Víkurfréttir - 19.08.2020, Page 6
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞÓRUNN KRISTÍN TEITSDÓTTIR
Didda
Faxabraut 13, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 9. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 20. ágúst kl.13.
Guðlaugur Kristjánsson Hanna Sigurðardóttir
Hildur Kristín Guðlaugsdóttir
Þórunn Guðlaugsdóttir
Hulda Guðlaugsdóttir Grétar Eiríksson
og barnabarnabörn.
Aldrei fleiri gestir í Rokksafnið
Ókeypis aðgangur og aukin ferðalög innanlands
hafa jákvæð áhrif á heimsóknir í söfn Reykjanesbæjar
Mikil fjölgun hefur orðið á gestum í Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ
og í Duus Safnahús eftir að Reykjanesbær fór að bjóða ókeypis aðgang
í söfnin. Sveitarfélagið tók þá ákvörðun að veita ókeypis aðgang frá 1.
júní til 31. ágúst og er það liður í því að bjóða gesti velkomna til Reykja-
nesbæjar á ferðum sínum um landið.
„Rétt rúmlega tvö þúsund manns
sóttu safnið í júní og júlí. Það er um
það bil 800 manna aukning borið
saman við sama tímabil í fyrra.
Ókeypis aðgangur að safninu og
aukin ferðalög innanlands eiga
klárlega mikinn þátt í þessari aukn-
ingu,“ segir Viktor Aron Bragason,
starfsmaður Rokksafnins.
Rokksafn Íslands hefur notið
gríðarlegra vinsælda frá því að það
var opnað árið 2014. Á safninu,
sem er staðsett í Hljómahöllinni
í Reykjanesbæ, er mikið magn
sýningargripa sem tengdir eru ís-
lenskri rokksögu eins og til dæmis
trommusett Gunnars Jökuls Há-
konarsonar, hljóðnemi Megasar og
kjóll af Ellý Vilhjálms svo fá dæmi
séu tekin. Einnig má finna kaffihús
á staðnum sem ber nafnið Rokk-
Café.
Fleiri innlendir gestir
heimsækja Duus Safnahús
Duus Safnahús, sem eru lista- og
menningarmiðstöð Reykjanes-
bæjar, hefur einnig séð aukinn
fjölda gesta í sumar. Duus
Safnahús hýsir sýningar Listasafns
Reykjanesbæjar og Byggðasafn
Reykjanesbæjar. Þar má einnig
finna upplýsingamiðstöð ferða-
manna og Gestastofu Reykjaness
jarðvangs sem oft gengur undir
nafninu Geopark.
„Við erum að sjá aukinn fjölda
innlendra ferðamanna í ár saman-
borið við sama tímabil í fyrra. Til
dæmis voru innlendir gestir 902 í
júlí í ár miðað við 273 í júlí í fyrra.
Það fer ekki á milli mála að bjóða
gestum frítt í safnið hefur haft til-
skilin áhrif,“ segir Guðlaug María
Lewis, menningarfulltrúi Reykja-
nesbæjar.
Frítt er í söfnin í Reykjanesbæ
til 31. ágúst. Hægt er að nálgast
frekari upplýsingar á sofn.reykja-
nesbaer.is.
Pop-up sýningin
Á sjó er í Listasafni
Reykjanesbæjar
þessa dgana og
stendur til 25. ágúst.
6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.