Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 72

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 72
bílstjórans, bílnúmer, hvert skal haldið, staðfesting á hótelbókun í Kathmandu og svo flugi þaðan úr landi. Enginn vildi taka áhættu að keyra okkur til Kathmandu án leyfis þar sem það þýddi að við- komandi missti bílprófið, bíllinn yrði tekinn og allt að tveggja ára fangelsisvist. Máttum alls ekki láta mikið á okkur bera ef við yrðum stoppuð Loksins eftir margra klukkustunda bið fengum við sent leyfisbréf frá þýskum stjórnvöldum. Við höfðum misst af fyrri flugunum en ef við kæmumst í tæka tíð myndum við vonandi ná þeim seinni daginn eftir. Það sakaði alla vega ekki að reyna. Hópurinn minn var allur listaður í þau flug en það gekk erf- iðlega að koma mér á þann lista. Ég var eini Íslendingurinn sem var að reyna að komast í burtu frá Nepal að ég best vissi. Bílstjórinn sem við vorum búin að vera í sambandi við kom fljótt og við þurftum að vera snögg. Leyfisbréfið sem við vorum með í höndunum var ein- göngu ætlað Þjóðverjum. Ég, ásamt tveimur frönskum vinum mínum, máttum alls ekki láta mikið á okkur bera ef við yrðum stoppuð. Það gæti allt farið á versta veg því við vorum ólögleg í bifreiðinni. Þegar við keyrðum í gegnum Pokhara var eins og að keyra í gegnum draugabæ. Allt var lokað og fólk sást varla. Einstaka sinnum sá maður glitta í nokkra einstakl- inga út á svölum sem störðu mjög hissa á bílinn. Útgöngubannið var strangt og það vissu allir. Stoppuð af löggunni og með hjartað í buxunum Við enda Pokhara stóð lögreglan vörð og stoppaði okkur. Ég og franska parið snarþögðum. Bíl- stjórinn sýndi leyfisbréfið og var svo kallaður inn í tjald til að gera grein fyrir sér og okkur og var þar í dágóðan tíma. Hann kom loksins til baka ásamt lögreglunni sem leit inní bílinn þar sem við sátum með hjartað í buxunum. Lögreglan kinkaði kolli hleypti okkur í gegn og við gátum andað léttar. Löng bílferð var framundan á ójöfnum fjallavegum. Ferðin átti að taka átta klukkustundir en vegna engrar umferðar þá tók aksturinn fjórar klukkustundir. Ég held að við hefðum átt mjög erfitt með lengri bílferð þar sem loftræstingin virkaði ekki og við sem sátum aftast vorum við það að kasta upp þegar komið var til Kathmandu. Engan mat að fá Í Kathmandu voru göturnar sömu- leiðis tómar eins og annars staðar. Við bókuðum gistingu til að ná hvíld áður en við myndum reyna á flugið daginn eftir. Tveir yndis- legir drengir tóku á móti okkur á hótelinu. Engan mat var hægt að fá þar sem allt var lokað en þeir buðust til að steikja handa okkur hrísgrjón. Við vorum öll orðin ótrúlega svöng enda áliðið og við höfðum ekkert borðað síðan um morguninn. Hvít hrísgrjón með smátt skornu grænmeti ásamt tómatsósu var á boðstólnum. Við vorum afar þakklát þar sem við fundum að mikill kærleikur var lagður í matinn. Kvöldið var nota- legt og við nutum þess að borða og spjalla frameftir þar sem þetta voru mögulega síðustu stundirnar okkar saman í bili. Hann kom loksins til baka ásamt lögreglunni sem leit inní bílinn þar sem við sátum með hjartað í buxunum. Lögreglan kinkaði kolli hleypti okkur í gegn og við gátum andað léttar. 72 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.