Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 44

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 44
Sum verkefni geta farið úr böndunum á jákvæðan hátt. Því hefur Sylvía Guð- mundsdóttir fengið að kynnast á síðustu dögum. Hún fer fyrir Team Róbert #2121 sem tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoni þann 22. ágúst næstkomandi. Team Róbert #2121 hleypur fyrir Styrktarsjóð Arnarskóla. Hópurinn er að safna fyrir leiktækjum á skólalóð Arnarskóla. Arnarskóli er sjálfstætt starfandi skóli, stofnaður 2017, fyrir börn með einhverfu og önnur þroskafrávik. Markmið styrktarsjóðs Arnarskóla er að afla fjár og veita styrkjum til Arnarskóla til að efla starfsemi skólans svo koma megi betur til móts við þarfir nemenda hans. Sylvía var nokkuð kokhraust þegar hún setti söfnun áheita af stað og lofaði að koma fram á netinu og syngja lag fyrir hverjar 50.000 krónur sem söfnuðust. „Þetta sprakk svolítið í andlitið á mér. Ég átti ekki von á þessum viðbrögðum,“ segir Sylvía í viðtali við Víkurfréttir á mánudaginn. Þá hafði hún safnað rúmum 400.000 krónum í áheit. „Þetta var ekkert útpælt. Ég byrjaði á því að lofa einu mynd- bandi ef við kæmumst yfir 100.000 krónur og ég hélt að allt í allt yrðu þetta kannski þrjú mynd- bönd fyrir hlaup. Þetta sprakk en er alveg dásamlegt að fá þessi við- brögð og maður er alveg ofboðs- lega þakklátur enda þetta búið að ganga vonum framar,“ segir Sylvía. Hún segir þau í Arnarskóla vera í skýjunum með viðbrögðin og þetta framtak. „Núna er ég að hugsa næstu skref og hvernig ég get haldið þessu áfram og áhugaverðu. Það er kannski ekki spennandi að ég sé bara ein inni í herbergi að góla eitt- hvað í myndavélina, þannig að ég er að reyna að finna nýja vinkla.“ – Þú ert nú búin að draga fram í sviðsljósið eitthvað af þínu fólki. Valdimar bróðir þinn hefur sungið með þér og einnig foreldrar þínir. „Jú, hann er víst eitthvað aðeins þekktur hann litli bróðir minn,“ segir Sylvía um Valdimar Guð- mundsson. „Við erum að skoða næstu skref því það er nóg að gera í daglegu lífi líka. Ég er með fjögur börn á heimilinu, þannig að það er ekki eins og maður sé bara í söng- bransanum þessa dagana,“ segir Sylvía og hlær. Um nýliðna helgi var Sylvía að halda stórt barnaafmæli heima hjá sér en stalst afsíðis til að taka upp lag og setja á fésbókina, þar sem hún skuldaði orðið lag fyrir enn eitt 50.000 króna markið. „Ég henti bara marengs í ofninn og fór svo inn í herbergi og söng eitt lag. Þetta er bara svo yndislega gaman og að fá þessi viðbrögð og þennan stuðning. Ég er að eðlisfari ekki mjög framfærin og finnst þetta pínu skrítið og erfitt en að geta safnað þessum pening, þá er þetta algjörlega þess virði. Þessi skóli er svo yndislegur og hefur reynst okkur svo ofboðslega vel. Það þekkja ekki margir hvernig það er Sylvía brestur í söng á 50.000 króna fresti Team Róbert safnar áheitum fyrir skóla einhverfra barna Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Sylvía Guðmundsdóttir og Róbert Már Bjarkason, sonur hennar. 44 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.