Víkurfréttir - 02.09.2020, Qupperneq 6
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
„ÞAÐ MYNDI HEYRAST Í EIN-
HVERJUM EF FISKIMIÐUNUM
YRÐI LOKAÐ Í EINNI SVIPAN“
„Það er erfitt að fylgjast með
þróun atvinnumála á Suður-
nesjum þessa dagana þar sem
Keflavíkurflugvöllur er, beint
eða óbeint, uppspretta 40% efna-
hagsumsvifa. Það myndi heyrast
í einhverjum ef fiskimiðunum
yrði lokað í einni svipan,“ segir
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ í framhaldi
af tilkynningu Isavia um upp-
sagnir 133 starfsmanna.
Langflestir starfsmanna sem nú
voru að fá uppsögn eru búsettir á
Suðurnesjum. Kjartan Már segir
þetta mikil vonbrigði og áfall fyrir
svæðið. Hann setur spurninga-
merki við þeirri ákvörðun að senda
alla sem koma til landsins í sóttkví
og hefði viljað sjá mildari aðgerðir
af hálfu yfirvalda. Til skemmri
tíma sé mikilvægt núna að styðja
þá sem eru án atvinnu, m.a. með
virkniúrræði.
Isavia segir upp 133 starfsmönnum
Isavia hefur sagt upp 133 starfsmönnum og tólf til viðbótar boðið
að lækka starfshlutfall. Þessar aðgerðir koma til viðbótar því að 101
starfsmanni Isavia var sagt upp störfum í lok mars síðastliðins. Síðan
þá hefur auk þess verið gripið til ýmissa annarra hagræðingaaðgerða
og skipulagsbreytinga svo sem sameiningu sviða og fækkunar í fram-
kvæmdastjórn félagsins. Frá því Covid 19 faraldurinn hófst hefur
stöðugildum hjá móðurfélagi Isavia nú fækkað um 40%
„Eftir ágætis gang í sumar, þar sem
fjölgun ferðamanna um Keflavík-
urflugvöll var nokkuð stöðug, þá
varð alger viðsnúningur í kjölfar
ákvörðunar um tvöfalda skimun
með sóttkví á milli, “ segir Svein-
björn Indriðason, forstjóri Isavia.
„Flugfélög hafa dregið verulega
úr framboði og eins og staðan er í
dag þá er útlit fyrir að það breytist
ekki í náinni framtíð. Forsendur
okkar frá í sumar eru því brostnar
og í dag gerum við ráð fyrir að
umsvifin í vetur verði mjög lítil á
Keflavíkurflugvelli. Það er því útlit
fyrir að verkefni verði af skornum
skammti fyrir hóp starfsmanna
okkar næstu mánuðina.“
Sveinbjörn segir verulega óvissu
um framvindu næstu mánuði og
Isavia muni endurskoða stöðuna
reglulega. Ef ástandið breytist til
batnaðar geti Isavia brugðist hratt
við þeirri breyttu stöðu.
„Við óskum öllu því fólki sem nú
er að hverfa frá Isavia velfarnaðar,
þökkum því fyrir þeirra störf og
vonumst til að leiðir okkar liggi
saman á ný fyrr en síðar,“ segir
Sveinbjörn Indriðason.
62 sagt upp
hjá Fríhöfninni
Vegna mikils samdráttar í
rekstri og óvissu vegna áhrifa
Covid 19 heimsfaraldursins
hefur Fríhöfnin ehf, dóttur-
félag Isavia ohf, sagt upp 62
starfsmönnum. Frá því áhrifa
faraldursins fór að gæta hér
á landi hefur stöðugildum hjá
fyrirtækinu fækkað um tæp
60% og gripið hefur verið til
ýmissa annarra hagræðing-
araðgerða sem snerta öll svið
Fríhafnarinnar, segir í frétt frá
fyrirtækinu.
„Því miður er staðan þannig
að fækkun starfsfólks er óhjá-
kvæmileg,“ segir Þorgerður
Þráinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar. „Útlit er
fyrir að ferðamenn sem koma
til landsins verði afar fáir næstu
misserin og erfitt að spá fyrir
um hvenær fer að horfa til
betri vegar. Við hjá Fríhöfninni
höfum gripið til ýmissa hag-
ræðingaraðgerða frá því að
heimsfaraldurinn hófst en því
miður er staðan og útlitið verra
en spáð var á fyrstu stigum.“
Þorgerður segir að mikil
óvissa sé framundan og staðan
verði endurskoðuð reglulega.
6 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár