Víkurfréttir - 19.08.2020, Qupperneq 39
hrauninu og sést vel og víða. Faðir
Stefáns, Jón Stefánsson, byggði
kirkjuna á Möðruvöllum á sínum
tíma, hann reisti hana til minn-
ingar um konu sína. Já, sagan er
allsstaðar.
– Eitthvað sem kom skemmti-
lega á óvart?
Göngin frá Eskifirði til Norðfjarðar
eru alveg snilld og nú er ekkert mál
að skreppa yfir – og alltaf gaman að
koma á heimaslóðir móður minnar.
Uppbygging sem hefur átt sér
stað víða um land heillar mann,
eins og t.d. Undur sjóbaðanna á
Húsavík, GeoSea er baðstaður
á heimsmælikvarða sem vakið
hefur eftirtekt fyrir gæði og fallega
hönnun. Vatnið í sjóböðunum er
hrein blanda af tæru bergvatni og
jarðsjó. Útsýnið yfir Skjálfandaflóa
er stórkostlegt. Norðurheimskauts-
baugurinn nemur við sjóndeildar-
hringinn í fjarska og stundum má
jafnvel sjá hvali koma upp úr glitr-
andi sjónum. Nutum þess að liggja
i jarðsjónum.
Seyðisfjörður hefur yfir sér
skemmtilegan og ævintýra-
legann blæ frá liðnum árum og
við skruppum þangað því það er
langt síðan við Óli höfum heim-
sótt fjörðinn. Það er gaman að sjá
hvað listin hefur prýtt bæinn og
gefið honum lit með því að mála
gömlu húsin í skemmtilegum litum.
Ég reyndi að finna verbúðina sem
ég dvaldi í (held að ég hafi fundið
hana), þegar ég fór að salta síld í
kringum 1966 og fór ég bara til að
geta hitt eiginmanninn sem var á
síldarbát, aukaatriði að salta eitt-
hvað að ráði.
Undur sjóbaðanna
á Húsavík, GeoSea
er baðstaður á
heimsmælikvarða
sem vakið hefur
eftirtekt fyrir
gæði og fallega
hönnun. Vatnið
í sjóböðunum er
hrein blanda af
tæru bergvatni og
jarðsjó. Útsýnið
yfir Skjálfandaflóa
er stórkostlegt.
Þekktasta listaverkið á Djúpavogi er Eggin
í Gleðivík. Þetta listaverk var afhjúpað
2009 og er eftir listamanninn Sigurð
Guðmundsson. Listaverkið samanstendur af
34 eggjum. Eitt egg er áberandi stærst en
það er egg lómsins. Mjög fallegt listaverk
og alltaf jafn gaman að líta á eggin.
Sjóböðin á Húsavík. F.v.: Katrín Sigurðardóttir, Klemenz
Sæmundsson, Ólafur Björgvinsson og Soffía G. Ólafsdóttir.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 39
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.