Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 20
Komið er fram í miðjan júlí, allir stóru línubátarnir eru orðnir stopp
núna og því eru einu línubátarnir sem eru að róa núna um þessar
mundir 30 tonna bátarnir, eins og t.d Einhamarsbátarnir og minni bátar.
Aftur á móti þá fer að líða að því
að fjör færist í Keflavík og jafnvel
Sandgerði því að makrílveiðin fer
að hefjast. Hún er reyndar hafin
því að stóru uppsjávarskipin eru
byrjuð á makrílveiðum og líka er
frystitogarinn Hrafn Sveinbjarn-
arson GK byrjaður á makrílnum.
Enn sem komið er er makríllinn
reyndar nokkuð djúpt úti og hefur
ekki náð landi, eða í það minnsta
verið kominn það nálægt að króka-
bátarnir geta byrjað veiðar.
Nokkuð margir bátar eru orðnir
klárir til veiða á makríl og í
Keflavík voru fyrstu bátarnir sem
komu þangað Rán GK og Andey
GK. Andey GK var búinn að liggja
í slippnum í Njarðvík í allan vetur
en þessi bátur var aflahæstur allra
krókabáta á makríl árið 2018. Þá
var Bjössi skipstjóri á bátnum en
hann lenti í slysi um haustið 2018
og þurfti þá að hætta með Andey
GK.
Það sást vel hversu lunkinn fiski-
maður Bjössi var því árið 2018 var
Andey GK, eins og áður segir, afla-
hæsti makrílbáturinn á krókum
en árið 2019 var Andey GK með
neðstu bátunum sem veiddu
makríl.
Netabátarnir hans Hólmgríms
eru komnir á veiðar. Langanes
GK og Maron GK. Báðir er að róa
frá Sandgerði og hefur gengið
nokkuð vel hjá þeim. Langanes
GK kominn með 37 tonn í átta og
mest 7,7 tonn og Maron GK 34
tonn í átta og mest níu tonn. Nú
fer reyndar að líða að því að hinn
stóri báturinn sem Hólmgrímur á,
Grímsnes GK, verði klár til veiða
en hann lenti í alvarlegri vélarbilun
í febrúar 2020 og hefur ekkert róið
síðan. Sunna Líf GK hefur landað
6,5 tonn í sex róðrum.
Hjá dragnótabátunum þá kom
Sigurfari GK með fullfermi til
Sandgerðis því landað var úr
bátnum 56 tonnum. Siggi Bjarna
GK er með 37 tonn í tveimur,
Benni Sæm GK 35 tonn í tveimur
og Aðalbjörg RE 31 tonn í fimm.
Annars má segja að flestallir séu
í fríi og þar á meðal ég en þessi
pistill er skrifaður frá Laugum í
Þingeyjarsveit þar sem ég er búinn
að vera í sumarbústað í heila viku
ásamt konu, börnum og pabba,
Reyni Sveinssyni. Eins og gefur
að skilja þá er enginn tenging við
sjávarútveginn á Suðurnesjum við
þennan stað en hægt er að fara til
Húsavíkur og þar finnst ansi mikil
tenging við útgerð og sjósókn á
Suðurnesjum, nánar um það síðar.
Bátar orðnir klárir fyrir veiðar á makríl
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
NÆSTI ÞÁTTUR
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
ALDREI HLÉ!
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
20 // aFlaFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár