Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 90

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 90
En vandinn var sá að maður getur ekki verið 700% á sama tíma, það þarf að deila 100% niður í allt sem maður ætlar að gera ... „Ég trúði því ekki að ég sem hafði allt, væri komin þangað og skammaðist mín alveg ótrúlega fyrir það. Mér fannst að það væri fullt af öðrum krökkum sem ættu meira skilið að fá að fara þarna inn og þyrftu frekar aðstoð, hefðu raunveru- legan vanda að vinna í.“ Sem betur fór sá Elva aftur til sólar og með hjálp létti þyngslunum. „Ég hélt að ég kæmi ekki út af BUGL aftur og ætlaði það ekki en sem betur fer komst ég út með mikilli hjálp frá mörgu fólki sem var að vinna þarna. Ég átti góða vini sem komu í heimsókn og fékk stundum að koma heim um helgar.“ SKÖMMIN VAR ERFIÐ Elva Dögg segist lítið muna frá dvölinni og veikindunum, eins og að heilinn vilji ekki muna þegar henni leið hvað verst. „Ég vildi ekki að neinn myndi vita af því hvar ég væri því ég skammaðist mín svo mikið þegar krakkarnir í bekknum og aðrir í skólanum voru að spyrja eftir mér. Því var haldið leyndu í einhverja mánuði sem setti mína nánustu auð- vitað í erfiða stöðu en það var verið að spyrja vini mína og bróður minn um mig og hvað væri í gangi. Viðbrögð fólks komu mér á óvart því þegar það fréttist að ég hafði verið að glíma við andleg veikindi þá mætti ég bara skilningi og engum fórdómum. Það litu allir eins og mig og komu eins fram við mig sem var mikill léttir svo þetta voru aðallega for- dómar hjá sjálfri mér. Ég átti samt erfitt með að ræða þetta fyrstu árin á eftir en í dag finnst mér það ekkert mál þar sem samfélagið er búið að þróast svo mikið í þessari umræðu, sem er orðin miklu opnari. Það eru svo margir að glíma við alls konar og maður verður miklu meira var við það í dag, sérstaklega á sam- félagsmiðlum.“ – En hvernig gekk að feta áfram brautina eftir að þú varst komin út af BUGL? „Þegar ég kom út af BUGL var ég ekki endilega með rétta hugarfarið eða þroskann. Ég tók þessu eins og ég væri búin að læra margt og fá verkfæri til að líða aldrei illa og standa mig bara ennþá betur en ég var lögð inn aftur áður en ég byrjaði í 10. bekk þegar ég hafði keyrt mig í kaf og tók aðra niðursveiflu. Það tók mig nokkur ár að átta mig á því að mér hætti til að taka að mér of mörg verkefni og vildi vera 100% í öllu hvort sem það voru íþróttirnar, skólinn eða félagslífið og því fylgdi niðursveifla. Á sumrin var ég rólegri og þá náði ég að safna orku en ég var alltaf hrædd við haustin því þá vildi ég taka þátt í öllu og skráði mig í allt mögulegt. Vandinn var sá að maður getur ekki verið 700% á sama tíma, það þarf að deila 100% niður í allt sem maður ætlar að gera.“ Þegar Elva Dögg varð átján ára fékk hún ekki lengur aðstoð frá BUGL enda orðin fullorðin og þá hófst mikil leit að hjálp og prófaði hún ýmislegt. „Við þreifuðum okkur sjálf áfram og ég prófaði bæði sálfræðinga og jóga og hugleiðslu sem ég hafði lært í 9. og 10. bekk. Ég fékk aðstoð hér og þar og var svo bæði upp og niður. Byrjaði í fram- haldsskóla í bænum og keyrði mig í kaf þar. Fór þá í FS og átti þar góðar upp- og niðursveiflur. Ég vildi standa mig vel og skammaðist mín fyrir að hafa hætt í hinum skólanum. Ég fór á fullt í félagslífið og allt mögulegt og tók því góða niðursveiflu á næstsíðasta árinu. Lokaárið langaði mig að útskrifast eftir þrjú og hálft ár eins og vinkonur mínar og þurfti þá að taka umframeiningar til þess. Bæði mamma og skólastjórnendur ráðlögðu mér frá því en ég var ákveðin að klára. Þá fór ég aftur í niðursveiflu og náði ekki að útskrifast en það var samt enginn heimsendir, eins og mér fannst þá. Síðustu önnina var ég bæði búin að öðlast nægilegan þroska og reynslu og náði því loksins að slaka á og njóta meira þess sem ég var að gera. Þetta var besta önnin af öllum, ég náði að taka þátt í ýmsu en passaði mig á því að gera ekki of mikið og gera ekki of miklar kröfur til mín. Þarna byrjaði ég að slaka á og leyfa mér að gera mistök – og vera bara ég sjálf.“ Þarna náði Elva Dögg að finna meðal- veginn og skilja betur hvað varð þess valdandi að hún tók þessar niðursveiflur. Henni fannst margt skemmtilegt en stundum var það bara of mikið, og það þarf ekki að vera góður í öllu. Hún var með meðfætt keppnisskap en hún segir að þar hafi vandinn byrjað. KEPPNISSKAPIÐ OLLI KVÍÐA „Það er mikilvægt að fólk hugsi um þau skilaboð sem það sendir ungu fólki og hvernig það hrósar og fyrir hvað. Ég var með mikið keppnisskap og tók þátt í flestum íþróttum, held að þær séu fáar sem ég hef ekki æft. Það er gaman að hafa getuna en það getur líka verið of mikið ef maður vill vera góður í öllu. Hver hefur þá ábyrgð að passa það að börnin séu samt að njóta sín og slaka á? Það þarf líka að hlúa að andlegu heils- unni og að börn fái að njóta þess að vera börn jafnvel þótt þau séu að keppa. Ég er með mikið keppnisskap og það olli mér kvíða þótt það hafi kannski ekki valdið öðrum kvíða en möguleikinn er fyrir hendi og því þurfum við að fara varlega. 90 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.