Fjölrit RALA - 10.10.1994, Side 49
39
Landgræðsla
MELGRESI (132-1174).
Dúnmelur er í ræktun á Geitasandi og fræi hefur verið safnað af honum. Melgresi frá Síberíu er
þar og í forprófun. Tvær valdar arfgerðir af íslensku melgresi em í samanburðarreit á
Geitasandi. Önnur arfgerðin er með stutt strá og heldur fræi í axi verulega lengur en
samanburðararfgerðin. Dúnmelurinn og melurinn með stutta stráið hafa farið inn í
kynbótaverkefni nr. 132-9224.
Tilraun nr. 680-88. Samanburður á íslenskum mel og dúnmel frá Alaska, Geitasandi.
Hafist var handa um að kanna erfðabreytileika í íslenskum erfðahópum af mel (Leymus
arenarius) og í dúnmel frá Alaska (Leymus mollis) árið 1989.
Melgresi vex í öllum landsfjórðungum, aðallega á söndum og með ströndum
fram. Það þrífst best ef hreyfing er á sandinum og myndar þá sandhóla og nýtist því vel til
landgræðslu þar sem binda þarf foksand. Dúnmelur býr yfir öðmm eiginleikum. Hann myndar
t.d. ekki þúfur, en þær skapa vandamál við fræframleiðslu.
íslenska melnum (25 stofnum) var safnað víða um land árin 1986-87 á vegum
Norræna genbankans og sést uppmni hans í meðfylgjandi töflu. Dúnmelnum var safnað í
Alaska 1985 og vora tíu stofnar í þessari athugun. Auk þess var tekinn með dúnmelur, sem
sáð var fyrir um 40 ámm í Múlakoti í Fljótshlíð.
Melnum var plantað í tveimur endurtekningum á Geitasandi í júlí 1988. Af 36
stofnum vom 8 þó aðeins í annarri blokkinni (nr. 15, 16, 17, 32, 33, 36, 37 og 38). Af
hverjum stofni vom 20 plöntur í röð í hvorri blokk og 1 m hafður milli raða. Við útplöntun
vom 10 g af blönduðum áburði borin á hverja plöntu og síðan á hverju vori til 1993.
Haustið 1989 var melurinn metinn m.t.t. vaxtarlags, útbreiðslu og þróttar og
hverri plöntu gefin einkunn frá 1-5 og er einkunnin 5 hæst. Einnig var mæld lengd og breidd
blaðs og fjöldi sprota á hverri plöntu talinn. Haustið 1991 var melurinn metinn á ný og þá var
gefin einkunn (1-5) fyrir útbreiðslu, þéttleika, þrótt og hæð, og skráð hvort stofninn bæri punt.
Breytileiki innan erfðahópa reyndist ekki marktækur, svo að meðaltal hvers
eiginleika var reiknað. Stofnunum er raðað í lækkandi röð eftir heildareinkunn. Niðurstöður
helstu eiginleika era sýndir í meðfylgjandi töflu. Stofnar með hátt gildi og punt em þeir sem
era áhugaverðir til frekari prófunar. Mikill munur er á erfðahópunum, en áberandi er hve
Alaskamelurinn kemur vel út. Dúnmelurinn frá Múlakoti er þó með hæstu einkunnina og
hefur hann einnig punt. Eins og sést í töflunni em fæstir af erfðahópum íslenska melsins með
punt. íslenski melurinn er seinþroska og má gera ráð fyrir að haustið 1991 hafi plönturnar
ekki verið orðnar nógu gamlar til að þroska punt.