Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 64
Dróninn er bylting
fyrir ljósmyndara
Víkurfréttir birtu viðtal
við kappann fyrir nokkrum
árum, rétt áður en Jón
eignaðist dróna eða flygildi.
Hann segir að það hafi verið
alger bylting að eignast
dróna.
„Þetta er nýtt líf fyrir ljós-
myndarann. Með drónanum
getur maður gert hluti sem
ekki er hægt annars. Mesta
byltingin er þetta nýja sjón-
arhorn sem maður fær. Ég
sendi drónann oft út á sjó
og fylgi bátum sigla inn inn-
siglinguna í Grindavík. Svo
næ ég þeim stundum draga
inn veiðarfærin, línuna eða
dragnótina. Þetta er allt ansi
myndrænt og skemmtilegt.“
Jón segir að fyrstu mynd-
irnar með dróna hafi ekki
verið góðar en með meiri
ástundun sé þetta orðið
ágætt. „BBC fékk myndir frá
mér í fyrra. Sjónvarpsstöðin
var að gera þátt sem fjallar
um það sem Bretar kaupa
og selja á einum degi. Sú
dagskrá tengdist auðvitað
Íslandi en þeir kaupa m.a.
mikið af fiski frá Grindavík,“
segir Jón en hefur hann ekki
lent í neinum vandræðum
með drónann?
Lenti í sjónum
„Ég er búinn að „krassa“
einum dróna. Sá fyrsti sem
ég eignaðist lenti í árekstri
við bát þegar ég var að
mynda annan á leið inn í
höfn. „Þetta var fyrir klaufa-
skap í mér, ég gerði smá
flugmannsmistök og tapaði
þeim dróna beint í höfnina.
Ég var að fylgja nýjum Ein-
hamarsbáti eftir hérna inn
höfnina, á kambi hinum
megin. Svo horfi ég bara á
skjáinn og flýg eftir honum
og sný á hlið og svo bara
verður allt svart. Um leið og
ég leit upp þá sá ég að bát-
urinn Sighvatur var að fara
út ... og tapaði drónanum
beint í sjóinn. Ég var mest
svekktur yfir að hafa tapað
minniskortinu með öllum
myndunum í fullum gæðum.
Það fór allt í sjóinn. En maður
lærir af mistökunum og ég
fór strax daginn eftir og
keypti mér nýjan reyndar og
hef verið með hann síðan.“
Hvað með netsambandið
við drónann, er það
alltaf í lagi?
Ég missi stundum netsam-
band við drónann og fyrst
þegar það var að gerast varð
ég áhyggjufullur en hann
kemur alltaf aftur. Er eins og
hlýðinn hundur,“ segir okkar
maður og hlær.
Ljósmyndir og
myndskeið
Jón tekur bæði ljósmyndir
og video á drónann. Klippir
saman myndskeið og setur
tónlist með en hann notar
líka fínu Canon-myndavé-
lagræjurnar sínar í ljós-
myndunina. Á fullt af linsum,
breiðar og langar.
Hann birtir mikið magn af
bátamyndum á Facebook-
síðunni ‘Bátar og bryggju-
brölt’. Hann fær oft mikil
viðbrögð þegar hann birtir
myndirnar og sumar hafa
fengið 50 til 60 þúsund flett-
ingar sem er mjög mikið.
Bæjarbúar í Grindavík og
fólk í sjávarútvegi fylgist vel
með Jóni enda er hann dug-
legur að birta myndir sem
tengjast fiski og bátum.
Hann segir að hann hafi oft
verið hissa á því hvað margar
konur væru að „kommenta“
á síðunni en þá kom það auð-
vitað í ljós að eiginmennirnir
voru að nota Facebook-
reikning eiginkonunnar.
„Ég er mjög oft stopp-
aður í Grindavík. Bæjarbúar
eru ánægðir þegar ég er að
birta myndir og myndskeið.“
Hann segist líta á það sem
samfélagslegt verkefni hjá
sér að auglýsa bæinn sinn.
Jón myndar líka landslag
en ekki fólk. Hann tekur
græjurnar með sér þegar
hann fer í frí og út á land. „Ég
er hræddur um að ég gleymi
frekar konunni,“ segir hann
og hlær. „Nei, nei. Hún sýnir
þessu brölti mínu mikinn
skilning og fyrir það er ég
þakklátur. Það er nauðsyn-
legt að hafa góða konu á bak
við sig,“ segir Jón Steinar.
„Þetta er nýtt líf fyrir ljósmyndarann.
Með drónanum getur maður gert
hluti sem ekki er hægt annars.
Mesta byltingin er þetta nýja
sjónarhorn sem maður fær.“
Páll Ketilsson
pket@vf.is
64 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.