Fjölrit RALA - 10.10.1994, Blaðsíða 51
41
Landgræðsla
ERLENDAR BELGJURTIR (132-1128).
Tilraun nr. 691-90. Samanburður á belgjurtategundum erlendis frá.
Markmið verkefnisins er að finna erlendar belgjurtir sem geta lifað hér og myndað fræ til þess
að nota í landgræðslu.
Hafist var handa um að safna efniviði 1988. Skrifað var til ýmissa aðila úti í heimi
og einnig fékkst fræ úr söfnunarferðum í Alaska og Síberíu. Arið 1991 hófst prófun á öllum
þeim efniviði sem safnast hafði. Um var að ræða 10 ættkvíslir og var fjöldi tegunda og
erfðahópa innan tegunda nokkuð breytilegur eftir ættkvíslum. Heildarfjöldi erfðahópa eða
númera í prófuninni var 61. Voru þau upprunnin frá Alaska, Finnlandi, Kanada, Noregi og
Sovétríkjunum. Misjafnlega vel gekk að koma fræinu til og ekki náðist sami plöntufjöldi af
öllum númerum. Brugðið var á það ráð að planta út á Geitasandi öllum þeim númerum, þar
sem til voru a.m.k. 15 plöntur af. Voru það 25 númer. Settar voru 5 plöntur í röð í þremur
blokkum. Einnig var númerum plantað í Norðurtún í Gunnarsholti, í vallarfoxgrastún á Korpu
og í mel við Vesturlandsveg rétt utan girðingar á Korpu. Staðsetning réðst af þeim
plöntufjölda sem til var af hverju númeri.
Plönturnar hafa verið metnar sumrin 1992-93. Fylgst var með afföllum, þróttur og
útbreiðsla plantnanna voru metin og fylgst var með blómgun. Skriðlustofnarnir (Galega)
týndu flestir tölunni á Geitasandi en lifa enn á Korpu. Að öðru leyti lifa allir stofnamir, þótt
einhver afföll hafa orðið úr þeim. Fræseta hefur verið lítil enn sem komið er en haustið 1993
var tekið fræ á Korpu af eftirtöldum stofnum: Galega orientális frá Sovétríkjunum og
Finnlandi (nr. 13,14,15 og 16), Hedysarum alpinum frá Alaska (nr. 18), og H. americanum frá
Kanada (nr. 22, 24). Er nú þegar búið að sá þessu fræi á Korpu og verða stofnamir teknir til
frekari prófunar.
Ættkvísl Fjöldi tegunda og erfðahópa Fjöldi plantna Staðir
Astragalus Belgkollur 11 140 4
Galega Skriðla 6 144 4
Hedysamm Heilsugras 11 305 4
Lathyrus Baunagras 13 41 3
Lotus Maríuskór 3 41 4
Medicago Refasmári 3 70 3
Melilotus Steinsmári 1 3 1
Onobrychis Goði 1 19 2
Oxytropis Loðinbroddi 7 34 3
Trifolium Smári 5 64 4