeir hefðu jafnvel fundið orsök veik- inda hans svo hann fylltist von um að eitthvað myndi lagast og sagði það yrði gaman ef hann fengi að sitja í bílnum hjá mér nokkrar holur í sumar. Á meðan við erum að spjalla saman, segir hann allt í einu: „Það er komið hér sjúkrateymi, það á að fara gera eitthvað fyrir mig, ég hringi aftur fljótlega.“ Hann náði ekki að hringja aftur. Það er skammt á milli klukku og kólfs. Kjartan lést stuttu síðar. Kjartans verður sárt saknað og lengi minnst. Við þökkum Kjartani fyrir vinfengið öll ár sem við áttum saman og vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð við fráfall hans. Helga og Hörður Pétursson. Nú er vinur minn og fyrrum samstarfsmaður, Kjartan Lárus Pálsson, farinn í sína hinstu ferð. Ég kynnist Kjartani þegar hann starfaði sem fararstjóri hjá Sam- vinuferðum – Landsýn í mörg ár. Hann var afar vinsæll fararstjóri bæði við fararstjórn í Hollandi og á Írlandi, svo og í golfferðum á vegum fyrirtækisins, en þar var sko réttur maður á réttum stað. Hann vissi upp á hár hvern- ig hann vildi hafa „sínar“ golf- ferðir og datt engum í hug að mótmæla honum, þar sem við vissum öll að hann var með hlut- ina alveg á hreinu. Það var ein- staklega gaman að vinna með honum og aldrei nein lognmolla í kringum hann. Það fór aldrei á milli mála þegar Kjartan var í húsinu – hann talaði hátt, hló enn hærra og var alltaf hress og kát- ur og sagði sögur af mönnum og málefnum með örlitlu KLP- kryddi. Svo var þessi góði maður með svo einstaklega stórt og gott hjarta. Alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd þeim sem á þurftu að halda. Frétti hann af einhverjum vini sínum (en þeir voru fjölmargir) sem þurfti á hjálp eða uppörvun á að halda þá var hann fyrsti maður á staðinn og það er trú mín að sá sem fékk heimsókn frá Kjartani hefur örugglega litið bjartari augum á lífið og tilverunni á eftir. Þegar Kjartan fagnaði 50 ára afmæli sínu var efnt til golfferðar í tilefni áfangans honum til heið- urs. Mallorca varð fyrir valinu og þangað héldu 150 manns til að fagna stórafmæli hans. Þar var dvalið í viku og að sjálfsögðu var spilað golf alla daga undir styrkri stjórn afmælisbarnsins. Einstak- lega vel heppnuð ferð og öllum þátttakendum afar minnisstæð. Ég tel það hafa verið forréttindi að hafa fengið að kynnast og vinna með Kjartani. Í dag er gott að eiga margar góðar og skemmtilegar minningar frá liðnum árum og minnast hans. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Nönnu, Dagbjartar, Nonna, afabarnanna og fjöl- skyldunnar allrar. Minning um góðan og skemmtilegan mann lif- ir um ókomna tíð. Sigríður Victoría Árnadóttir. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Þessi orð eiga svo vel við minn kæra vin Kjartan L. Pálsson sem nú hefur fengið hvíldina eftir harða baráttu við óvin sem engin grið gefur. Okkar vinátta nær aftur til 7. tugar síðustu aldar er ég var að hamast í körfunni og hann að keyra strætó og ekki minnkaði hún eftir að hann fór að skrifa íþróttafréttir í Tímann og síðar Vísi. Við brölluðum margt á þess- um árum sem ekki er rúm til hér að segja frá en eitt er víst að tryggari vinur er vandfundinn. KLP eins og hann var gjarnan nefndur lét engan eiga neitt inni hjá sér og var ófeiminn við að segja sína meiningu hvort heldur það var á prenti eða í samtölum. Hreinskiptinn og heiðarlegur eru þau orð sem fyrst koma upp í hugann þegar maður hugsar til baka. Heimili þeirra Nönnu stóð ávallt opið okkur vinum þeirra og þar var oft kátt á hjalla ekki síst í Nóatúninu þegar þau bjuggu þar enda stutt niður á Röðul og síðan í Þórskaffi. Já það voru nú tímar í lagi og ekki síst er félagarnir, Bóbó, Höskuldur, Öddi og Ás- geir, slógust í hópinn. Hann gerði heiðarlega tilraun til að kenna mér golfíþróttina í Nesklúbbnum en gafst fljótlega upp og sagði mér bara að halda áfram að truntast eins og hann kallaði gjarnan hestamennskuna! Við horfðum oft saman á enska boltann og vorum mjög stoltir af góðum vini okkar Búbba (Jóhannesi Edvaldssyni) sem þá var að gera flotta hluti hjá Celtic’s í Skotlandi sem og með íslenska landsliðinu. Okkur fannst báðum að hlutur hans hefði ekki verið metinn sem skyldi þegar rætt er um bestu knattspyrnumennina en hann var án nokkurs efa einn af okkar bestu. Við Sigrún minnumst þess oft þegar KLP færði okkur plötu að gjöf frá þeim Búbba með laginu: „You’ll never walk alone“ en það var á okkar erfiðu tímum 1976. Þá var nú gott að eiga góða vini. Þess ber að geta hér til að leiðrétta allan misskilning að þetta lag er líka lag Glasgow Cel- tic’s en ekki bara Liverpool þannig að ég Man. United mað- urinn í 52 ár fæ oft tár í augun þegar þetta lag er sungið á An- field! Kjartan minn fyrirleit óheið- arleik og aumingjaskap en hjart- að var stórt og hann var oft fyrstur á vettvang ef einhver af hans vinum átti um sárt að binda. Hin síðari ár fækkaði sam- verustundunum en þráðurinn slitnaði aldrei og alltaf heilsaði hann mér með nafninu „Lilli“ en það nafn gaf hann mér er við fyrst hittumst og hann þurfti að halla sér aftur til að sjá mig all- an!!!! Traustur vinur er fallinn frá en eftir lifir minningin um dreng sem alltaf var til staðar, sama hvað gekk á. Við Sigrún sendum Nönnu, Döbbu og Jóni (Ransu), börnum og barnabörnum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styðja þau og styrkja. Einar Gunnar Bollason. ingnum Didda fiðlu. Við vorum bekkjarbræður í Vogaskóla. Diddi bauð mér í Karfavoginn, sem síðar varð nánast eins og mitt annað heimili. Og Karfa- vogurinn var líka eins og fé- lagsmiðstöð fyrir okkur ung- lingana. Eða á ég að nota orðið menningarmiðstöð eða uppeld- ismiðstöð. Karfavogur 56 var allt þetta. Við vorum alltaf velkomin. Það sem var svo einstakt við Hönnu var áhuginn sem hún sýndi okkur. Hún tók okkur alltaf fagnandi með hlýju brosi og það var með ólíkindum hvað hún nennti að ræða við okkur. Hún fræddi, spurði gagnrýn- inna spurninga – og það sem var svo sérstakt var virðingin sem hún sýndi okkur, og skipti þá engu hvaða heimsku við lét- um út úr okkur. Ég lærði síðar um virka hlustun. Hanna kunni svo sannarlega að vera virkur og hvetjandi hlustandi. Við sát- um gjarnan í eldhúsinu í Karfa- voginum og oft var spjallað fram á nótt. Við ræddum sam- félagsmál, samskipti, bók- menntir og auðvitað tónlist. Og ekki má gleyma trúmálunum sem voru oft á dagskrá. Og Hanna fræddi okkur ung- lingana, enda var hún óvenju vel lesin og átti einstaklega auð- velt með að tjá sig. Það var ekki hávaðinn, en sannfæring og op- inn, leitandi hugur; smitandi áhugi. Hanna kenndi okkur margt um ástina. Hjá henni kynnist ég því að hægt væri að eiga sam- ræður um allar hliðar sam- skipta kynjanna á fullkomlega eðlilegan hátt. Hanna var heimavinnandi og fékkst, eins og flestir vita, við gerð ljóða- og dægurlagatexta, auk þýðinga. Hver þekkir ekki Jólin alls staðar, sem hún samdi við lag síns elskaða eiginmanns, Jóns bassa – hún fór hvergi í felur með tilfinningar sínar til hans – ég held hún hafi alltaf verið jafnskotin í honum. Eða Ég einskis barn er, Heilsaðu frá mér, eða Frelsarann sem hljóm- sveitin Ævintýri flutti. Stundum hafði hún okkur unglingana með við textagerðina og bar undir okkur vísuorð eða hug- myndir. Ég man sérstaklega eftir nóttinni þegar hún var að glíma við Góða nótt, þú litli ljúf- ur, sem BG og Ingibjörg gerðu svo vinsælt, og hún átti að skila textanum daginn eftir, líklega til Svavars Gests. Það var kom- ið langt fram á nótt þegar hún bar lokagerðina undir okkur eins og meðhöfunda. Þessi virð- ing fullorðinnar manneskju gagnvart okkur var svo einstök – framkoma hennar í okkar garð var alltaf eins og við vær- um jafningjar. Samskiptin við Hönnu voru einvörðungu gefandi, þar ber engan skugga á. Ég þakka henni veganestið sem hún gaf mér, áttavilltum unglingnum. Ég veit að við erum mörg sem erum heldur skárri manneskjur en ella væri, af því að við feng- um að kynnast Hönnu á miklum mótunarárum í lífi okkar. Við Lilja vottum fjölskyldunni hennar stóru, sem hún var svo stolt af, innilega samúð okkar. Ingvar Sigurgeirsson. Þegar komið er að kveðju- stund er erfitt að koma orðum að því með hvaða hætti mann- eskjan snerti þá sem voru henni samferða í gegnum lífið og hvað það er sem hún skilur eftir hjá því fólki sem þekkti hana og elskaði. Það er óhætt að segja að mamma hafi snert marga með hlýju sinni, hjálpsemi, visku og þeirri ósérhlífni sem einkenndi hana alla tíð. Foreldrar mínir eignuðust átta börn og núlifandi afkom- endur þeirra eru orðnir 54 tals- ins. Þessi stóri hópur afkom- enda syrgir nú ættmóðurina í Karfavoginum en gleðst jafn- framt yfir því að nú er hún loks sameinuð í anda þeim sem gengnir eru á undan. Já mamma trúði á heim ljóss og friðar handan okkar tilveru og tók æðrulaus og sátt á móti endalokum lífs síns. Þær eru fallegar gjafir and- ans og það ljós kærleikans sem mamma var svo lánsöm að fá að bera og gefa áfram, á formi ljóða og texta sem hún samdi á lífsleiðinni. Hún var oft beðin að þýða er- lenda dægurlagatexta fyrir hljómsveitir sem pabbi spilaði með. Henni fannst þeir sjaldan geisla af gæðum og valdi því frekar að endursemja þá í heild sinni. Margir þessara texta eru ekki einungis arfur til afkom- enda hennar, heldur flokkast sem menningararfur til kom- andi kynslóða og þjóðarinnar allrar. Tilhugsunin um að fal- legu orðin hennar lifi áfram þótt hún sé gengin á braut fyllir mig þakklæti og auðmýkt. Ég veit ekki fallegri leið til að heiðra mömmu og halda minn- ingu hennar á lofti um ókomna tíð. Elsku mamma, minning þín lifir, þinn fallegi andi og hreina sál sem endurspeglast í text- unum þínum sem eru mér svo kærir. Hér er brot úr Ástar- játningu (Love Story): Þótt sökkvi lönd í sæ, þótt hrynji fjöll og farist allt sem jarðneskt er. Þótt sortni himinn verður ást þín ávallt hér, sem guðalogi hún um alla eilífð skín og verður mín. Ég þakka ást þína sem fylgdi mér. Jóhanna Kristín Jónsdóttir. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigurður Bjarni Jónsson umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elsku maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR JÓNSSON húsasmíðameistari, Háaleitisbraut 145, andaðist að kvöldi páskadags 12. apríl á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Jarðarförin fer fram í kyrrþey föstudaginn 24. apríl. Guðmunda Guðmundsdóttir Þórir Þórhallsson Sólveig S. Kristinsdóttir Guðmundur Þórhallsson Ingibjörg Sívertsen Jóhanna V. Þórhallsdóttir Óttar Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN H. BERGS, fv. forstjóri SS og aðalræðismaður Kanada, lést á dvalarheimilinu Eir mánudaginn 13. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Jón Gunnar Bergs María Soffía Gottfreðsdóttir Magnús Helgi Bergs Klara Zelei Björn Alfreðsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, DÍANA ÞÓRUNN KRISTJÁNSDÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi þriðjudaginn 14. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey, en minningar- athöfn verður auglýst síðar. Starfsfólki Sunnuhlíðar eru færðar þakkir fyrir alúð og einstaka umönnun. Ari G. Þórðarson Þórður Arason Elínborg G. Sigurjónsdóttir Kristján M. Arason Andrea J. Mohr-Arason Ari, Sigurjón, Bjarmi, Benjamín, Elías og Helgi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.