Morgunblaðið - 21.05.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við finnum sannarlega fyrir auknum áhuga. Bæði á
Jordan-vörum og Bulls-tengdum fatnaði en líka al-
mennt í körfuboltavörum,“ segir Arnar Freyr Magnús-
son, eigandi körfuboltaverslunarinnar Miðherja í Faxa-
feni.
Mikið umtal hefur verið um þættina The Last Dance,
sem nýverið fóru í sýningar á Netflix. Í þáttunum er
fjallað um lið Chicago Bulls í NBA-deildinni á tíunda
áratugnum og byggja þeir meðal annars á óbirtu
myndefni frá síðasta tímabili Michael Jordan þar, 1997-
1998. Augljóst er að margir hafa gaman af að rifja upp
þessa tíma, en NBA-deildin naut mikilla vinsælda hér á
þessum árum.
„Fólk ætti að vera að horfa á úrslitakeppni NBA
núna svo þessir þættir eru hiklaust að bjarga sjón-
varpsáhorfinu. Þeim var enda flýtt út af kórónuveir-
unni. Þetta virðist mikið vera nostalgía, fólk á milli 35-
50 ára sem horfir og kaupir sér svo treyjur frá þessum
tíma. Krakkarnir kaupa þó sér frekar skó frá þeim
leikmönnum sem eru að spila í dag,“ segir Arnar.
Hann segir að áhugi og áhorf á körfubolta sé mjög
hátt á Íslandi í dag. Aðspurður segist hann telja að
yngri kynslóðin horfi ábyggilega á The Last Dance en
kannski ekki af sama eldmóð og sú eldri. „Krakkarnir
tengja ekki jafn heitt við þetta og þeir sem eru fæddir í
kringum 1980. Næntís-fílingurinn hreyfir við mörgum.“
Hörður Magnússon, rekstrarstjóri hjá Útilífi, segir
að mikið hafi selst af körfuboltum í vor. „Það er tvöfalt
meiri sala á körfuboltum hjá okkur en í fyrra. Hvort
það tengist Jordan-þáttunum eða því að Íslendingar
vilja komast út að leika sér veit ég ekki.“
Síðbúið Jordan-æði á Íslandi
Miklar vinsældir á ný í
kjölfar nýrra þátta á Netflix
AFP
Gullöld Michael Jordan var sá besti á sínum tíma.
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum
um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Flutningar standa nú yfir á Þór, bor Jarð-
borana, af Hellisheiði yfir á Nesjavelli. Þar
stendur fyrir dyrum borverkefni fyrir
Nesjavallavirkjun, en Sigurður Sigurðs-
son, forstjóri Jarðborana hf., segir líklegt
að þetta verði síðasta háhitaholan sem bor-
uð verði hér á landi í fyrirsjáanlegri fram-
tíð.
Hann segir að síðustu þrjú ár hafi borinn
verið notaður talsvert fyrir Orku náttúr-
unnar á Hellisheiði og Nesjavöllum. Nú
sjái fyrir endann á þessum verkefnum og
engin ákvörðun liggi fyrir um frekari verk-
efni hjá ON. Sömu sögu sé að segja um
Landsvirkjun og HS Orku.
Öflugasti borinn til útlanda?
Sigurður segir að fyrirtækið sé á fullu að
leita verkefna í Evrópu, meðal annars með
þátttöku í útboðum í Bretlandi, Þýskalandi
og Hollandi. Vonandi skili það árangri og
þá verði borinn Þór, sem er öflugasti bor
Jarðborana hf. og eini háhitaborinn sem er
hér á landi, fluttur í verkefni erlendis.
Í vetur gerðu Jarðboranir tæplega
þriggja milljarða króna samning um verk-
efni á Asoreyjum. Þar verður borinn Óðinn
notaður til að bora níu háhitaholur, 1.000-
2.300 metra djúpar, og verður þar fram yfir
mitt næsta ár. Einn bor fyrirtækisins, Týr,
stendur á borstæði í Djíbútí og hefur lokið
borun, en ekki hefur verið hægt að taka
hann niður vegna veirufaraldursins. Minna
verkefni bíður Jarðborana í landinu og
verður væntanlega farið í það í haust þegar
faraldurinn verður genginn niður.
Ekkert sem tengist orkuöflun
Sigurður segist sakna þess að í að-
gerðarpökkum stjórnvalda og orkufyrir-
tækjanna skuli ekki vera neitt sem tengist
orkuöflun þó svo að ekki sé raforkuskortur
í landinu í dag. Fyrir liggi að fara þurfi í
ýmis viðhaldsverkefni borhola, en engar
áætlanir hafi verið gerðar um þá vinnu.
Sömu sögu megi segja um sveitarfélög,
sem ekki séu stórtæk í öflun á heitu vatni
um þessar mundir.
„Við höfum verið að kynna okkur á er-
lendum mörkuðum sem sérfræðinga í nýt-
ingu jarðhita en óttumst núna að sú þekk-
ing geti tapast,“ segir Sigurður, en starfs-
fólki Jarðborana hefur fækkað síðustu ár.
Aðeins eitt háhitaverkefni í augsýn
Jarðboranir flytja borinn Þór af Hellisheiði til Nesjavalla Fyrirtækið leitar verkefna erlendis
Verkefni á Asoreyjum fram yfir mitt næsta ár Forstjórinn óttast að þekking geti tapast
Ljósmynd/Orkuveitan
Þór Borun á nýrri háhitaholu fyrir Nesjavallavirkjun hefst um mánaðamótin. Myndin er tekin af þessu öfluga tæki við borun í Hverahlíð á Hellisheiði.