Víkurfréttir - 02.09.2020, Síða 25
Bakari – ekki leikari
Nafnið á bakaríinu er dregið út úr
samnefndu leikriti um Hérastubb
en Siggi bakari lét hugann jafnvel
reika í að verða leikari þegar hann
var yngri. Úr því varð ekki. Bakari
skyldi strákur verða.
Hérastubbur er opinn alla daga
og fjölskyldan skiptist á að vinna
um helgar. Fjöldi viðskiptavina
utan Grindavíkur lætur sig ekki
muna um að skjótast í bæinn og
ná sér í súrdeigsbrauð eða vegan-
kleinuhring með bleiku glassúri.
Við fengum sögu af hvernig hægt
var að gera glassúrið vegan. „Við
tókum út rauðan matarlit og
notum sólberjasaft í staðinn,“ sagði
Hrafnhildur sem hefur þurft að
hugsa margt upp á nýtt í bakaríinu.
Í Grindavík hafa jarðskjálftar verið
allt að því daglegt brauð og ótrú-
legt en satt þá kom einn stærsti
skjálfti ársins á meðan Víkurfrétta-
menn voru í heimsókn.
Arsenal og Grindavík
Í lok heimsóknarinnar fengum
við að heyra að fjölskyldan væri
ekki bara í bakstri heldur séu þau
öll forfallnir aðdáendur enska
knattspyrnuliðsins Arsenal, að
Grindavík ógleymdu að sjálfsögðu.
„Við eigum ársmiða á Emirates,
heimavöll Arsenal, en höfum ekki
farið síðustu mánuði út af Covid
– en það koma dagar vonandi fljót-
lega. Við höfum hér heima stutt
Grindvíkinga og Þrótt í Vogum og
erum ánægð með það.“
Siggi segist hvergi vera hættur í
bakarísrekstri og bætir því við að
með nýju fólki fylgi breyttir tímar
en hann hefur þurft að hafa sig
allan við til að vera með dótturinni
í hugmyndavinnunni. Það hafi þó
gengið vel. Reynslan segi líka sitt.
„Nýju fólki fylgja breyttir tímar en
við fylgjum straumnum þar sem
dóttirin leiðir okkur áfram veginn.“
Vegan-snúðarnir eru
sannkallað lostæti.
„Jú, við erum í þessu
hefðbundna og sumir
segja gamaldags
brauðum og kökum
að sjálfsögðu líka.
Ég get bætt normal-
brauðinu við í
þá umræðu.
Það er svakalega
gott hjá okkur ...
... og þú færð þær inn um lúguna
Víkurfréttir í áskrift!
Fyrir 3.500 kr. á mánuði færðu Víkurfréttir
bornar heim til þín og losnar við fyrirhöfnina að sækja blaðið
Áskriftargjaldið verður innheimt mánaðarlega.
Pantaðu áskrift með tölvupósti á vf@vf.is
Þú sendir nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmer
Við höfum samband, staðfestum áskrift og færð reikning í heimabanka
Hjá Hérastubbi er
úrvallið gott og allir
ættu að finna eitthvað
ljúffengt við sitt hæfi.
vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár // 25