Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 38
Svanur Már Scheving er mikill íþróttamaður í
Reykjanesbæ og er í 3N þar sem hann er að hjóla,
synda og hlaupa og hefur verið í þeim félagsskap
í nokkur ár. Í vor fékk Birna Hrönn, kærasta hans,
þá hugmynd að fara hringinn í kringum Ísland.
Hún ætlaði að synda í öllum vötnum við hring-
veginn og bauð Svani að koma með. Hann ákvað
því að slá til og hjóla hringinn. Birna dregur því
tjaldvagn eftir hringveginum sem þau nota sem
gistiaðstöðu en Svanur er að hjóla ríflega 100
kílómetra á dag, jafnvel alveg 140 kílómetra.
Þegar Víkurfréttir heyrðu í Svani
var hann nýkominn á Reyðarfjörð
og ferðalagið var búið að ganga vel.
Hann sagði að það væru fáir ferða-
menn á ferli. Hann hafi aðeins hitt
á fimm hjólandi ferðamenn á
leið sinni frá Reykjanesbæ
og til Reyðarfjarðar. Hann
var þá að ljúka við að hjóla
750 km. á sex dögum en
leiðin sem Svanur fer um
landið er 1.500 km.
Svanur og Birna ætla að gefa
sér hálfan mánuð í hringferðina.
Hún syndir í öllum vötnum sem
verða á vegi þeirra. Á Facebook-
síðum þeirra má sjá myndir og
myndskeið þar sem Birna syndir
m.a. í Jökulsárlóni á Breiða-
merkursandi og á fleiri stöðum í
magnaðri íslenskri
náttúru. Birna
er vön sund-
kona, er
heims-
meistari
í sínum
aldurs-
flokki í íssundi og er búin að vera
í mörg ár í þessu. Selir og hvalir
hafa alveg látið Birnu í friði þegar
hún er að synda í sjó og vötnum
en í einu sundi á hringferðinni
gerði svanur, þó ekki Svanur Már,
Birnu lífið leitt og réðst að henni.
Hún komst þó ósködduð úr þeirri
viðureign.
Spurður hvernig sé að hjóla úti
á vegunum í dag þá segir Svanur
að það sé mikið af Íslendingum
á ferðinni. Svanur hefur haft þá
reglu að fara af stað klukkan sex
á morgnanna og umferðin sé ekki
að byrja fyrr en um tíu leytið.
Þau hafa hreppt allskonar veður
á ferðalaginu. Suðurströndin var
sólrík en á dagleiðinni að Reyðar-
firði þá var mikill vindur. Svanur
er að ná að hjóla á 25–30 km.
Svanur Már hjólar hringveginn og
Birna syndir í öllum vötnum á sömu leið
Hjóla og synda hringinn
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
38 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.