Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 27

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 27
... ég vil meina að við eigum bestu stuðningsmenn deildarinnar. Maður fann orkuna eftir Grindavíkur­ leikinn, hvað hún var frábær og hvað allir flykktust á bak við liðið ... Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta – Þú ert í toppformi núna, er það ekki? Jú, mér líður mjög vel og er alltaf að reyna að bæta mig. Ég vil ennþá ná langt og þó maður sé orðinn þetta gamall [23 ára] þá vill maður ennþá getað afrekað eitthvað í þessu (þarna benti blaðamaður Sindra á að Dino Zoff hafi verið fertugur þegar hann varð heims- meistari með Ítölum, 23 ára væri enginn aldur fyrir markmann). Maður segir bara svona segir Sindri og hlær. Ég stefni lengra en Keflavík er frábær vettvangur fyrir mig að vera á núna og ég er stoltur að vera að taka þátt í þessu enn eitt árið. Við höfum ekkert falið það í undirbúningnum að við erum eitt af þessum liðum sem stefnir á annað af þessum sætum í efstu deild. Við megum ekki misstíga okkur oft, ég meina við munum tapa stigum en þá verðum við að koma strax til baka eins og við gerðum núna. – Þið mætið Þrótti í næsta leik, það er væntanlega leikur sem má ekki vanmeta. Nei, lúmskerfiður leikur þar sem þeir eru búnir að tapa fyrstu fimm leikjum sínum og eru væntanlega dýrvitlausir að sækja einhver stig. Við verðum að fara af fullum huga í þann leik annars fer illa, þeir eru með fínan mannskap og við töpuðum fyrir þeim heima í fyrra. Þetta er skyldusigur en við megum ekki fela okkur á bak við það, við verðum að sækja þessi stig. Að lokum vil ég fá að hrósa stuðningsmönnum okkar, ég vil meina að við eigum bestu stuðn- ingsmenn deildarinnar. Maður fann orkuna eftir Grindavíkur- leikinn, hvað hún var frábær og hvað allir flykktust á bak við liðið. Frábært andrúmsloft og maður verður að hrósa öllu þessu liði sem nennir að mæta og horfa á okkur sama hvað. Sindri leiðir Keflvíkinga í fagni inni í klefa eftir leik Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 27

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.