Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 44
Sum verkefni geta farið úr böndunum á jákvæðan hátt. Því hefur Sylvía Guð-
mundsdóttir fengið að kynnast á síðustu dögum. Hún fer fyrir Team Róbert
#2121 sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoni þann 22. ágúst næstkomandi.
Team Róbert #2121 hleypur fyrir Styrktarsjóð Arnarskóla. Hópurinn er að safna
fyrir leiktækjum á skólalóð Arnarskóla. Arnarskóli er sjálfstætt starfandi skóli,
stofnaður 2017, fyrir börn með einhverfu og önnur þroskafrávik. Markmið
styrktarsjóðs Arnarskóla er að afla fjár og veita styrkjum til Arnarskóla til að
efla starfsemi skólans svo koma megi betur til móts við þarfir nemenda hans.
Sylvía var nokkuð kokhraust
þegar hún setti söfnun áheita
af stað og lofaði að koma fram á
netinu og syngja lag fyrir hverjar
50.000 krónur sem söfnuðust.
„Þetta sprakk svolítið í andlitið
á mér. Ég átti ekki von á þessum
viðbrögðum,“ segir Sylvía í viðtali
við Víkurfréttir á mánudaginn. Þá
hafði hún safnað rúmum 400.000
krónum í áheit.
„Þetta var ekkert útpælt. Ég
byrjaði á því að lofa einu mynd-
bandi ef við kæmumst yfir
100.000 krónur og ég hélt að allt í
allt yrðu þetta kannski þrjú mynd-
bönd fyrir hlaup. Þetta sprakk en
er alveg dásamlegt að fá þessi við-
brögð og maður er alveg ofboðs-
lega þakklátur enda þetta búið að
ganga vonum framar,“ segir Sylvía.
Hún segir þau í Arnarskóla vera í
skýjunum með viðbrögðin og þetta
framtak.
„Núna er ég að hugsa næstu
skref og hvernig ég get haldið
þessu áfram og áhugaverðu. Það
er kannski ekki spennandi að ég sé
bara ein inni í herbergi að góla eitt-
hvað í myndavélina, þannig að ég
er að reyna að finna nýja vinkla.“
– Þú ert nú búin að draga fram
í sviðsljósið eitthvað af þínu
fólki. Valdimar bróðir þinn
hefur sungið með þér og einnig
foreldrar þínir.
„Jú, hann er víst eitthvað aðeins
þekktur hann litli bróðir minn,“
segir Sylvía um Valdimar Guð-
mundsson. „Við erum að skoða
næstu skref því það er nóg að gera
í daglegu lífi líka. Ég er með fjögur
börn á heimilinu, þannig að það er
ekki eins og maður sé bara í söng-
bransanum þessa dagana,“ segir
Sylvía og hlær.
Um nýliðna helgi var Sylvía að
halda stórt barnaafmæli heima
hjá sér en stalst afsíðis til að taka
upp lag og setja á fésbókina, þar
sem hún skuldaði orðið lag fyrir
enn eitt 50.000 króna markið. „Ég
henti bara marengs í ofninn og fór
svo inn í herbergi og söng eitt lag.
Þetta er bara svo yndislega gaman
og að fá þessi viðbrögð og þennan
stuðning. Ég er að eðlisfari ekki
mjög framfærin og finnst þetta
pínu skrítið og erfitt en að geta
safnað þessum pening, þá er þetta
algjörlega þess virði. Þessi skóli
er svo yndislegur og hefur reynst
okkur svo ofboðslega vel. Það
þekkja ekki margir hvernig það er
Sylvía brestur í söng
á 50.000 króna fresti
Team Róbert safnar áheitum fyrir skóla einhverfra barna
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Sylvía
Guðmundsdóttir og
Róbert Már Bjarkason,
sonur hennar.
44 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.