Víkurfréttir - 02.09.2020, Side 10
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Lokun landa-
mæra, aukið
atvinnuleysi
„Óhætt er því að segja að sú
kúvending sem varð á stefnu
stjórnvalda hvað varðar frjálsa
för fólks til og frá landinu hafi
komið flatt upp á marga.
Ákvörðun um að loka nánast
landinu með því að skylda alla í
tvær skimanir og sóttkví virðist
hafa verið tekin án samráðs
við atvinnulífið í landinu og án
þess að lagðir hafi verið fram
útreikningar og rökstuðningur
fyrir þeirri ákvörðun,“ segir
í álykktun stjórnar Samtaka
Atvinnurekenda á Reykjanesi.
„Frá upphafi faraldursins
hefur sóttvarnarlæknir talað
fyrir því að í raun og veru séu
það Íslendingar sem eru lík-
legastir til þess að bera smit
inn í landið. Erlendir ferðamenn
séu ekki líklegir til að smita
mikið, enda ekki í jafn nánum
samskiptum inn í samfélagið.
Jafnframt hefur sóttvarnar-
læknir talað fyrir því að það sé
ekki markmið út af fyrir sig að fá
engin smit inn í landið, heldur
getum við búist við smitum
af og til á meðan faraldurinn
geysar á heimsvísu.
Ríkisstjórn Íslands hefði hæg-
lega geta valið mildari útgáfu
við skimun á landamærum án
þess að loka fyrir flæði ferða-
manna með svo íþyngjandi
sóttvörnum. Til að mynda
hefði verið hægt að skima alla,
jafnvel tvisvar en látið duga
að setja Íslendinga í sóttkví. Ef
þær ráðstafanir gæfu ekki til-
ætlaðan árangur hefði á seinni
stigum alltaf verið hægt að
herða sóttvarnir í takt við þær
reglur sem nú eru í gildi.
Eftir gjaldþrot WOW Air og
í kjölfar COVID-19 faraldursins
hefur atvinnuleysi í landinu
stóraukist og einna verst er
ástandið hér á Suðurnesjum
eins og fréttir undanfarinna
daga sýna og telur stjórn SAR
að botninum sé ekki náð. Með
ákvörðun ríkistjórnarinnar fyrir
tæpum tveimur vikum síðan,
þá er fyrirséð að ferðaþjónusta
í landinu kemur að mestu leyti
til með að leggjast af, allavega
tímabundið með auknu at-
vinnuleysi og Stjórn SAR skorar
á Ríkisstjórn Íslands að endur-
skoða þær sóttvarnarreglur
sem nú gilda á landamærum án
tafar til að auðvelda erlendum
ferðamönnum að heimsækja
Ísland og um leið takmarka
efnahagsleg áhrif veirunnar.“
Samþykkt á stjórnarfundi SAR
31. ágúst 2020.
95 8 U N G M E N N I Í V I N N U Í J Ú L Í
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í byrjun sumars að auka við
framboð sumarstarfa í Reykjanesbæ. Annars vegar var um að ræða
þátttöku í úrræði stjórnvalda um sumarstörf fyrir námsmenn en auk
þess var öllum ungmennum fæddum árið 2003 og yngri boðin vinna
við Vinnuskóla Reykjanesbæjar.
Sigurgestur Guðlaugsson, verk-
efnastjóri atvinnu- og viðskipta-
þróunar, fór yfir skýrslu vegna
sumarátaksverkefnis á síðasta
fundi menningar- og atvinnuráðs
Reykjanesbæjar. Í fundargerð segir
að það sé skemmst frá því að segja
að öllum þeim ungmennum sem
uppfylltu skilyrði þessara tveggja
úrræða og sóttu um starf hjá
Reykjanesbæ í sumar bauðst að
starfa hjá bænum.
Samanlagður fjöldi ungmenna
í störfum á vegum Reykjanes-
bæjar var 958 í júlí, þar af voru
235 námsmenn í sumarstörfum
og 723 í vinnuskóla eða sérstökum
garðyrkjuhópi á vegum umhverfis-
miðstöðvar. Þetta er mikil aukning
frá árinu 2019 en þá voru 446
ungmenni að störfum hjá Reykja-
nesbæ.
Stálheppnir starfsmenn vinnuskólans sem var boðið í hádegismat á KEF Restaurant í sumar.
Unnið af krafti með stofn-
unum og ríki að úrræðum
„Nú þegar rúmlega 200 manns í viðbót er sagt upp
í hópuppsögnum hér á svæðinu setur mann hljóðan.
Þó ekki þannig að úr mér sé allur þróttur, síður en
svo. Bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ taka stöðuna
mjög alvarlega og þó svo tekjufall blasi við hjá bæjar-
félaginu verður unnið af krafti með stofnunum og
ríki að úrræðum,“ segir Jóhann Friðrik Friðriksson,
bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, í pistli sem hann skrifar
á Facebook.
„Það er flókið og erfitt að taka
ákvarðanir á sviði sóttvarna þegar
við eigum í höggi við veiru sem
þessa. Þar ætla ég ekki að setjast í
dómarasæti. Það sem aftur á móti
skiptir máli er að virkja kerfið,
samvinnu og kraftinn sem kemur
til með að milda höggið hér á
svæðinu, þar spila ríki og sveitar-
félög stórt hlutverk sem stendur.
Mikilvægt er að forgangsraða
í átt að velferðarkerfinu, opna
leiðir til virkni fyrir þá sem missa
vinnuna og bjóða sem flestum
sem ætla sér í nám velkomna inn í
skólakerfið. Það er góð fjárfesting
við þessar aðstæður.
Reykjanesbær hefur óskað eftir
því að opnað verði fyrir þann
möguleika að ráða starfsmenn
strax af atvinnuleysisskrá og
framlag sem ella færi í atvinnu-
leysisbætur komi upp á móti
launakostnaði. Þannig væri hægt
að koma á fót ýmsum umbóta-
verkefnum við þessar aðstæður
sem hagur væri af til lengri tíma,
bæði fyrir þá sem missa vinnuna
og samfélagið í heild. Hvernig við
bregðumst við núna mun hafa af-
gerandi áhrif á það hversu hratt
og vel við náum flugi á ný,“ segir
Jóhann Friðrik í pistlinum.
10 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár