Víkurfréttir - 19.08.2020, Síða 27
Ætlaði ekki að verða feitur
Magnús Sverrir Þorsteinsson tók fram
knatt spyrnu skóna með Reynisliðinu í sumar
eftir nokkura ára hlé. Hann hefur átt góða
endurkomu á fótboltavöllinn enda er „gott
grasið og andrúmsloftið á Blue-vellinum“.
Þetta er búið að vera framar
vonum, ljómandi skemmtilegt.
Þetta var svona pínu að henda sér
í þetta aftur, sanna fyrir sjálfum
sér að maður hefði þetta ennþá og
ég var fljótari að koma mér í betra
stand en ég átti von á.
– Þú hlýtur að vera búinn að
halda þér í formi er það ekki?
„Já, ég er búinn að vera rosalega
duglegur að æfa. Það var mottó
hjá mér að ég ætlaði ekki að verða
feitur þegar ég hætti fótboltanum
og er grínlaust búinn að standa vel
við það – það eru allt of margir sem
lenda í því. Það var eina mottóið
mitt þegar ég hætti.
Ég hef lítið spilað fótbolta eftir
að ég hætti, smá föstudagsbolti og
Old boys en þetta var kafli sem ég
setti til hliðar – en það er alltaf jafn
gaman að fara í fótbolta.“
– Hvað sérðu fram á að vera
lengi í þessu?
„Ég ætla nú bara að klára þetta
tímabil, tryggja að Reynisliðið fari
upp, klára tímabilið og svo tek ég
stöðuna. Ég býst ekki við að það
verði nema þetta tímabil en þetta
er, eins og ég segi, búið að vera
hrikalega skemmtilegt. Ég er auð-
vitað að verða 38 ára gamall og á
bara eftir að hugsa þetta, það eru
ekkert margir sem eiga „comeback“
og geta eitthvað. Ég er alla vega
feginn að hafa getað eitthvað.
Við erum búnir að standa okkur
vel í sumar, það átti raunar engin
von á að Reynisliðið yrði svona
sterkt. Þetta er langt umfram
væntingar og svo er liðið að bæta
í í þokkabót. Við ætlum bara að
klára þessa deild.“
HANN Á VÖLLINN!
– Þú hefur ennþá „touchið“,
búinn að skora sjö mörk í sex
leikjum.
„Já og bara búinn að byrja inn á
í þremur leikjum. Mér líður vel
á Reynisvellinum, gott grasið og
andrúmsloftið á Blue-vellinum.
Þeir voru einmitt að grínast með
það í Podcastinu hjá Hjörvari í gær
[Dr. Football Podcast 18/8 2020]
að hann skoraði tvö á sínum eigin
velli – hann á völlinn! Það var mjög
fyndið.“
Reynismenn völtuðu yfir KV
Treysta stöðu sína á toppi deildarinnar
Reynismenn sitja taplausir á toppi 3. deildar karla í knattspyrnu,
þeir tóku á móti KV á Blue-vellinum í Sandgerði á mánudag. Fyrir
leikinn var KV, sem situr í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á
eftir Reyni.
Leikurinn hófst fjörlega en það
voru Vesturbæingar sem skoruðu
fyrsta markið á 2. mínútu. Reynis-
menn voru ekki lengi að jafna
metin, þar var Ante Marcic að
verki á 5. mínútu.
Aðeins þremur mínútum
síðar kom Magnús Sverrir Þor-
steinsson boltanum í net KV
og staðan orðin 3:1 Reynir í vil,
þannig stóðu leikar í hálfleik.
Í síðari hálfleik bætti Magnús
öðru marki við og ljóst að Reyn-
ismenn væru að treysta stöðu
sína á toppi deildarinnar með
frammistöðu sinni í kvöld.
KV náði að króra í bakkann
á 4. mínútu uppbótartíma og
minnka muninn í 4:2 en Reynir
fékk dæmda vítaspyrnu á loka-
mínútu leiksins og úr henni
skoraði Hörður Sveinsson
(90’+5).
Lokatölur leiksins urðu því
5:2 fyrir Reyni sem hefur aukið
forystu sína í átta stig á toppi 3.
deildar og allar líkur benda til að
þeir muni leika í 2. deild á næsta
tímabili. Þess má þó geta að KV
á einn leik til góða.
Tveir nýir leikmenn skipuðu
hóp Reynismanna í leiknum.
Halldór Kristinn Halldórsson
skipti yfir í Reyni nokkrum
dögum áður og var í byrjunar-
liðinu, þá hefur gamla brýnið
Sigurbergur Elísson ákveðið að
taka fram skóna að nýju, hann
byrjaði á bekknum en var skipt
inn á í seinni hálfleik.
Hörður Sveinsson skoraði
úr víti á lokamínútu leiksins.
Magnús er búinn að
halda sér í þrusuformi
og var fljótur að finna
taktinn eftir að hann
tók skóna fram á ný.
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 27