Víkurfréttir - 15.07.2020, Qupperneq 31
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDAFULLTRÚI
Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Íþrótta- og tómstunda-
fulltrú gegnir lykilhlutverki í skipulagningu og umsjón með öllu tómstundastarfi í sveitarfélaginu, jafnt fyrir unga
sem aldna. Forvarnir er mikilvægt leiðarljós í starfinu. Íþrótta- og tómstundafulltrúi er tengiliður sveitarfélags-
ins við frjáls félagasamtök á vettvangi íþrótta og tómstunda sem starfa í sveitarfélaginu og ber ábyrgð á að rekstur
sé í samræmi við fjárhagsheimildir og innan samþykktrar fjárhagsáætlunar. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri.
Verksvið:
• Forstöðumaður Borunnar, félagsmiðstöðvar
unglinga, og er næsti yfirmaður starfsfólks. Sinnir
reglubundinni viðveru á opnunartíma samkvæmt
nánara samkomulagi
• Hefur umsjón með og veitir forstöðu félagsstarfs
eldri borgara
• Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunn-
skólans, og hefur þar reglubundna viðveru þar
sem tengslin við nemendur og starfsfólk eru efld
• Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök
sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstunda-
starfsemi í sveitarfélaginu, á grundvelli samstarfs-
samninga milli sveitarfélagsins og viðkomandi
félags
• Hefur umsjón með og samræmir allt forvarnar-
starf, einkum er snýr að börnum og ungmennum
• Er tengiliður og umsjónarmaður með verkefn-
unum Heilsueflandi samfélag og Barnvænt sam-
félag, sem sveitarfélagið tekur þátt í
• Tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd við-
burða á vegum sveitarfélagsins, í samstarfi við
menningarfulltrúa
• Situr fundi Frístunda- og menningarnefndar og
kemur að undirbúningi mála í samstarfi við for-
mann hennar. Íþrótta- og tómstundafulltrúi er
starfsmaður nefndarinnar, auk menningarfulltrúa
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á
sviði kennslu, íþrótta og tómstunda
• Farsæl reynsla af íþrótta- og tómstundastarfi
• Óbilandi áhugi á velferð íbúa sveitarfélagsins, og
hæfni til að eiga góð og uppbyggileg samskipti
við alla aldurshópa
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnu-
brögðum
• Áhersla á færni og lipurð í samskiptum, við alla
aldurshópa
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Um fullt starf er að ræða.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Starfsmannahandbók ásamt starfsmannastefnu sveitarfélagsins má sjá á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is
Starfið er laust samkvæmt nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri, netfang asgeir@vogar.is
Umsóknarfrestur er til 24. júlí 2020. Umsóknum skal skilað á netfangið skrifstofa@vogar.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að lokinni ráðningu.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 31
Atli Freyr skoraði seinna
mark Njarðvíkinga eftir að
KF bjargaði á marklínu.
Sean de Silva var
nærri því að skora.
Bergþór Ingi var öflugur
í leiknum, skoraði mark
og var duglegur.