Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.08.2020, Síða 16

Víkurfréttir - 19.08.2020, Síða 16
Yfir 300 börn frá átján mánaða til fimmtán ára hefja nám í glæsilegasta skóla landsins í Innri-Njarðvík. Nýjasti skóli Reykjanesbæjar, Stapaskóli í Dalshverfi í Innri-Njarðvík, er að hefja starfsemi og tekur á móti fyrstu nemendum mánudaginn 24. ágúst. Kennarar mættu til starfa viku fyrr og hafa undirbúið móttöku um 330 nem- enda. „Það er horft til framtíðar í nýjum skóla. Það er alveg óhætt að segja það. Undirbúningur hófst í byrjun árs 2016 þannig að þetta er stór stund fyrir okkur þegar fyrstu nemendur koma til starfa,“ segja Gróa Axelsdóttir, skóla- stjóri, og Helgi Arnarsson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar. Sérstakur undirbúningshópur var skipaður til að ákveða hvernig staðið yrði að nýjum skóla. Niður- staða hans kom í skýrslu í júní árið 2016 og var sú að byggður yrði heilstæður skóli sem yrði allt í senn, leik- og grunnskóli, frí- stunda- og tónlistarskóli, bóka- safn, menningar- og félagsmiðstöð hverfisins. Með tímanum verður svo íþróttahús og sundlaug byggð við skólann. Að undangengnu út- boði var ákveðið að taka tilboði Arkís arkitekta í verkið. Horft til framtíðar „Þetta er í fyrsta sinn sem bygging skóla er undirbúinn eftir þeim hætti að farið var eftir sérstöku ferli sem kallað er frá hinu al- menna til hins sérstaða. Fjöl- skipaður hópur hagsmunaaðila, kennara, nemenda, foreldra og stjórnenda unnu fyrst hugmynda- vinnuna áður en ráðist var í hönnun skólans. Hönnunin byggist á áherslum þess hóps. Niðurstaðan var að vera með heildstæðan skóla frá átján mánaða upp í fimmtán ára og reynt að brúa bil milli leikskóla og grunnskóla. Skólinn er í þremur áföngum og nú er er verið að opna þann fyrsta sem er um sjö þúsund fermetrar en heildarflatarmálið verður um tíu þúsund,“ segir Helgi. Upphaflega átti að opna skólann haustið 2019 en það frestaðist um eitt ár þegar útboð var kært. Fram- kvæmdir hófust fyrir um tveimur árum og hafa staðið yfir með þeim árangri að fyrsti áfangi er tekinn í notkun nú í upphafi skólastarfs. „Skólinn á að bera þess merki að horft sé til framtíðar um leið og kröfum samtímans er mætt. Megineinkenni skólans verður sveigjanleiki, í kennsluháttum, í nýtingu rýmis, í skipulagi vinnu- dags og skilum á milli aldursstiga,“ sagði á heimasíðu Reykjanesbæjar eftir að undirbúningshópurinn hafi lokið vinnu sinni. Við ætlum okkur að vera framúrstefnuleg og nýta okkur alla tækni í námi þannig að börnin nái sem bestum árangri ... Páll Ketilsson pket@vf.is LAND TIL SÖLU Til sölu spilda úr landi Vindheima í Grindavík. Mikil og falleg sjávarsýn. Merkt: 23-3272-5. Stærð skv. Þjóðskrá: 34.291 m2 Upplýsingar veittar í síma 893-2590 Hafnargötu 27a | 230 Reykjanesbæ | 533-1963 | 864-1963 16 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.