Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 84
borðar morgunmat. Ég fylgist með fréttum
á báðum stöðum og rífst yfir pólítíkinni
alveg jafnt á Íslandi sem og Englandi.“
Sigrún segist vera mjög náin fjölskyld-
unni sinni. „Við erum virkilega góðir vinir
og höldum miklu sambandi, sem er afskap-
lega auðvelt að gera með nútímatækni.
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að þegar
ég flutti til London átti ég samskipti við
mömmu og pabba með gamaldags bréfa-
skrifum og nú „hittumst“ við mamma í kaffi
á hverjum degi og horfum framan í hvora
aðra „í beinni“. Ég hef líka alltaf haldið „pro-
fessional“ sambandi við landið. Ég byrjaði
að kenna við Listaháskólann 2002 og held
námskeið fyrir tónlistarkennara og stjórn-
endur á hverju sumri. Svo er ég líka fengin
í alls kyns önnur verkefni á landinu þegar
ég kem því við. Til dæmis stjórnaði ég 600
manna barnakór í Hörpu 2018. Þetta var á
samnorrænu kóramóti, Norbusang, þar sem
ég hafði samið nýtt tónverk af þessu tilefni
en skilið eftir eyður svo þátttakendur gætu
hjálpað mér að klára að semja verkið. Það
var mjög krefjandi en skemmtilegt.
Ég kem með börnin mín á hverju sumri
og svo erum við öll á Íslandi önnur hver jól.
Að auki kem ég reglulega í vinnuferðir. Nú
er bara að vona að það geti haldið áfram
eftir Covid.“
Íbúðarhús frá Viktoríutímabilinu
– Hefurðu alltaf búið á sömu slóðum í
London?
„Fyrir utan fyrsta árið mitt í London, hef
ég búið nánast á sama punktinum, rétt
í nágrenni við Crystal Palace síðan ég
flutti hingað. Fyrst í íbúð sem ég leigði
með vinum mínum á námsárunum og
svo í tveimur leiguíbúðum með Paul. Við
keyptum svo íbúð í hefðbundnu íbúðar-
húsi frá Viktoríutímabilinu í Sydenham
2003. Okkur bauðst svo að kaupa efri
hæðina nokkrum árum síðar. Við leigðum
efri íbúðina í nokkur ár en þegar börnin tvö
voru farin að stækka, og okkur fór að vanta
meira pláss, létum við færa húsið aftur í
sitt upprunalega horf og breyta íbúðunum
tveimur í eitt hús.
Þetta er afskaplega notalegt hverfi þar
sem við erum umkringd yndislegum ná-
grönnum og fallegum almenningsgörðum
í allar áttir. Hverfið er einstaklega grænt
og auk almenningsgarðanna erum við með
villtan skóg í fimmtán mínútna göngufjar-
Oft er ég í stórkostlega ólíku
umhverfi á einum og sama
deginum. Sem dæmi get ég nefnt
dag fyrir nokkrum vikum þar
sem ég byrjaði daginn á fundi
í skýli fyrir mjög viðkvæmt
heimilislaust fólk, kenndi svo í
Guildhall-tónlistarháskólanum
um hádegið og endaði
daginn í fátækrahverfi í
nágrenni Northampton þar
sem ég var að semja lög með
börnum og unglingum ...
Með stjúpdætrum, mökum og dótturdóttur:
„Þessi mynd var tekin sumarið 2018 þegar tvær af þremur stjúpdætrum mínum, ásamt mökum
og dótturdóttur, komu með okkur í frí til Íslands. Þetta var yndislegt frí og hálfgert ættarmót
þar sem við, mamma, bræður mínir og fjölskyldur dvöldum öll saman í bústöðum við Flúðir
í tvær nætur en fyrst forum við, „enska útibúið“, til Víkur og skoðuðum suðurlandið.
Á myndinni eru f.v.: Sigrún, Paul, Rhys Ragnar, Matt Pardy, Ed Cooper, Alex Cooper,
Emillie Griffiths-Brown, Sædís Rhea og í fanginu á henni, Francesca Griffiths-Brown.
Á myndina vantar Bellu May og Sam Muller, manninn hennar, en þau komu ekki
með í þessa ferð (á síðustu vikum hafa tvær dótturdætur bæst í hópinn, aðra þeirra
höfum við ekki náð að hitta því hún fæddist eftir að útgöngubann var sett á).
84 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.