Víkurfréttir - 19.08.2020, Síða 55
– Hvaða stað fannst þér áhuga-
verðast að heimsækja í sumar?
Ég er mjög hændur að Fljóts-
hlíðinni og þar á ég vini, meðal
annars félaga í Rótaríklúbbi
Rangæinga. Fór með þeim í
Hekluskóga í vor og plantaði
birki. Ég á einnig rætur til Eyja-
fjallanna og þaðan kom annar
langafi minn til Innri-Njarðvíkur,
Árni Pálsson, sem bjó í Narfakoti,
mikill barnakennari og bindindis-
frömuður með meiru. Kona hans
var Sigríður Magnúsdóttir, mikil
merkis- og kjarnorkukona. Þarna
voru komin Narfakotssystkinin
Ásta málari, Magnús Á. Árnason
og Þórhallur Árnason, afi minn,
sem var sellóleikar í sinfóníunni.
– Ætlar þú að ferðast eitthvað
meira innanlands á næstunni?
Í haust ætla ég að skoða mig
um á Snæfellsnesi en ég fór þar
um þrisvar sinnum á síðasta ári.
Þar er ótrúleg náttúra og fyrir-
bæri sem vert er að kynna sér
og endalaus undur, bæði norðan-
vert og sunnanvert á nesinu. Ég
mun líka heimsækja kirkjur sem
geyma listaverk Wilhelms Beck-
mann. Hann var þýskur flótta-
maður undan nazistum og gekk
að eiga konu frá Syðri-Knarrar-
tungu á sunnanverðu Snæfells-
nesi. Í haust kemur út bók um
listamanninn og mun hún vekja
athygli.
– Hvert er þitt helsta
áhugamál?
Ég stunda ræktina af ákafa
en hún felst í puði í garðinum
mínum hér í Garði. Hann er ákaf-
lega erfiður og er mikið átak að
grafa fyrir einu tré. Það kemur
urð og grjót upp úr hverri holu og
engin er moldin, svo ég verð að
kaupa mér mold og reyna að búa
hana til með safnhaugi.
– Horfirðu mikið á sjónvarp og
hvernig?
Ég slaka á með glápi á Netflix.
Horfi sennilega einum of mikið á
framhaldsþætti þar. Helst horfi ég
á kóreska framhaldsþætti, suma
sögulega, og hef mikið gaman af.
Þá eru líka í uppáhaldi hjá mér
tyrkneskir þættir sem margir
byggja á sögulegum þráðum. Ég
horfi orðið lítið á ríkissjónvarpið
enda fátt þar annað en glæpa-
seríur sem ég hef lítinn sem
engan áhuga á. Sé fréttir og ein-
staka fróðlega þætti og get þar
nefnt þáttinn um Pál á Húsafelli,
sem var hreinasta gull!
– Hvaða matur er í uppáhaldi
hjá þér?
Ég vil helst borða gamal-
dags, íslenskan mat og svo
austurlenskan, tælenskan og ind-
verskan. Er mjög ánægður með
fisk og franskar sem nú eru í boði
á Fitjum!
– Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Ég á mína tónlist, hlusta á diska
úr mínu eigin safni. Uppáhald er
t.d. Imogen Cooper, píanóleikari
sem leikur Schubert betur en
nokkur annar.
– Besta kvikmyndin?
Uppáhaldskvikmynd mín er Tvö-
falt líf Veroníku eftir Kieslowsky
og myndirnar Rauður, Hvítur
og Blár. Auk þess er Andrei Tar-
kovsky í miklu uppáhaldi. Ég er
hrifinn af kvikmyndatónlist, t.d.
Maurice Jarre.
– Hver er uppáhaldsbókin þín
og/eða -rithöfundur?
Ég hef lesið mikið en les minna
núna. Er að lesa bók sem heitir
Cicero og samtíð hans eftir Jón
Gíslason. Cicero sagði: Quousque
tendem, Catiline, abutere pati-
entia nostra? eða Hversu lengi
enn, Catalína, ætlar þú að ofgera
þolinmæði okkar? (og mætti
Á Kili - Hofsjökull í baksýn.
Ég stunda
ræktina af ákafa
en hún felst í puði í
garðinum mínum hér
í Garði. Hann er ákaf-
lega erfiður og er
mikið átak að grafa
fyrir einu tré.
Miðvikudagur 19. ágúst 2020 // 31. tbl. // 41. árg.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 55