Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 75
allt saman gengið upp. Spritt, hand-
þvottur og maskinn á sínum stað á
leið í tveggja vikna sóttkví. Mamma
var mætt upp á flugvöll til að taka
á móti mér. Með tvo metra á milli
okkar brast ég í grát yfir ástandinu
og fannst mjög erfitt að geta ekki
faðmað hana eftir mánaðar fjarveru.
Sonur minn, Jökull, var staddur hjá
pabba sínum og stjúpmömmu þegar
ég lenti. Hann var alveg að fara að
verða stóri bróðir. Við vissum að
við gætum ekki notið návistar hvors
annars næstu tvær vikurnar þar sem
mér var ætlað að vera í sóttkví. Við
vildum passa okkur extra vel sérstak-
lega vegna þessa.
Ég fór fyrir utan hjá honum því mig
langaði svo að sjá hann. Hann stóð í
dyragættinni og ég út á miðri götu.
Ég bað hann að halda utan um sjálfan
sig loka augunum og ímynda sér að
ég væri að faðma hann. Ég gerði það
sama.
Einsömul í sveitina
Ég fór einsömul í sveitina til að klára
mína sóttkví. Ég er svo lánsöm að
fjölskyldan á fallegu jörðina Öxl á
Snæfellsnesi þar sem ég naut ein-
verunnar í tvær vikur. Dagarnir ein-
kenndust af símtölum, gönguferðum,
sjósundi og brimbretti. Ég bjó til
kennslumyndbönd um öndunar-
æfingar og jóga sem ég deildi á Fa-
cebook. Ég undirbjó einnig opnun
Jógahlöðunnar sem er staðsett á Öxl.
Náminu frá Nepal var ólokið vegna
aðstæðna en ákveðið var að klára
síðustu fjóra dagana í gegnum net-
miðla. Það var gott utanumhald
þegar ég byrjaði sóttkvína og var
þá í raun auðveldara að vera í góðri
rútínu. Ég stundaði mína jógaiðkun
mjög skipulega og hélt nokkurn
veginn í dagskrána mína eins og hún
var í Nepal.
Nú svara ég kallinu með glöðu
Ég er hjúkrunarfræðingur og vinn
á slysa- og bráðamóttökunni á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Fram
að þessum tíma og undanfarin þrjú,
fjögur ár hef ég verið þar í hlutastarfi
ásamt öðrum vinnum eins og flug-
freyjustarfi hjá Icelandair og jóga-
kennslu, bæði hér heima og erlendis.
Nú svara ég kallinu með glöðu að
vinna á HSS eins mikið og mín er
þarfnast. Þá mun ég vera í sjálfskip-
aðri sóttkví fyrir utan mínar vaktir
og ætla svo sannarlega að njóta
þess að vera með syni mínum þessa
örfáu daga milli sóttkvíar og fyrsta
vinnudagsins sem er næstkomandi
föstudag.
Hann stóð í dyragættinni og ég út á
miðri götu. Ég bað hann að halda
utan um sjálfan sig loka augunum
og ímynda sér að ég væri að faðma
hann. Ég gerði það sama.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 75