Víkurfréttir - 02.09.2020, Blaðsíða 30
Fyrstu Suðurnesjabjórarnir!
framleiðsla verður tilbúin eftir
tvær vikur,“ segja þeir félagar og
jánka því þegar þeir eru spurðir
hvort þeir hafi ekki bara gúgglað
bjórtegundir í upphafi. „Maður
þarf bara að prófa sig áfram. Mögu-
leikarnir eru endalausir. Jú, jú, við
gúggluðum eitthvað fyrst og svo
fengum við upplýsingar á korn-
suðunámskeiðinu. Það er mjög
gaman að grúska í þessu en þetta
er auðvitað bara áhugamál. Við
erum allir í öðrum störfum,“ segja
þeir Davíð og Markús sem voru
búnir að skoða þetta í dágóðan
tíma þar til þeir hittu Kristinn en
þeir kappar eru allir Garðmenn
með sterka tengingu í bæjarfélagið.
„Þetta er kannski dýrt áhugamál.
Við sjáum ekki fram á að verða
ríkir af þessu. Við keyptum þetta
hús og þá var hægt að byrja og
það var í júníbyrjun í sumar. Það
tekur um það bil tvær vikur að
klára bruggun á einni tegund og
við vonumst til að komast í vín-
búðirnar fljótlega. Við erum einnig
í tengingu við Bjórland sem er nýr
aðili á markaðinum,“ segir Kristinn.
Suðurnesjanöfn á bjór
Nöfnin á bjórunum eru áhugaverð
og tengjast Garðinum og Suður-
nesjum. Þeir sögðust vilja halda
uppi sögunni og tengingu við
svæðið, fóru í bækur og lögðu svo
hausinn í bleyti. Rosmhvalanes og
Steinunn landnámskona fá sinn
hvorn bjórinn, Rosmhveling og
Steinuði. Nýlenda er þekkt bæjar-
heiti í Garði sem Kristinn tengist
og svo er Keilir auðvitað þekktasta
fjall Suðurnesja. Alvöru Suður-
nesjafjall fær auðvitað sinn bjór.
Gaurinn er fimmta nafnið og er út
í loftið. Rosmhvelingur er ljós bjór
og 4,5% en hinir eru yfir 5%, Keilir
og Gaurinn 5,6%.
Nöfnin á bjórunum
eru áhugaverð og
tengjast Garðinum
og Suðurnesjum.
Markús, Davíð og
Kristinn lyfta glösum.
Möguleikarnir
eru miklir og við
erum búnir að
setja Keilisbjórinn í
prufukeyrslu á kránni
Paddy’s í Keflavík.
Honum var vel tekið
sem var ánægjulegt ...
Stefna yfir þúsund lítra
„Við erum með leyfi til að framleiða þúsund lítra á mánuði og stefnum
að því að fara yfir það. Við stefnum að því að vera komnir með bjóra
í sölu eftir um tvær vikur. Við erum bjartsýnir og höfum fengið við-
brögð frá fjölskyldumeðlimum og vinum sem hafa smakkað og verið
að prófa með okkur. Litla brugghúsið verður vonandi skemmtileg
viðbót í ferðaþjónustuflóruna á Suðurnesjum. Við eigum eftir að gera
þetta húsnæði huggulegt þannig að fólk geti komið hingað og átt
góða stund í bjór smökkun en við munum líka bjóða upp á gott kaffi og
einhverjar veitingar. Litla brugghúsið verður vonandi lítil ölstofa sem
fólk vill koma í og eiga góða stund með vinum eða starfsfélögum,“
sögðu þeir þremenningar, Davíð, Markús og Kristinn.
30 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár