Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 15
Frítt
á söfnin
í sumar
Það er góð hugmynd að
nota tækifærið og skoða
söfnin okkar í sumar. Það eru
fjölbreyttar og áhugaverðar
sýningar í boði sem engin ætti
að láta fram hjá þér fara. Það
er opið alla daga vikunnar.
lyklavöldunum í Duus Safna-
húsum þegar söfnunum var skellt
í lás vegna kórónuveirufaraldurs.
Aðspurð hvernig hún hafi nýtt
þann tíma segist Helga aldrei haft
eins mikið að gera á ævinni og
hlær. „Það var lokað hjá okkur í
fjórar vikur og þann tíma nýtti
ég til að skipuleggja nýja sýningu
og á þeirri sýningu þurfti ég að fá
lánað hvert og eitt einasta verk.
Þetta var sýning Áslaugar Thorla-
cius og Loga Höskuldssonar. Loji
er örugglega einn eftirsóttasti
listamaður á Íslandi í dag og hann
liggur ekki á lager með eitt einasta
verk. Þannig að verkin sem voru
á sýningunni voru fengin að láni
eftir að ég hafði skrifast á við ein-
staklinga og fór heim til þeirra og
tók myndirnar niður af veggjum.
Þá fékk ég lánuð verk eftir Ás-
laugu hjá Listasafni Íslands og að
fá lánuð verk hjá listasafni er yfir-
leitt þriggja mánaða afgreiðslubið.
Þetta náðist allt í tíma og var mikið
mál. Svo skrifaði ég líka sýningar-
stjóratexta, setti sýninguna upp og
við vorum fyrsta listasafnið sem
opnaði eftir COVID-19 með sýn-
ingu 4. maí.“
Áfallalandslag til
umfjöllunar á Ljósanótt
– Nú er svo eitthvað allt annað í
gangi í listasalnum með videol-
istaverki en er svo Ljósanótt
næst?
„Já, þá opnar næsta sýning og þar
vil ég minna fólk á á hverskonar
jarðfræðisvæði við búum. Nátt-
úran hefur heldur betur gert vart
við sig á þessu ári. Mín stefna er að
við eigum alltaf að vera í samtali
við umhverfi okkar og samtímann.
Listin er tungumál og listin er líka
spegill af umhverfi okkar. Það er
áhugavert að reyna að draga um-
hverfið fram eins hratt og hægt er
til að sjá hverning við fjöllum um
þessa atburði einmitt núna. Ég
er með fimm listamenn sem eru
þekktir fyrir að vinna með nátt-
úruvá. Vinnuheiti sýningarinnar
er Áfallalandslag. Listafólkið er
að vinna að verki fyrir sýninguna
sem fjallar sérstaklega um þennan
stað og landslagið hér og þá vá sem
steðjar að okkur í þessari náttúru.“
Á ljósanótt verður einnig sýning
um Daða Guðbjörnsson sem er að
gefa Listasafni Reykjanesbæjar
um 400 grafíkteikningar en Aðal-
steinn Ingólfsson er sýningarstjóri
þeirrar sýningar. Þá er sýning sem
heitir 365 en gefið hefur verið út
dagatal með því nafni þar sem er á
hverjum degi nýr listamaður. Hug-
myndin með þeirri sýningu er að
sýna tíðaranda í myndlistinni.
Aðsóknin meiri en áður
Helga segir það vera stefnu að
auka aðsókn að safninu og það sé
að takast. Aðsókn sé meiri nú en
áður og það ráðist líka af því að
það séu góðar sýningar í gangi. Þá
er ókeypis aðgangur að safninu í
sumar en ekki er ákveðið hvernig
það verði til framtíðar. Aðgangs-
eyrir skiptir rekstur safnsins í raun
litlu máli í heildarmyndinni. Helga
segir að mikli fleiri Íslendingar séu
að koma á sýningarnar nú í vor og
sumar en áður.
Listahátíð barna féll niður í vor
vegna COVID-19 en það verkefni
verður áfram á vegum Listasafns
Reykjanesbæjar og stefna á að gera
því enn hærra undir höfði. Safnið
hefur m.a. stofnað rás á efnisveit-
unni Youtube þar sem má finna
myndbönd um þau verkefni sem
börn unnu að í vor og hefðu verið
sýnd í Listasafni Reykjanesbæjar
ef ekki hefði komið til heimsfar-
aldurs. Þá eru þar einnig viðtöl við
listamenn og sýningarstjóra.
Gerðið, verk eftir Steingrím Eyfjörð
í Stofunni í Duus Safnahúsum.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 15