Víkurfréttir - 02.09.2020, Síða 20
Er vellíðan grundvallarmarkmið alls þess sem við gerum?
Við viljum vissulega að öllum líði vel.
Við trúum því að við komum vel fram við aðra þegar okkur sjálfum líður vel og við höfum heyrt að
hamingjan sé fólgin í núinu – það að líða vel í eigin skinni á akkúrat þessari stundu.
Hvað getum við gert til þess að
öllum líði vel?
Reykjanesbær fékk
hugmynd!
Nú er unnið að risastóru sam-
félagsverkefni með það að mark-
miði að allir passa upp á alla og að
allir hafi jöfn tækifæri til þess að
tilheyra samfélaginu. Í verkefninu
einblínum við á alla en horfum líka
sérstaklega til þeirra sem reynist
það meiri áskorun að taka þátt
en öðrum. Við leggjum sérstaka
áherslu á börn af erlendum upp-
runa og börn sem ekki eru nú
þegar í skipulögðu íþrótta- og tóm-
stundastarfi.
Félagsmálaráðuneytið veitti
Reykjanesbæ veglegan styrk í
upphafi þessa árs til þess að huga
að vellíðan barna, jákvæðum sam-
skiptum þeirra og sterkri félags-
færni. Það skyldi gert með áherslu
á þátttöku í skipulögðu íþrótta- og
tómstundastarfi því allt bendir til
þess að samfélagsleg virkni leiði til
betri líðan, jákvæðari samskipta,
sterkari félagsfærni og þess að fólk
sé hluti af samfélagsheildinni.
Það þarf heilt þorp til
þess að ala upp barn
Svo markmiðin nái fram að ganga
þurfa allir að vera með. Það þarf
heilt þorp til þess að ala upp barn.
Reykjanesbær ætlar nú að styðja
og styrkja þetta þorp.
KVAN er fyrirtæki sem hefur
sérhæft sig í því að styðja fólk til
að ná að virkja það sem í þeim býr
og veita þeim aðgengi að styrk-
leikum sínum. KVAN hefur unnið
mikið með vináttuþjálfun barna
og fjallað um mikilvægi þess að
tilheyra samfélaginu. Einmitt þess
vegna eru þau réttu aðilarnir til
þess að fræða, þjálfa og mennta
alla sem koma að barnastarfi í
Reykjanesbæ. Þau munu veita
umsjónarkennurum á miðstigi
hagnýtt námskeið, einnig kenn-
urum í íslensku sem annað mál
og forstöðumönnum frístunda-
heimila. Þau munu standa fyrir
vinnustofum fyrir alla sem koma
að barnastarfi í sveitarfélaginu,
sama hvort um sé að ræða dans-
kennara, skátaforingja, barna-
verndarstarfsmann eða skólaliða
og allt þar á milli. Í samvinnu við
Sölku Sól Eyfeld munu þau jafn-
framt leiða fræðslu og þjálfun fyrir
jafningjafræðslu sem miðuð er að
nemendum 9. bekkjar. Þar að auki
munu þau halda nokkra fyrirlestra
fyrir starfsmenn sveitarfélagsins
og félag foreldrafélaga í Reykja-
nesbæ.
Meginmarkmið ungmenna-
félaga er ræktun lýðs og lands.
Bætt lýðheilsa, betri einstaklingar,
betri félög og betra samfélag. Það
lá því beint við að fá ungmenna-
félögin tvö, Keflavík og Njarðvík,
til þess að leiða verkefnið áfram.
Ungmennafélögin munu verkefna-
stýra starfinu í vetur, halda utan
um allar upplýsingar og tengja
önnur íþróttafélög og tómstunda-
hreyfinguna inn í verkefnið. Þau
munu jafnframt stýra spennandi
kynningum á öllu íþrótta- og tóm-
stundastarfi í sveitarfélaginu sem
munu ekki fara framhjá neinum
þegar þar að kemur.
Vel undirbúið
samfélagsverkefni
Þetta stóra samfélagsverkefni
hefur verið vel undirbúið og er það
von Reykjanesbæjar að markmiðin
nái fram að ganga. Eina leiðin til
þess að svo megi verða er að allir
séu með í „Það er ábyrgð okkar
allra að huga vel að okkur sjálfum
og þeim sem í kringum okkur eru“.
Þess vegna hefur Reykjanesbær
gert sáttmála sem íbúar eru hvattir
til þess að gerast aðili að á vefsíðu
Reykjanesbæjar. Sáttmálinn snýr
að því að við einsetjum okkur að
sýna hlýlegt viðmót og alúð gagn-
vart öllu okkar samferðafólki. Við
ættum að láta okkur varða um öll
börn og huga sérstaklega að þeim
sem reynist það meiri áskorun að
taka þátt í samfélaginu en öðrum.
Sýnum hlýlegt viðmót, hugum að
fólkinu í kringum okkur af alúð og
verum með í Látum okkur líða vel.
Verið velkomin í ALLIR MEÐ!
Hilma Hólmfríður Sigurðar-
dóttir, verkefnastjóri
fjöl menningarmála
og verkefnastjóri.
Í stýrihópnum eru jafnframt:
Guðrún Magnúsdóttir,
lýðheilsufræðingur.
Hafþór Barði Birgisson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,
verkefnastjóri í íslensku
sem öðru máli.
Haraldur Axel Einarsson,
grunnskólafulltrúi.
María Gunnarsdóttir,
forstöðumaður barnaverndar.
Ert þú með?
20 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár