Víkurfréttir - 02.09.2020, Side 42
Færri bátar stunda bugtarveiðarnar
Þegar þessi pistill kemur út þá er nýtt fiskveiðiár komið og það þýðir
að Faxaflóinn meðal annars opnast fyrir dragnótaveiðar. Veiðarnar í
Faxaflóanum ganga undir nafninu bugtarveiðar.
Í ár eru bátarnir nú ekki margir.
Þeir eru einungis þrír, Benni Sæm
GK, Siggi Bjarna GK og síðan er
það Aðalbjörg RE frá Reykjavík.
Aðalbjörg RE á sér langa sögu í
veiðum í Faxaflóanum og á sínum
tíma voru tveir bátar sem voru
hétu þessu nafni á veiðum í bugt-
inni, Aðalbjörg RE og Aðalbjörg II
RE.
Þetta þýðir að aðeins tveir
bátar frá Suðurnesjum stunda
veiðar í Faxaflóa og er það mjög
mikil fækkun á bátum sem voru á
þessum veiðum. Sem dæmi fyrir
30 árum síðan í september árið
1990 þá voru eftirfarandi bátar á
veiðum:
Í Keflavík voru Arnar KE, Baldur
KE, Eyvindur KE, Farsæll GK,
Haförn KE, Reykjaborg RE og Ægir
Jóhannson ÞH. Í Reykjavík voru
Rúna RE, Sæljón RE, Aðalbjörg II
RE, Njáll RE, Aðalbjörg RE og Guð-
björg RE.
Annars núna í ágúst fóru drag-
nótabátarnir aðeins af stað. Benni
Sæm GK réri oftast, fékk 83 tonn
í þrettán róðrum, Aðalbjörg RE 63
tonn í sjö, Siggi Bjarna GK 38 tonn
í sex róðrum og Sigurfari GK hóf
veiðar undir lok ágúst og landaði
25 tonnum í tveimur róðrum. Allir
bátarnir lönduðu í Sandgerði.
Netabátarnir hafa fiskað mjög
vel í ágúst og voru þeir að veiðum
í Faxaflóa. Maron GK er með 88
tonn í 21 róðri, Bergvík GK 55
tonn í fimmtán, Halldór Afi GK 47
tonn í 24, Sunna Líf GK 45 tonn í
fjórtán og Hraunsvík GK 27 tonn í
þrettán. Reyndar kom smá leki að
Hraunsvík GK og var hann tekinn
í slipp í Njarðvíkurslipp,
Eins og fram kemur komið í
þessum pistlum þá hefur verið
fjallað um Grímsnes GK en hann
er kominn á ufsann og hefur gengið
feikilega vel. Grímsnes GK er
kominn í 111 tonn í sex róðrum og
þar af landaði báturinn 88 tonn í
aðeins fjórum róðrum og mest 28
tonn í einni löndun.
Erling KE er kominn í slippinn
í Njarðvík en hann var á grálúð-
unetaveiðum í sumar og var á
veiðum fyrir Brim HF, sem áður
hét HB Grandi.
Togarinn Berglín GK er líka
kominn í slippinn en þessi togari
komst í fréttirnar þegar að áhöfn
skipsins tók til sinna ráða og mót-
mælti því að Nesfiskur borgaði
þeim það lágt verð fyrir rækjuna
svo hún ákvað að sigla togaranum
tómum til Njarðvíkur. Þar lá tog-
arinn í hátt í fjórar vikur en fór svo
á rækjuveiðar um miðjan júlí. Tog-
arinn mun fara á botnfiskveiðar
eftir slippinn, enda er skipið með
úthlutað 1.434 tonna kvóta.
Aðeins út í kvótann. Sóley Sigur-
jóns GK er með 4.124 tonna kvóta,
Pálína Þórunn GK 1.669 tonna
kvóta, Erling KE 1.688 tonna kvóta,
Sigurfari GK 2.927 tonna kvóta,
Grímsnes GK 178 tonna kvóta og af
því er 85 tonna rækjukvóti, Sturla
GK, nýi togbáturinn sem Þorbjörn
á með, 3.392 tonna kvóta og Jó-
hanna Gísladóttir GK 3.951 tonna
kvóta.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Hér er myndskeið sem
var tekið þegar neta-
báturinn Maron GK
er að koma til hafnar
í Njarðvík en þessi
bátur er smíðaður
árið 1955 og er einn af
elstu stálbátunum á
Íslandi í útgerð í dag.
42 // aFlaFrÉttir á suðurNesJuM Í 40 ár