Fjölrit RALA - 10.10.1994, Blaðsíða 26
Túnrækt
16
Tilraun nr. 702-91. Áhrif beitar og áburðartíma á endingu vallarfoxgrass, Korpu.
Markmið tilraunarinnar er að mæla hvort vorbeit og áburðartími á vorin hefur áhrif á endingu
vallarfoxgrass. í stað þess að beita reitina eru þeir slegnir með tilraunasláttuvél (greiðuvél).
Þungbeittu reitimir em slegnir þrisvar sinnum. Fyrsti sláttutími er strax og komin er nógu
mikil ló á reitina til þess að sláttuvélin nái einhverju, síðan er slegið með viku millibili.
Léttbeittu reitimir em slegnir einu sinni, við miðsláttutímann.
Reitirnir vom fyrst meðhöndlaðir vorið 1992, en uppskeran var ekki vigtuð um
sumarið. Munur á sprettu var ekki mikill að sjá. Vallarfoxgrasið skreið í öllum reitum, en var
heldur lágvaxnara í léttbeittu reitunum en þeim sem vom friðaðir, og heldur lágvaxnara í
þungbeittu reitunum en þeim léttbeittu. Árið 1993 var hins vegar mikill uppskemmunur
sjáanlegur og því var uppskeran vegin það ár. Þungbeittu reitimir vom slegnir 26. maí, 1. júní
og 9. júní árið 1992 en 25. maí, 1. júní og 8. júní 1993. Áburður var 120 kg N/ha í Græði 6.
Uppskera þe. hkg/ha
Áburðartími: 1/3 fyrir beit Allt eftir beit Meðaltal
Friðað 88,7 74,3 81,5
Léttbeitt 70,1 58,3 64,2
Þungbeitt 48,6 47,2 47,9
Meðaltal 69,1 59,9
Endurtekningar 4 Staðalfrávik 6,45. Tilraunin var slegin 27. júlí. Áburðartími
Ár Fyrir beit Eftir beit
1992 8. maí 9. júní
1993 10. maí 8. júní
Uppskera húsapunts, Möðruvöllum.
Uppskeran var mæld með klippingu út sumarið. Endurtekningar vom tvær.
Dags. Hkg þe./ha Dags. Hkg þe./ha Dags. Hkg þe./ha
26.5. 11,5 7.7. 5,5 25.8. 2,3
1.6. 12,8 13.7. 6,0 1.9. 1,8
8.6. 20,9 20.7. 8,1 7.9. 3,3
15.6. 29,7 27.7. 12,6 22.9. 9,8
22.6. 45,0 4.8. 19,6 8.10. 11,0
10.8. 18,9
Slegið 24. júní Slegið 15. ágúst