Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 96
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Ætli þetta hafi verið
stutt Ermasund
... eða langt?
Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt!
Í síðustu viku horfði ég á heimildarmynd um stórkostlega konu, konu
sem var fyrst íslenskra kvenna til þess að synda yfir Ermarsundið.
Ég er algjör sökker fyrir heimildarmyndum. Finnst ekkert í sjónvarpi
jafnast á við að horfa á raunverulegt bíó sem segir okkur frá raunveru-
legum atburðum. Sigrún Þuríður Geirsdóttir sundkona er jafngömul
mér, þroskaþjálfi að mennt, eiginkona og þriggja barna móðir. Hún er
venjuleg kona eins og hún segir sjálf frá. Hefur aldrei stundað íþróttir
að neinu marki. Sigrún byrjaði að stunda sjósund árið 2008 en á þeim
tíma var líkamlegt ástand Sigrúnar ekki gott að hennar sögn. Hún var of
þung og þjáðist af áreynsluastma. Árið 2012, stuttu eftir fertugsafmæli
sitt, ákvað hún ásamt nokkrum sjósundsvinkonum að sniðugt væri að
synda boðsund yfir Ermarsundið. Hún lét ekki þar við sitja heldur synti
aftur boðsund ári seinna og svo kórónaði hún afrekið með því að synda
Ermarsundið ein síns liðs tveim árum síðar.
Heimildarmyndin „Þegiðu og
syntu“ fjallar um leiðangur Sig-
rúnar. Hennar þrekraun að synda
ein síns liðs yfir Ermarsundið.
Sundið tók hana um 23 klukku-
stundir en á þeim tíma var hún
á floti allan tímann, mátti hvergi
koma við fast. Merkilegast við
þessa heimildarmynd um þessa
ótrúlegu konu og hennar sögu
var hugarfarið hennar. Hún talaði
ítrekað um að hún væri að gera
þetta fyrir sjálfa sig, það skipti ekki
máli hversu lengi hún væri heldur
að taka þátt, hafa gaman og komast
í mark. Hún væri að þessu til þess
að sigra sjálfa sig en ekki fyrir verð-
launin. Hógværðin skein í gegn,
engin keppni. Í myndinni talaði
hún um að í svona átökum eins og
að synda yfir Ermarsundið sé talað
um að það sé 30% líkamlegt erfiði
og 70% andlegt en í hennar tilviki
hafi þetta verið 90% hugarfar. Það
eitt og sér segir okkur hversu stór-
kostlegt afrek Sigrúnar er.
Þessi mynd minnti mig ekki síður
á það að þau áhugamál sem maður
stundar í dag virðast flest vera
orðin að einhvers konar keppni. Þú
getur ekki hjólað nema að eiga allar
græjur, taka þátt í hjólakeppnum
og vera með hjólaboga á bílnum.
Þú getur ekki hlaupið nema að
taka þátt í maraþoni, járnkarli eða
öðru. Þú getur ekki verið í golfi
nema að fara í allavega tvær golf-
ferðir erlendis á ári. Það stundar
önnur hver manneskja yoga og
best er að fara þá líka í yoganám
– og trúið mér, ég er líka þarna. Ég
veit að þetta hefur allt verið sagt
áður en mig langaði bara að minna
á hversu mikilvægt er að fara út og
hjóla, í golf, hlaupa, ganga eða hvað
annað sem þér þykir skemmtilegt
að gera í þínum frítíma án þess að
fá kvíðaeinkenni yfir að það sé ein-
hver keppni. Gerðu það fyrir þig
sjálfa(n). Ég ætla að minnsta kosti
að hætta að ofhugsa alla hreyfingu
og fara bara af stað. Njótið góða
veðursins og sumarsins kæru les-
endur, inni eða úti eða hvernig sem
þið kjósið.
LO
KAO
RÐ
INGU BIRNU RAGNARSDÓTTUR
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
FERÐALAG
UM HEIMASLÓÐIR
FIMMTUDAGINN 16. JÚLÍ KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS