Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 39

Víkurfréttir - 19.08.2020, Side 39
hrauninu og sést vel og víða. Faðir Stefáns, Jón Stefánsson, byggði kirkjuna á Möðruvöllum á sínum tíma, hann reisti hana til minn- ingar um konu sína. Já, sagan er allsstaðar. – Eitthvað sem kom skemmti- lega á óvart? Göngin frá Eskifirði til Norðfjarðar eru alveg snilld og nú er ekkert mál að skreppa yfir – og alltaf gaman að koma á heimaslóðir móður minnar. Uppbygging sem hefur átt sér stað víða um land heillar mann, eins og t.d. Undur sjóbaðanna á Húsavík, GeoSea er baðstaður á heimsmælikvarða sem vakið hefur eftirtekt fyrir gæði og fallega hönnun. Vatnið í sjóböðunum er hrein blanda af tæru bergvatni og jarðsjó. Útsýnið yfir Skjálfandaflóa er stórkostlegt. Norðurheimskauts- baugurinn nemur við sjóndeildar- hringinn í fjarska og stundum má jafnvel sjá hvali koma upp úr glitr- andi sjónum. Nutum þess að liggja i jarðsjónum. Seyðisfjörður hefur yfir sér skemmtilegan og ævintýra- legann blæ frá liðnum árum og við skruppum þangað því það er langt síðan við Óli höfum heim- sótt fjörðinn. Það er gaman að sjá hvað listin hefur prýtt bæinn og gefið honum lit með því að mála gömlu húsin í skemmtilegum litum. Ég reyndi að finna verbúðina sem ég dvaldi í (held að ég hafi fundið hana), þegar ég fór að salta síld í kringum 1966 og fór ég bara til að geta hitt eiginmanninn sem var á síldarbát, aukaatriði að salta eitt- hvað að ráði. Undur sjóbaðanna á Húsavík, GeoSea er baðstaður á heimsmælikvarða sem vakið hefur eftirtekt fyrir gæði og fallega hönnun. Vatnið í sjóböðunum er hrein blanda af tæru bergvatni og jarðsjó. Útsýnið yfir Skjálfandaflóa er stórkostlegt. Þekktasta listaverkið á Djúpavogi er Eggin í Gleðivík. Þetta listaverk var afhjúpað 2009 og er eftir listamanninn Sigurð Guðmundsson. Listaverkið samanstendur af 34 eggjum. Eitt egg er áberandi stærst en það er egg lómsins. Mjög fallegt listaverk og alltaf jafn gaman að líta á eggin. Sjóböðin á Húsavík. F.v.: Katrín Sigurðardóttir, Klemenz Sæmundsson, Ólafur Björgvinsson og Soffía G. Ólafsdóttir. vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 39 Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.