Víkurfréttir - 02.09.2020, Side 36
Gefa út bók með fæðingar-
sögum frá feðrum
Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir eru þessi misserin að safna
fæðingarsögum og upplifunum frá feðrum sem þau ætla að gefa út í bók.
Söfnunina hófu þau í nóvember á síðasta ári, nánar tiltekið á feðradaginn.
Tilgangurinn með söfnuninni er tvíþættur. Annars vegar vilja þau fá feður
til þess að ræða um sínar upplifanir og reynslu af fæðingum barna sinna,
hins vegar óska þau eftir að fá sendar sögur frá feðrum sem þau ætla að
gefa út í bók til varðveislu. Sögurnar verða nafnlausar í bókinni en með
hverri sögu verður birt fæðingarár föður og barns sem og fæðingarstaður.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði
síðasta sumar. Gréta María er ljós-
móðir og starfar á fæðingarvakt
Landspítalans en auk þess vann hún
um tíma á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja. Ísak vinnur sem verkefnastjóri
í hugbúnaðarfyrirtæki. Saman eiga
þau tvö börn, þriggja ára stelpu og
dreng sem fæddist um miðjan ágúst-
mánuð.
Tilgangurinn með fæðingar-
sögum feðra er eins og áður segir
að fá feður til að lýsa sinni upp-
lifun af fæðingum barna sinna.
„Við fundum það um leið og við
fórum af stað með þetta verk-
efni að margir foreldrar í kringum
okkur hafa ekki rætt sín á milli um
fæðingu barna sinna. Báðir aðilar
voru viðstaddir fæðinguna en hafa
aldrei rætt saman um það hvernig
hlutirnir gengu og tilfinningarnar
sem fæðingunni fylgja. Okkur
langar sem sagt að vekja athygli
á hlutverki feðra í ferlinu,“ segir
Ísak og heldur svo áfram: „Það er í
raun ótrúlegt, miðað við hvað það
er stór viðburður að eignast barn,
hvað við ræðum lítið um það.“
Fengu sögur inn á
fyrsta sólarhringnum
Söfnunin fer fram í gegnum Face-
book-síðu verkefnisins sem heitir
„Fæðingarsögur feðra“. Þar er hægt
að senda inn sögur eða á netfangið
faedingarsogurfedra@gmail.com.
Auk þess eru þau með Instagram-
síðu undir sama nafni. Á þessum
síðum er hægt að finna frekari
upplýsingar um verkefnið og þau
hvetja fólk til að fylgja þeim á sam-
félagsmiðlum. Inn á Facebook-síð-
unni má t.d. lesa þrjár áhugaverðar
fæðingarsögur frá feðrum. Eins
hvetja þau feður til þess að skrifa
niður sínar fæðingarsögur og senda
inn í verkefnið.
Eftir að verkefninu var ýtt úr vör
liðu ekki nema nokkrir klukkutímar
þar til fyrsta sagan kom inn. Síðan
þá hafa sögurnar komið reglulega
inn. „Við erum að leita eftir öllum
tegundum af sögum; löngum,
stuttum, skemmtilegum, erfiðum
og allt þar á milli. Við viljum heyra
frá hefðbundnum fæðingum, keis-
araskurðum, heimafæðingum, fæð-
ingum í bílum, nýjum sögum, eldri
sögum og sögur af fæðingum eins
og þær voru í sveitinni hér áður
fyrr. Það er svo sannarlega pláss
fyrir allar sögur í verkefninu.“
Aðspurður um útgáfudag bók-
arinnar svarar Ísak því til að það
fari allt eftir því hvernig söfnunin
gangi. „Við ætlum að vanda til
verks og við munum gefa bókina
út þegar við erum ánægð með
innihald hennar. Við stefnum að
því að hafa bókina myndskreytta
og gera hana fallega og eigulega.
Við vonumst eftir því að bókin
geti nýst bæði verðandi foreldrum
sem og þeim sem eiga börn fyrir. Í
raun ætti bókin að vera áhugaverð
fyrir alla þá sem hafa áhuga á fæð-
ingum á einn eða annan hátt.“ Ísak
bendir einnig á að nokkrir feður
hafa notað þetta tækifæri til að
skrifa niður sína sögu og vinna úr
erfiðum tilfinningum eftir fæðingu.
Að lokum hvetja Ísak og Gréta
fólk til að setjast niður og ræða
um fæðingar barna sinna. Eins
hvetja þau feður til að skrifa niður
sína fæðingarsögu og senda inn í
verkefnið. ,„Það getur verið bæði
áhugavert og skemmtilegt að eiga
sína sögu á pappír, því sumir hlutir
gleymast með tímanum,“ segir Ísak
í lokin.
Húsagerðin hf.
husagerdin.is
Húsasmiður
óskast!
Húsasmiður með faglega
reynslu óskast til starfa.
Sendið umsókn ásamt feriskrá
og meðmælanda á
agnar@husagerdin.is
36 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár