Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 86
hádegið og endaði daginn í fátækrahverfi í
nágrenni Northampton þar sem ég var að
semja lög með börnum og unglingum.“
Alvarlega veik með COVID-19
– Líturðu björtum augum til sumarsins?
„Þetta er dálítið snúin spurning. Allt í
mínu lífi hefur breyst á síðustu sex vikum.
Ég átti að stjórna tónleikum á djassfesti-
vali í London í apríl, átti að vera að vinna
á Íslandi í maí, átti að tala á ráðstefnu í
Búdapest í júní og vinna með heimililausa
samfélaginu í Los Angeles í október en
öllu hefur verið aflýst. Börnin mín munu
að öllum líkindum ekki ganga í skóla aftur
fyrr en í september og maðurinn minn, sem
venjulega væri 1/3 hluta hvers árs á vinnu-
tengdum ferðalögum um allan heim, er allt
í einu heima alla daga og verður það þangað
til annað kemur í ljós.
Að auki urðum við Paul fyrir þeirri hrika-
legu lífsreynslu að verða alvarlega veik með
COVID-19. Þó við höfum ekki verið lögð inn
á sjúkrahús þá stóð ég mjög tæpt þar sem ég
h æ t t i
að anda og féll saman. Sem betur fer var
Paul hér hjá mér svo hann náði að aðstoða
mig og þegar sjúkrabíllinn kom voru lífs-
mörk mín orðin eðlileg á ný. Daginn eftir var
okkur ráðlagt að hringja á annan sjúkrabíl
þar sem ég fann fyrir svo miklum verkjum í
brjóstholi og efra baki. Á bráðamóttökunni
var ég mynduð og þá kom í ljós vatn á
lungum. Ég fékk fúkkalyf og við það hófst
mitt bataferli en þá varð Paul mjög veikur.
Nú eru liðnar sex vikur frá því að við
urðum veik. Ég er nánast alveg orðin eins
og ég á að mér að vera, þó ég finni af og til
fyrir eftirköstum, og Paul er við það að ná
sér. Það tók mun lengri tíma fyrir hann að
komast almennilega á fætur, enda er hann
astmasjúklingur.“
Lífsreynsla sem setti allt
annað í nýtt samhengi
Sigrún segir að þessi lífsreynsla hefur skilið
mikið eftir sig og sett allt annað í nýtt sam-
hengi. „Ég er viss um að hefðum við ekki
lent í þessu værum við eflaust miklu upp-
teknari af áhyggjum af atvinnunni okkar og
áhrifum veirunnar á daglegt líf og framtíð-
arsýn en eins og stendur erum við ótrúlega
þakklát fyrir það sem er. Við eigum yndis-
legt heimili þar sem við höfum öll nóg pláss
til þess að eiga okkar einverustundir sem og
samverustundir. Við erum með stóran garð
þar sem við getum dundað okkur, grillað og
haft það notalegt.“
Hún segir í gamansömum tón að fjöl-
skyldunni komi vel saman enn sem komið
er. „Sjáum hvernig ég svara þegar vikunum
fjölgar en ofar öllu, við erum á lífi.“
– Hvað með áhugamálin og hefur
ástandið haft áhrif á þau?
„Ég er nú svo heppin að aðaláhugamál mitt
er matargerð svo nú snýst lífið aðallega
um spekúlasjónir um hvað ætti að hafa í
kvöldmatinn. Það er líka svolítið áhugavert
hvernig COVID hefur haft áhrif á matarinn-
kaup. Það eru risavaxnar raðir fyrir utan
búðirnar og enn er skortur á ákveðnum
hlutum eins og hveiti og eggjum. Svo á
Að auki urðum við Paul
fyrir þeirri hrikalegu
lífsreynslu að verða
alvarlega veik með
COVID-19. Þó við höfum
ekki verið lögð inn á
sjúkrahús þá stóð ég mjög
tæpt þar sem ég hætti að
anda og féll saman ...
Smelltu hér til að hlusta!
86 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.