Víkurfréttir - 02.09.2020, Síða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Prestarnir í Njarðvíkurprestakalli, Keflavíkurprestakalli og Útskála-
prestakalli hafa sent erindi til sveitarfélaga á Suðurnesjum er varðar
aukna þörf á fjárstuðningi til framfærslu. Bréfið var sent sveitar-
félögum svæðisins í lok maí að loknum fundi prestanna og starfs-
manna sókna á Suðurnesjum með fulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar.
Tilefni fundarins var aukin þörf og yfirvofandi fjölgun þeirra sem
leita munu aðstoðar til Hjálparstarfs kirkjunnar í gegnum kirkjurnar
á svæðinu, Velferðarsjóð Suðurnesja og Líknar- og hjálparsjóð Njarð-
víkurkirkna.
Í erindi prestanna segir að hóp-
urinn hafi miklar áhyggjur af því
ástandi sem skapast mun í haust
að óbreyttu þegar uppsagnarfresti
fólks lýkur og fleiri fara á atvinnu-
leysisbætur. Fyrir er stór hópur
öryrkja og erlendra ríkisborgara
sem er á mjög lágri framfærslu á
svæðinu. Þá sé sífellt meiri ásókn í
stuðning við kaup á mat og lyfjum.
„Við leyfum okkur að benda á
að það er hlutverk sveitarfélaga
að tryggja fólki grunnframfærslu.
Þannig er það í raun ekki hlutverk
Hjálparstarfs kirkjunnar, Líknar-
og hjálparsjóðs Njarðvíkurkirkna
eða Velferðarsjóðs Suðurnesja að
létta ábyrgð sveitarfélaganna af
framfærslu íbúa. Má þar einkum
benda á greiðslu skólamatar og allt
sem fellur undir skipulagt skóla-
starf eins og skólabúðir og skóla-
ferðalög. Eins vekjum við athygli
á því að framfærslustyrkur er mun
lægri hjá sveitarfélögum á Suður-
nesjum en öðrum sveitarfélögum.
Við leggjum til að sveitarfélögin á
Suðurnesjum hækki sitt framlag
til jafns við framfærslustyrki ann-
arra sveitarfélaga,“ segir í erindi
prestanna.
Þá segir að ljóst sé að Hjálpar-
starf kirkjunnar, Velferðarsjóður
Suðurnesja og Líknar- og hjálpar-
sjóður Njarðvíkurkirkna muni
þurfa að skerpa enn fremur á hlut-
verki sínu á komandi tíma enda
svigrúm til aðstoðar háð frjálsum
framlögum í fyrrnefnda sjóði.
Bréf prestanna var tekið fyrir í
bæjarráði Reykjanesbæjar í síðustu
viku en sviðsstjórar velferðarsviðs
og fræðslusviðs sátu fund bæjar-
ráðs þegar erindið var tekið fyrir.
Bæjarráð fól þeim að vinna áfram í
málinu sem tekið er fyrir í bréfinu.
Aukin þörf á fjárstuðningi
Fjármunir ríkisins fari
þangað sem þörfin er mest
Atvinnuleysi í Reykjanesbæ í
júlí mældist 18,5%. Alls voru
2.336 án vinnu og 328 á hluta-
bótaleið. Helmingur þeirra sem
nú eru atvinnulausir höfðu bein
störf í ferðaþjónustu eða flug-
samgöngum.
„Í ljósi fregna síðustu vikna má
gera ráð fyrir að þessi fjöldi muni
aukast enn frekar. Bæði eru
uppsagnarfrestir margra þeirra
sem sagt hafði verið upp í maí
að renna út núna í ágúst, auk
þess sem endurráðningar vegna
vonar um aukin umsvif í flugi og
ferðaþjónustu munu nú ganga til
baka,“ segir í fundargerð menn-
ingar- og atvinnuráðs Reykjanes-
bæjar.
Menningar- og atvinnuráð
skorar á allt atvinnulíf, jafnt
sem stjórnvöld, að sækja fram og
halda efnahagslegum áhrifum af
Covid-19 í lágmarki. Menningar-
og atvinnuráð ítrekar þá skoðun
sína að mikilvægt er að fjár-
munir ríkisins fari þangað sem
þörfin er mest, þ.e. á Suðurnesin.
– Prestar lýsa áhyggjum af ástandinu og aukinni þörf fyrir stuðning við framfærslu
Við leggjum til að
sveitarfélögin á
Suðurnesjum hækki
sitt framlag til jafns
við framfærslustyrki
annarra sveitarfélaga ...
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár