Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 86

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 86
hádegið og endaði daginn í fátækrahverfi í nágrenni Northampton þar sem ég var að semja lög með börnum og unglingum.“ Alvarlega veik með COVID-19 – Líturðu björtum augum til sumarsins? „Þetta er dálítið snúin spurning. Allt í mínu lífi hefur breyst á síðustu sex vikum. Ég átti að stjórna tónleikum á djassfesti- vali í London í apríl, átti að vera að vinna á Íslandi í maí, átti að tala á ráðstefnu í Búdapest í júní og vinna með heimililausa samfélaginu í Los Angeles í október en öllu hefur verið aflýst. Börnin mín munu að öllum líkindum ekki ganga í skóla aftur fyrr en í september og maðurinn minn, sem venjulega væri 1/3 hluta hvers árs á vinnu- tengdum ferðalögum um allan heim, er allt í einu heima alla daga og verður það þangað til annað kemur í ljós. Að auki urðum við Paul fyrir þeirri hrika- legu lífsreynslu að verða alvarlega veik með COVID-19. Þó við höfum ekki verið lögð inn á sjúkrahús þá stóð ég mjög tæpt þar sem ég h æ t t i að anda og féll saman. Sem betur fer var Paul hér hjá mér svo hann náði að aðstoða mig og þegar sjúkrabíllinn kom voru lífs- mörk mín orðin eðlileg á ný. Daginn eftir var okkur ráðlagt að hringja á annan sjúkrabíl þar sem ég fann fyrir svo miklum verkjum í brjóstholi og efra baki. Á bráðamóttökunni var ég mynduð og þá kom í ljós vatn á lungum. Ég fékk fúkkalyf og við það hófst mitt bataferli en þá varð Paul mjög veikur. Nú eru liðnar sex vikur frá því að við urðum veik. Ég er nánast alveg orðin eins og ég á að mér að vera, þó ég finni af og til fyrir eftirköstum, og Paul er við það að ná sér. Það tók mun lengri tíma fyrir hann að komast almennilega á fætur, enda er hann astmasjúklingur.“ Lífsreynsla sem setti allt annað í nýtt samhengi Sigrún segir að þessi lífsreynsla hefur skilið mikið eftir sig og sett allt annað í nýtt sam- hengi. „Ég er viss um að hefðum við ekki lent í þessu værum við eflaust miklu upp- teknari af áhyggjum af atvinnunni okkar og áhrifum veirunnar á daglegt líf og framtíð- arsýn en eins og stendur erum við ótrúlega þakklát fyrir það sem er. Við eigum yndis- legt heimili þar sem við höfum öll nóg pláss til þess að eiga okkar einverustundir sem og samverustundir. Við erum með stóran garð þar sem við getum dundað okkur, grillað og haft það notalegt.“ Hún segir í gamansömum tón að fjöl- skyldunni komi vel saman enn sem komið er. „Sjáum hvernig ég svara þegar vikunum fjölgar en ofar öllu, við erum á lífi.“ – Hvað með áhugamálin og hefur ástandið haft áhrif á þau? „Ég er nú svo heppin að aðaláhugamál mitt er matargerð svo nú snýst lífið aðallega um spekúlasjónir um hvað ætti að hafa í kvöldmatinn. Það er líka svolítið áhugavert hvernig COVID hefur haft áhrif á matarinn- kaup. Það eru risavaxnar raðir fyrir utan búðirnar og enn er skortur á ákveðnum hlutum eins og hveiti og eggjum. Svo á Að auki urðum við Paul fyrir þeirri hrikalegu lífsreynslu að verða alvarlega veik með COVID-19. Þó við höfum ekki verið lögð inn á sjúkrahús þá stóð ég mjög tæpt þar sem ég hætti að anda og féll saman ... Smelltu hér til að hlusta! 86 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.